Læknaneminn - 01.04.2020, Page 10
10
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
10
Sumarið 2019 hófst undir -
búningur fyrir 20. starfs ár
Ástráðs. Sett voru mark-
mið nýrrar stjórnar og
undir búningur fyrir fræðslu
annars árs nema hafinn.
Í byrjun haustannar var
Ástráðs vikan haldin í sam -
starfi við Læknadeild Háskóla Íslands. Í þeirri
viku fengu verðandi fræðarar fræðslu frá
hinum ýmsu fag aðilum um málefni sem varða
kyn heilbrigði. Ástráðsvikunni lauk svo með
fræðslu ferð út á land.
Aðalverkefni Ástráðs er að fræða alla fyrsta árs
nema í framhaldsskólum um kynheilbrigði.
Yfir starfsárið héldu annars árs læknanemar
yfir 160 fyrirlestra í framhaldsskólum
landsins. Auk þess fluttu þriðja árs lækna-
nemar 16 fyrirlestra í grunnskólum og
félagsmiðstöðvum.
Yfir starfsárið var stefnt að því að hafa tvö
fræðslu- og skemmtikvöld fyrir lækna-
nema sem bera nafnið KYNHVÖT. KYN -
HVÖT 1 var haldin í heimahúsi og fengum
við BDSM Ísland til þess að vera með fræðslu
um BDSM-hneigð og starfsemi félagsins.
Þetta heppnaðist mjög vel og var fyrirlesturinn
gríðarlega fræðandi og skemmtilegur. Þegar
þetta er skrifað er óljóst hvernig mun fara
með KYNHVÖT 2 vegna COVID-19
faraldursins.
Eitt af markmiðum stjórnar þessa árs var
að efla alþjóðasamstarf. Í mars tók Ástráður
þátt í March Meeting alþjóðlegra samtaka
læknanema, IFMSA, í Rúanda. Einnig var
stefnt að þátttöku á ráðstefnu The Northern
European Conference on Sexuality Education
Projects (NECSE) í Þýskalandi í apríl en
henni var frestað vegna COVID-19.
Almennur félagsfundur var haldinn í október
þar sem þörf var á að koma mikilvægum
lagabreytingum í gegn. Nýtt útlit á fyrirlestri
Ástráðs var kynntur á fundinum en Hera
Björg, meðstjórnandi á 3. ári, hafði unnið
hörðum höndum yfir sumarið við að breyta
útlitinu og erum við hæstánægð með
útkomuna. Við fengum teiknarann Öldu Lilju
til að gera myndir fyrir fyrirlesturinn og einnig
fyrir Instagramsíðu Ástráðs. Á þessu starfsári
hefur gengið mjög vel með Instagramsíðu
Ástráðs en nú í lok starfsársins eru fylgjendur
fleiri en þúsund manns. Á vorönn hófum við
vikulega fræðslu á Instagram sem öll stjórnin
hefur tekið þátt í.
Framundan eru mörg spennandi og krefjandi
verkefni. RÚV núll stendur fyrir hlaðvarps-
þáttum um kynlíf og mun Ástráður aðstoða
um sjónarmenn þáttarins við að svara
heilbrigðis tengdum spurningum. Einnig á
Ást ráður stórafmæli í ár en í maí 2020 hefur
Ást ráður starfað í heil 20 ár. Stefnt er á að
halda upp á það í sumar.
Við í stjórn Ástráðs þökkum kærlega fyrir
okkur og óskum næstu stjórn góðs gengis
á nýju starfsári. Síðast en ekki síst viljum við
þakka öllum sem hafa komið að starfsemi
Ástráðs í ár - án ykkar væri félagið ekkert!
Ástráður
Snædís Inga Rúnarsdóttir
Formaður Ástráðs 2019-2020
Kristín Hulda Gísladóttir
Formaður Hugrúnar 2019-2020
Hugrún er geðfræðslufélag háskólanema sem
hefur það að markmiði að fræða ungt fólk
um geðheilsu, geðraskanir og úrræði í geð-
heilbrigðiskerfinu. Stærsta verkefni Hug rúnar
ár hvert er að ferðast um Ísland og halda fyrir-
lestra í framhaldsskólum um geðheilsu og
skyld málefni, endurgjaldslaust.
Í ár tóku 112 háskólanemar úr HÍ, HR og
HA þátt í starfsemi félagsins sem fræðarar í
sjálfboðaliða starfi. Félagið heimsótti langflesta
framhaldsskóla landsins áður en skólastarf var
fellt niður sökum COVID-19 faraldursins.
Þá hélt félagið einnig fyrirlestra í nokkrum
félagsmiðstöðvum og fyrir alla 9. bekki í
Hafnarfirði. Líkt og fyrri ár hlaut félagið
mikinn meðbyr frá nemendum, kennurum og
skólastjórnendum.
Í byrjun starfsárs var ákveðið að uppfæra vef-
síðu félagsins til að auka aðgengi almennings
að geðfræðslu (gedfraedsla.is). Síðan var
opnuð í apríl 2020 með bættum upplýsingum,
fleiri tungumálum og leiðbeiningum fyrir
foreldra um hvernig ræða megi geðheilsu
heima fyrir. Samhliða opnun fór félagið
í öflugt kynningarstarf til þess að vekja
athygli á síðunni. Heims óknum á síðuna
hefur fjölgað gífurlega í kjölfarið og von
er til þess að vef síðan muni auka vitneskju
ungs fólks um geð heilbrigðis mál, bæta
aðgengi aðfluttra Íslendinga að upplýsingum
og auka umræðu í samfélaginu og inni
á heimilum.
Sumarið 2019 stóð Hugrún fyrir árlegu
fjáröflunar bingói og hefur aldrei safnast
jafn há fjárhæð! Þá stóð félagið fyrir opnum
fræðslukvöldum í Háskóla Íslands haustið
2019 þar sem fram komu fagaðilar og
einstaklingar með reynslusögur. Félagið hélt
þrjá þjálfunardaga þar sem fræðurum var
kennt að flytja fyrirlestur félagsins. Í nóvember
2019 stóð Hugrún fyrir viðburðinum „Andleg
heilsa á tímum loftslagsbreytinga“ ásamt
Ungum umhverfissinnum, þar sem viðfangs-
efnið var áhrif loftslagsbreytinga á andlega
heilsu. Félagið hélt áfram að auka virkni
sína á samfélagsmiðlum og nýta Instagram
sem vettvang til að deila góðum ráðum fyrir
geðheilsuna.
Mikilvægi þess að ungt fólk fái fræðslu um
geðheilsu er gífurlegt og þeir háskólanemar
sem taka þátt í starfsemi Hugrúnar eiga mikið
hrós skilið fyrir þá samfélagslegu ábyrgð sem
þeir sýna með því að sinna fræðslu sem ætti
að vera á ábyrgð stjórnvalda að tryggja. Þökk
sé óeigingjörnu starfi þeirra mun félagið halda
áfram að dafna, auka umsvif sín og stuðla að
bættri geðheilsu íslenskra ungmenna.
Geðfræðslufélags háskólanema
Annáll Hugrúnar