Goðasteinn - 01.09.1973, Page 78

Goðasteinn - 01.09.1973, Page 78
fluttu þau að Tungu og sátu þá jörð þar til Guðrún andaðist árið 1899 sem fyrr segir. Guðjón var því aðeins tveggja ára, þegar hann kom að Tungu með foreldrum sínum, en samt mundi hann allt tíð til þeirrar stundar, þegar hann fyrst kom þar inn í baðstofuna. Systkini hans urðu alls 12 en tvö þeirra létust í æsku. Hópurinn var því stór, sem fæða þurfti og klæða, en búið ekki stórt, sem björgina gaf, því að jörðin er fremur lítil. Það lætur því að líkum, að þröngt hefur stundum verið í búi á æsku- og uppvaxtarárum Guðjóns, enda var það næsta algengt hlutskipti á þeim árum, þegar færri úrkosta var völ til lífsbjargar en nú gerist. En þótt ytri efni væru þröng, þá átti þetta heimili ærna fjársjóði í menn- ingu og manndómi og þeim sálargáfum, sem hefja manninn yfir ytri kjör og aldrei verða mældir við álnir eða krónur. Sá innri auður er afl þeirra hluta, sem gjörðir eru öllum til gagns og góðs og ávaxtast oftast betur og á heillaríkari hátt en „hinn þctti leir“, sem einatt virðist meðfram ávaxta eigingirni þeirra, er hann hnoða, og gleymsku til annars en sjálfs sín. Þetta átti eftir að sannast í lífi sveinsins unga í Tungu. Vegarnestið að heiman brást hon- um ekki, heldur varð undirstaða að gifturíku ævistarfi hans. Snemma þótti bera á fróðleiksþorsta hans og menntaþrá og næmið og skilninginn skorti ekki. Aðeins fimm ára að aldri hafði hann náð þeim tókum á bókiestri, að hann var þá stundum lát- inn lesa húslestur svo sem tíðkað var þá á hverju heimili. Hugur hans mun og hafa staðið til náms og mennta, cn ekk’i voru að- stæður til að þeir draumar gætu rætzt. Vinnan, erfiðið við orf og ár, sem aflaði hins daglega brauðs, var fyrsta og æðsta boð- orðið hjá efnalitlu fólki í þá daga, og þar varð annaðhvort að duga eða leita á náðir sveitarinnar, sem ekki þótti fýsilegt á þeim tímum. Heima var unnið og heima var numið hið holla og nýta, þjálfaður hugur og höndin æfð. En aðeins hin örfleygu æskuár. Strax um fermingaraldur var að heiman haldið til þess að vinna fyrir sér, - en líka til þess að læra og mannast í allra tíma grunnskóla, sjálfum lífsreynslunnar skóla. Þá fór Guðjón um vetrartíma að Hellnahjáleigu í Flóa og vann þar við gripahirð- ingu og fleiri sveitastörf, - og kynntist framandi fólki og fjar- 76 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.