Læknaneminn - 01.04.2020, Side 46
R
itr
ýn
t e
fn
i
4
6
implantation) samhliða brottnámi völundar-
húss ef um afgerandi tvíhliða heyrnar-
skerðingu er að ræða.43
Andarmígreni (vestibular migraine)
Andarmígreni er ein af algengustu röskunum
jafnvægiskerfisins og hrjáir allt að 1%
almennings. Sjúkdómurinn felur í sér köst
af einkennum frá jafnvægiskerfinu ásamt
einkennum mígrenis. Önnur einkenni sem
geta fylgt eru skammvinn heyrnareinkenni,
ógleði, uppköst, örmögnun og næmi fyrir
ferðaveiki.51 Köstin geta varað frá nokkrum
sekúndum til nokkurra daga. Einkenni frá
jafnvægiskerfi geta komið á sama tíma og
mígrenishöfuðverkur. Andarmígreni getur
einnig verið framkallað af sömu kveikjum og
mígreni, svo sem tíðablæðingum, svefnóreglu,
andlegu og líkamlegu álagi og fleiru.52
Ákveðin einkenni völundarsvima, það er
heyrnartap, eyrnasuð og þrýstingur í eyra,
geta fylgt andarmígreni. Einnig geta einkenni
mígrenis komið fram í köstum völundarsvima,
og því getur verið erfitt að greina á milli
andarmígrenis og völundarsvima. Ef
greiningarskilmerki völundarsvima eru
uppfyllt, sérstaklega heyrnarleysi með
heyrnarmælingu, þá skal einstaklingurinn
greindur með þann sjúkdóm.51
Meinmyndun andarmígrenis er ekki að fullu
þekkt en er líklega að einhverju leyti tengd
mein myndun völundarsvima.53 Sjúkdóm urinn
er álitinn undirtegund af höfuðverkja mígreni
með birtingarmynd röskunar í jafnvægis-
kerfinu. Þetta er talið gerast vegna þátta í
heilanum sem jafnvægis kerfið á sam eiginlegt
með ferlum sem taldir eru koma við sögu í
meinmyndun höfuðverkja mígrenis.52 Rann-
sóknir þar sem notast er við segulómmyndir
af höfði hafa skoðað virkni sameiginlegra
jafnvægis- og sársaukaboðferla frá heilastofni
til svæða í heilaberki. Fyrri rannsóknir
höfðu þegar sýnt fram á aukna virkni í
stúku sjúklinga með andarmígreni á meðan
jafnvægis kerfi þeirra var áreitt. Ein kenning
segir að meinmyndun andarmígrenis stafi af
vanmótun stúku- og barkarsvæða heilans. Þau
svæði sinna úrvinnslu á bæði sársaukaboðum
og boðum frá jafnvægiskerfi.54
Árið 2012 voru gefin út greiningarskilmerki
til notkunar við greiningu sjúkdómsins (tafla
II), en fyrir þann tíma hafði vantað alþjóðlega
viðurkennda skilgreiningu.51
Ekki eru til nein klínísk próf til greiningar
andarmígrenis. Líkamsskoðun er yfirleitt
eðlileg á milli kasta en það sem getur sést í
sjúkdómskasti er sjálfsprottið, höfuðhristings-
(headshaking) og stöðubundið (positional)
augntin sem sést með Frenzel gleraugum
eða augntins hreyfimynda ritun. Augntinið
getur sam ræmst annað hvort miðlægum
eða útlægum orsökum.55 Það er þó ekki
nógu sértækt teikn til þess að vera hluti af
greiningar skilmerkjum.51
Meðferðarmöguleikar í boði fyrir sjúklinga
með andarmígreni eru forvörn gegn kveikjum,
lyfjameðferð, sjúkraþjálfun og með höndlun
fylgi kvilla. Ekki eru til gagn reyndar niður-
stöður rannsókna sem styðja ákveðna
meðferð. Byggir meðferðin því á reynslu
meðferðar aðila og hefbundinni meðferð við
mígrenis höfuðverk. Fyrsta skref í með ferð
skal alltaf vera að forðast kveikjur. Næsta
skref er lyfjameðferð, annað hvort fyrir-
byggjandi eða einkennameðferð. Sömu lyf
eru notuð í fyrirbyggjandi tilgangi eins og í
mígrenishöfuðverk. Það eru beta blokkar,
þunglyndislyf (þríhyrningslaga þunglyndislyf
