Úrval - 01.10.1978, Blaðsíða 70
68
ÚRVAL
sá rithöfundurinn Restif de la Bret-
onne uppreisnarfólkið þyrpast fram
hjá í fjölmennum flokkum. ,,Það var
eins og það væri að segja: í dag er síð-
asti dagurinn, sem þeir ríku geta setið
og kýlt vömb sína. Á morgun kemur
röðin að okkur; á morgun erum það
við, sem fáum að sofa á svanadúni. ’ ’
VOPNUM SKIPT
I dögun 14. júlí voru parísarbúar
enn á götum úti. Loftið var skýjað og
það var hvasst, þar að auki var hitinn
lágur miðað við árstíma, aðeins 22
gráður á Celcius. Víman vegna auð-
unnina sigri daginn áður hafði nú
vikið fyrir áhyggjum. Það var sagt, að
herdeildir hollar kónginum væru á
leið til Parísar. Konunglega þýska
herdeildin átti að hafa tekið sér stöðu
við Barriére-du-Throne, að því er
sagt var og 15 þúsund hermenn á leið
til Rue Saint-Antoine — en ekkert af
þessu var satt.
Tbiébault barón fór að heiman frá
sér um morguninn. Hann sagði síðarí
endurminningum sínum, að hann
hafi mætt 500 manna hópi, sem
fylgdi. skeggjuðum trommuslagara.
,,Við erum á leið til Invalides til að
leggja kanónurnar undir okkur,”
sagði vinur hans í hópnum, og Thié-
bault barón slóst í förina.
Þegar hópurinn kom til Esplanade
de Invalides, höfðu átta til tíu þús-
und manns þegar hnappast saman við
síkin. Þetta fólk heimtaði vopn, svo
það gæti varið sig gegn árásum frá
herdeildum konungsins, sem það átti
von á þá og þegar. í Invalides voru 32
þúsund múskettur (handbyssur).
Virkisstjórinn, Sombreuil, hafði gefið
mönnum sínum fyrirskipun um að
gera vopnin óvirk með því að hirða úr
þeim skotpinnana. En menn hans
voru á bandi fólksins með sjálfum sér,
og ,,tókst” aðeins að gera 20 byssur
óvirkar á sex tímum!
Sombreuil opnaði virkið til þess að
tilkynna, að hann biði skipana frá
Versölum. Fólksfjöldinn greip þegarí
stað tækifærið, hagnýtti sér þessa
óvæntu opnun virkisins og streymdi
inn. Varðmennirnir voru um kyrrt á
sínum stöðum, en höfðust ekki að.
Um 30 þúsund múskettur voru
gripnar og dreift meðal þeirra, sem
við þeim vildu taka. Tveir starfsmenn
breska sendiráðsins, sem voru þarna á
ferð í eigin erindagjörðum, stóðu allt
í einu uppi með tvær byssur, sem þeir
höfðu aldrei óskað eftir.
En þótt parísarbúarnir hefðu nú
aflað sér skotvopna, var fátt að finna
af púðri og kúlum í Invalides, og þar
sem skotfærin voru geymd í Bastill-
unni, kom af sjálfu sér, að fjöldinn
streymdi í áttina til gamla virkisins.
Hundruð parísarbúa, vopnuð lens-
um, heykrókum, meira að segja steik-
arspjótum, hnöppuðust um Bastill-
una. Þótt kanónur de Launays væru
ekki ætlaðar til hernaðar á stuttu færi,
voru menn hans, sem fengið höfðu
liðsauka 32 svissvarðliða, nægilega vel
búnir til þess að geta breytt uppþot-
inu í vígvöll.