Læknaneminn - 01.04.2020, Side 22
R
itr
ýn
t e
fn
i
2
2
Alexandra Aldís Heimisdóttir
Fimmta árs læknanemi 2019-2020
Steinunn Þórðardóttir
Öldrunarlæknir
Inngangur
Hér er fjallað um sjúkling sem leitaði á
bráða móttöku (BMT) Landspítala háskóla-
sjúkrahúss (LSH) í kjölfar innlagnar á spítala
erlendis vegna slappleika og ruglástands.
Framvindu sjúklingsins er fylgt eftir í tímaröð,
í legu sem og eftir útskrift. Þar á eftir er
fræðileg umræða um Wernicke heilakvilla,
faraldsfræði, helstu einkenni, greiningu og
meðferð.
Tilfelli
Saga núverandi veikinda
61 árs gamall maður með sögu um áfengissýki
og háþrýsting leitaði á BMT í desember 2018
í kjölfar veikinda erlendis þar sem hann var þá
búsettur. Hann hafði legið á spítala þar í landi
í þrjá daga eftir hugsanlegt fall og hafði verið
fluttur þangað ölvaður og óáttaður. Bróðir
hans flaug þá út til hans er hann hafði nýlega
verið lagður inn á spítala. Var hann í þeirri
legu greindur með lifrarbólgu, langvinna
bris bólgu og lang vinnan æða sjúkdóm í heila.
Hann var settur m.a. á þíamín töflur í lágum
(óþekktum) skömmtum og útskrifaður. Þeir
bræður flugu til Íslands og leituðu beint á
BMT hérlendis. Við komu á BMT mundi
maðurinn ekki eftir atburðum síðustu daga og
var óáttaður á stað og stund.
Kerfakönnun
Kerfakönnun var að mestu leyti neikvæð. Ekki
sviði við þvaglát eða tíð þvaglát en dræmur
útskilnaður síðustu sólarhringa. Samkvæmt
ættingjum voru ekki merki um vitræna
skerðingu áður en hann flutti til útlanda
haustið 2018. Ekki fékkst næringarsaga eða
nákvæmari saga um inntöku áfengis.
Fyrra heilsufar
1. Háþrýstingur.
2. Áfengissýki.
3. Brisbólga fyrir 15-20 árum.
Lyf við komu
Engin.
Ofnæmi
Ekki þekkt.
Venjur
Misnotkun áfengis í meira en 30 ár. Neitaði
reykingum og notkun annarra vímuefna.
Félagssaga
Einhleypur og barnlaus. Leigði herbergi í
íbúð með öðrum.
Skoðun
Lífsmörk: Blóðþrýstingur 92/64 mmHg,
önnur lífsmörk eðlileg.
Almennt: Óáttaður á stað og stund, virtist
slappur og gaf ekki góða sögu. Taldi sig vera í
erlendri borg og að það væri fimmtudagurinn
6. júní 2010. Ekki bráðveikindalegur.
Höfuð og háls: Ekki þreifuðust eitlastækkanir
á hálsi. Átti erfitt með að halda höfði uppréttu.
Brjóstkassi: S1 og S2 greindust án auka- og
óhljóða. Reglulegur taktur. Lungu hrein og
jöfn við hlustun.
Kviður: Mjúkur og eymslalaus. Garnahljóð
heyrðust. Ekki þreifuðust fyrirferðir.
Heilataugar: Lárétt augntin (nystagmus),
virðist vera beggja vegna en erfitt að meta
vegna ástands sjúklings og einnig erfitt að
meta stefnu augntins. Augnhreyfingar að
öðru leyti eðlilegar. Ljósop brugðust jafnt og
eðlilega við ljósi beint og óbeint. Eðlilegt skyn
í andliti og andlitshreyfingar symmetrískar.
Eðlilegir og symmetrískir vöðvakraftar við að
líta yfir öxl og yppa öxlum gegn viðnámi.
Útlimir: Potbjúgur ++ á sköflungum. Radialis
púlsar þreifuðust samhverfir, reglulegir og
kröftugir.
Fínlegur skjálfti sást í höndum. Kraftar í
griplimum voru symmetrískir og gróft metnir
eðlilegir. Erfitt að meta krafta í ganglimum
þar sem sjúklingur fann til við að hreyfa þá, en
virtust þó eðlilegir. Ekki fengust upplýsingar
um skyn eða reflexa.
Samhæfing: Fínhreyfingar handa eðlilegar.
Fingur-nef próf eðlilegt, en hæl-hné próf ekki
framkvæmt vegna verkja. Sjúklingur gekk
gleiðspora með stuðningi.
Uppvinnsla og meðferð
á bráðamóttöku
Blóðprufur sýndu töluverða hækkun á
gamma-GT, lækkun á albúmíni, hækkun
á kreatín íni og vægar rafvakabrenglanir en
Wernicke-Korsakoff
heilkenni
Tilfelli af öldrunarlækningadeild