eða sértækir serótónín endurupptökuhemlar),
kalsíum ganga blokkar, flogaveikilyf og
kolsýru anhýdrasa hemlar. Einkennameðferð
við svima í andarmígreni er svipuð og notuð
er í bráðu andarheilkenni. Rannsóknir
hafa sýnt fram á að sjúkraþjálfun hjálpar í
meðferð jafnvægis leysis hjá sjúklingum með
andarmígreni en hafa skal í huga að það voru
ekki slembistýrðar rannsóknir.52
Rof á efri bogagöngum (Superior
semicircular canal dehiscence, SSCD)
Rof á efri bogagöngum er sjaldgæf orsök
svima sem fyrst var lýst af Minor et al. árið
1998.56 Það er heilkenni sem saman stendur
af einkennum og teiknum frá jafnvægis kerfi
sem koma fram þegar hljóð- eða þrýstings-
breytingar verða í miðeyra. Meðal einkenna
sem geta komið fram eru svimi, langvinnt
jafnvægisleysi og sveiflusýni (oscillopsia) með
láréttu snúningsaugntini í sama plani og efri
bogagöng. Heyrnareinkenni sem geta komið
fram eru meðal annars leiðniheyrnartap,57
sjálfheyrn (autophony), ofnæm heyrn með
beinleiðni (bone-conduction hyperacusia) á
heyrnarmælingu, púlserandi suð, hljóðfælni
og þrýstingstilfinning í eyra.58
Orsök sjúkdómsins er þynning eða algjör
eyðing þess hluta gagnaugabeins sem liggur
yfir efri bogarás eyrans.57 Þetta op hefur verið
kallað þriðji gluggi beinvölundarhússins.
Ríkjandi kenning um tilkomu einkenna í
heilkenninu segir að við þrýstingsbreytingar
í miðeyra verði aukin hreyfing á innanvessa
efri bogarásar vegna aukins rýmis í rásinni
þegar himna hennar bungar út um opið á
beininu. Þá er talið að við þetta verði hreyfing
á biðu bogarásarinnar og þar með örvun
hárskynfruma í hvolfi hennar.59 Ekki er vitað
hver er undirliggjandi orsök rofsins, hvort
það sé meðfætt eða áunnið með til dæmis
höfuðhöggi. Talið er að blanda þessara þátta
geti komið til.57, 58
Grunur vaknar um rof á efri bogagöngum þegar
fram kemur saga um bæði heyrnareinkenni
og svima sem framkallaður er af háum
hljóðum eða þrýstingsbreytingum. Næsta
skref er þá að framkvæma heyrnarmælingu.
Á henni geta komið fram breytilegar niður-
stöður milli sjúklinga. Það sem helst styður
greiningu sjúkdómsins er lágtíðni leiðni-
heyrnartap ásamt ofnæmri heyrn með bein-
leiðni á sama tíma og heyrnarviðbrögð
(acoustic reflexes) eru eðlileg. VEMP próf er
mjög gagnlegt til skimunar ef grunur vaknar
um sjúkdóminn. Með því er hægt að greina
Tafla II. Greiningarskilmerki andarmígrenis.51
Andarmígreni
• Að minnsta kosti fimm svimaköst af meðal eða miklum styrkleika sem vara í 5 mínútur til 72 klukkustunda.
• Núverandi eða fyrri saga um mígreni með eða án áru samkvæmt alþjóðlegri flokkun höfuðverkja (ICHD).
• Einn eða fleiri af þáttum mígrenis fylgja að minnsta kosti helmingi andarmígreniskasta:
1. Höfuðverkur með að minnsta kosti tvö af eftirfarandi sérkennum: staðsett á annarri hlið höfuðs, púlserandi,
meðal eða mikill sársauki, eykst við líkamsáreynslu.
2. Ljós- eða hljóðfælni.
3. Sýnarflogboði (visual aura).
• Ekki betur útskýrð af annarri jafnvægiskerfis – eða ICHD greiningu.
Líklegt
andarmígreni
• Að minnsta kosti fimm svimaköst af meðal- eða miklum styrkleika sem vara í 5 mínútur til 72 klukkustunda.
• Aðeins annað af skilmerkjum tvö og þrjú fyrir andarmígreni eru uppfyllt (saga um mígreni eða þættir mígrenis
meðan á köstum stendur).
• Ekki betur útskýrt af annarri jafnvægiskerfis- eða ICHD greiningu.