Læknaneminn - 01.04.2020, Síða 5
5
R
it
rý
n
t
e
fn
i
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
5
Það var í október 2019 sem formaður Félags
læknanema birti á Facebook-síðu læknanema
að leitað væri eftir umsóknum í ritstjórn
Læknanemans 2020. ,,Þetta er það sem mig
hefur alltaf dreymt um að gera” hugsuðu
einhverjir. ,,Ég get svo sem látið mig hafa
það” hugsuðu aðrir. ,,Þetta er síðasta tækifærið
mitt til þess að eignast vini í læknadeild”
hugsaði einhver. Í kjölfarið var tíu manna
rit stjórn mynduð og hafist var handa við að
setja saman efni í blað. Fyrsti fundurinn var
hald inn í Læknagarði í byrjun nóvember
2019. Það myndaðist umsvifalaust samhugur
með ritstjórnarmeðlimum um að ekkert
skyldi stöðva okkur í að gefa út gæðablað,
ekki áhyggjur af tekjumöguleikum eftir
nám, skóla leiði, heims faraldur eða rútuslys.
Við vorum handviss um að 71. árgangur af
Lækna nemanum myndi rata í hendur ykkar,
kæru lesendur.
Síðustu mánuði fyrir útgáfu blaðsins ríkti
mikil óvissa. Óvissa um það hvort blaðið
myndi nokkurn tíma koma út og óvissa hvort
takast myndi að selja nægar auglýsingar í blað-
ið. Óvissa um það hvort andleg heilsa okkar
í ritstjórninni myndi bera okkur í gegnum
COVID-19 faraldur eftir að hún lask aðist
hjá helmingi hópsins í rútuslysi í janúar. Það
eina sem við gátum gert var að þvo og spritta
hendur, halda okkur heima og hringja í okkar
nánustu á Zoom.
Í júní birti ritstjórn auglýsingu til lækna og
óskaði eftir frjálsum framlögum til útgáfu
blaðsins þar sem efnahagsástand landsins var
óvinveitt blaðaútgáfu í kjölfar COVID-19
faraldurs. Með þessum frjálsu framlögum
tókst að safna rúmlega 350.000 krónum og
erum við í ritstjórninni ævinlega þakklát
þeim læknum sem styrktu útgáfuna. Við
viljum einnig þakka þriðja árs nemunum
sem þrátt fyrir mikinn mótbyr náðu að safna
auglýsingum sem ásamt frjálsum framlögum
lækna dugðu til þess að gefa blaðið út. Einnig
viljum við þakka faglegu ritstjórninni fyrir að
vera okkur ætíð innan handar jafnt faglega
sem ófaglega.
Ef allt fer að óskum og heimurinn ferst
ekki mun þetta blað innihalda ritrýnt efni
og geta státað sig af því að vera fimm stiga
vísindatímarit. Það hlýst af því að yfirlits-
greinar og tilfelli eru lesin yfir af tveimur
sérfræðingum í þeirri sérgrein sem fjallað er
um. Höfundar yfirlitsgreina og tilfella eiga
skilið lof fyrir vandaða og faglega umfjöllun.
Áherslur blaðsins eru þó að þessu sinni á
það fallega og skemmtilega í læknisfræðinni
og því er blaðið stútfullt af skemmtilegu og
fróðlegu efni sem lesendur geta notað til þess
að stytta sér stundir.
Látum nú liðið vor sem vind í lægð um eyru
þjóta og horfum fram á bjartari tíma á nýju
skólaári, það getur allavega ekki orðið mikið
verra!
Arna Kristín, Birgitta, Bryndís, Eir, Rósa,
Sigríður Margrét, Sigrún, Valdimar Bersi,
Viktoría Mjöll og Þórdís Ylfa.
Ávarp ritstjórnar