Úrval - 01.10.1978, Side 12

Úrval - 01.10.1978, Side 12
10 ÚRVAL Það er heldur ekki með vilja karlljóns- ins, að ljónynjurnar og ungarnir taki þátt í veislunni, sem eftir fylgir. í rauninni eru það ljónynjurnar, sem eru dugiegastar að veiða — þær veiða níu tíundu hluta af því, sem ljónin yflrleit veiða sjálf. Ljónynjurnar laumast að bráðinni, ná henni á stutt- um rokuspretti og velta bráðinni til jarðar, þar sem þær drepa hana hægt og kveljandi með því að kyrkja hana. En alveg eins oft klúðra þessir risa- kettir alveg veiðinni og hefja loka- sprettinn of fljótt eða dæma fjarlægð- ina ranglega. Best gengur, þegar ljón- in veiða í hóp. Ef bráðin sleppur undan einu ljóninu, fellur það í klær annars. Loks kemur í ljós, að konungur dýranna er beinlínis níðlatur og sefur eða mókir 20 tíma á sólarhring. Ef honum heppnast ekki að stela mat frá minni rándýrum eða finna sjálfdautt dýr, nennir hann ekki að huga að veiði sjálfur nema einn eða tvo tíma. Og þá getur skeð, að fullorðin ljón drepi hvert annað. Þýðir þetta, að ljónið sé bara illa valið dæmi um göfgi náttúrunnar? Alis ekki, svarar Rensberger. Málið er einfaldlega það, að ljónin lifa ekki í samræmi við það hátterni, sem við mennirnir höfúm talið okkur trú um. Rensberger vitnar í Encyclopaedia Britannica, sem segir að ,,hýenur eru fyrst og fremst hræætur, sem mestan part eru háðar veiðileifum ljóna, á þeim svæðum sem þær lifa á. Þótt hý- enur séu yfirieitt ragar, eiga þær þó til að ráðast á hjálparlaus dýr og sýna móð, þegar suiturinn knýr”. Hann segir, að þótt þessi lýsing komi full- komlega heim við almennan skiining á hýenum, sé fátt rétt í henni. Hann styðst við niðurstöðu Hans Kruuk, hollensks atferlisfræðings, sem dvalið hefur mörg ár í Afríku til að rannsaka hátterni villdýra. Og niðurstöður vís- indamannsins koma vægast sagt á óvart. Kruuk komst maðal annars að raun um, að mikilsverðasta bráð hý- enunnar var oftar hraustir, ungir gný- ir eða sebradýr heldur en sjúk eða hjálparlaus dýr. Meira að segja er ekki alveg fárítt, að hýenur leggi að velli hið herskáa afríska villinaut, sem er um hálft tonn að þyngd. Hýenan hleypur að hópi gnýja og dreifir honum. Hún velur sér ákveð- inn gný og veitir honum eftirför. Við það getur hún hlaupið með allt upp í 65 km hraða, allt að 5 km í lotu. Þeg- ar hýenan nær bráð sinni, keyrir hún í hana tennurnar af svo miklu afii og svo snöggt, að dýrið stóra lamast og fellur á fáeinum sekúndum. Hýenan drepur sem sagt fljótt og hreinlega — og hana köllum við hræætu! En hvers vegna hefur hýenan þá áunnið sér þetta orð? Sennilega með því að vera fráhrindandi í útiiti og falla því vel að þessu hlutverki. Þar við bætist, að hýenur veiða um nætur og hafa því ekki verið mikið athugað- ar. Við sólarupprás kemur ljónið í ljós við bráðina að velli iagða, meðan hýenurnar luntast álengdar. Þess vegna hefur alltaf verið gengið út frá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.