Læknaneminn - 01.04.2020, Page 51

Læknaneminn - 01.04.2020, Page 51
R itr ýn t ef ni Fr óð le ik ur 5 1 nema sem kallast Federation of International Nordic Student’s Associations (FINO). Norður löndin skiptast á að halda árlega ráðstefnu og nú síðast var ráðstefnan haldin á Íslandi með miklum glæsibrag. Læknanemar hafa líka verið duglegir að láta í sér heyra með umfangsmikilli útgáfu- starfsemi. Fyrsta ritið kom út árið 1940 og hét Læknisneminn. Blaðið var 12 síður og prentað í 100 eintökum. Næsti árgangur kom út 1946 og hét þá Læknaneminn. Útgáfan tók mikinn kipp á sjötta áratugnum og komu þá út allt að 3-4 tölublöð á ári.7 Síðan hefur blaðið komið út árlega með nokkrum hléum. Blaðið sem þú, lesandi góður, hefur í höndunum er 71. árgangur. Viðfangsefni Lækna nemans eru fjölbreytt og spanna fræði greinar, reynslusögur, skemmtiefni og allt sem læknanemum liggur á hjarta. Blöðin eru öll varðveitt af Félagi læknanema og eru mikill fjársjóður. Til að mynda getur þar að líta fjölskrúðugar myndir af sérfræðingum á sínum yngri árum með fyrirsögnum á borð við „Líf og lekandi í Læknadeild“. Þó leynist þar einnig grátbroslegt efni sem hefur illa staðist tímans tönn, samanber starfsauglýsingu fyrir eiginkonur eða unnustur læknanema árið 1970 (mynd 1).8 Auk Læknanemans var um árabil gefið út fréttablaðið Meinvörp sem hafði léttara yfirbragð og innihélt alls kyns gamanefni. Þá má ekki gleyma símaskrá lækna nema sem var gefin út undir heitinu Símphysis, lengi vel með undirheitinu Lækna- börn og nokkrir vinir þeirra (mynd 2). Útgáfa Meinvarpa og Símphysis lagðist af rétt eftir aldamótin 2000. Kennsluháttum við Læknadeild hefur fleygt fram og eðli málsins samkvæmt þarf sífellt að aðlaga námið. Læknanemar hafa ekki látið sitt eftir liggja þegar kemur að kennslumálum en hafa þó á köflum þurft að sýna mikla biðlund. Þar má nefna að árið 1994 var haldin kennslumálaráðstefna FL þar sem farið var yfir nýtt kennslufyrirkomulag. Ein af kröfum nemenda var að ólífræn efnafræði yrði tekin af kennslu skránni enda væri hún kennd í framhalds skólum.9 Þessi breyting fór loks í gegn árið 2017 við mikinn fögnuð nemenda, aldarfjórðungi seinna. Auk breytinga á náms- skránni hafa læknanemar einnig barist fyrir fjöl breyttari kennslu háttum og bættri les- aðstöðu svo dæmi séu nefnd. Hefð hefur verið fyrir því að glósur gangi milli árganga og á fyrri árum átti Félag læknanema umfangs- mikið glósusafn. Þá hafði félagið einnig fest kaup á tveimur ljósritunarvélum sem þótti mikið framfaraskref. Glósurnar hafa nú færst yfir á rafrænt form og undirrituð veit ekki hvar umræddar ljósritunarvélar eru niður komnar. Ein stærsta breyting síðustu ára var þegar skipt var úr “numerus clausus” og tekið upp inntökupróf árið 2003. Á þeim tíma voru 36 námspláss við Læknadeild en þeim hefur síðan fjölgað jafnt og þétt og nú hefur verið samþykkt að taka inn 60 nema haustið 2020. Samfara þessu stendur jafnframt yfir heildræn endurskoðun á læknanáminu. Auk þess að berjast fyrir umbótum í kennslu- málum hafa læknanemar skipulagt eigin kennslu í ýmsum greinum. Klínískir nemar miðla kunnáttu í blóðtökum, saumskap og öðrum læknis verkum til yngri nema sem vilja ólmir stíga inn fyrir dyr spítalans. Þá hefur einnig verið skipulögð fræðsla fyrir aðra hópa en félögin Ástráður, Bjargráður og Hugrún fara í framhaldsskóla, grunnskóla og víðar og sinna forvörnum og lýðheilsu. Upphaf þessa starfs má rekja til ársins 1998 þegar stofnað var félag um forvarnarstarf lækna- nema að norrænni fyrir mynd.10 Starfsemin hófst í núverandi mynd haustið 2000 með forvarnar fyrirlestrum í framhaldsskólum. Félagið hlaut síðar nafnið Ástráður og mark- mið þess eru að stuðla að kyn heilbrigði og fækka kyn sjúkdómum og ótímabærum þungunum. Skyndihjálpar félagið Bjargráður var stofnaður 2013 og kennir skyndi hjálp með megin áherslu á endur lífgun. Þá var geðfræðslu félagið Hugrún stofnað 2016 af lækna nemum, hjúkrunar nemum og sálfræði nemum og sinnir það fræðslu um geðheilbrigði og geð sjúkdóma. Einnig eru starfandi Lýðheilsufélag lækna nema, stofnað 2006,5 sem skipu- leggur Bangsaspítalann og ýmis málþing og vorið 2019 bættist við félagið Friðrún sem hefur það markmið að efla áhuga og þekkingu á mann réttindum, friði og tengdum málefnum. Nú hafa verið rakin í stuttu máli hlutverk Félags læknanema og samstarfsfélaga auk elju semi læknanema á alþjóðavettvangi, í kennslu málum og við útgáfu. Þá er ótalið skemmtanahald sem er eins og áður segir stór grein innan læknanámsins og á sér merka sögu. Hin fyrsta svokalla vísindaferð FL var haldin árið 1955. Ónefndur prófessor við Lækna deild var fararstjóri og var ekið á Kópavogshælið, þaðan til Vífilsstaða, síðan að Reykjalundi og loks að Keldum. Í Stúdentablaðinu árið 1957 segir svo frá þessari merkilegu ferð: “Kastað var kveðjum á fyrirmenn, hús, fólk og fénaður skoðað af vísindalegum áhuga og víða þegnar góðgerðir”.11 Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og nú er farið í vísindaferðir nær alla föstudaga, þá eru iðulega þegnar „góðgerðir“ hvar sem við komum. Auk þess er farið í nýnemaferð, haldin árshátíð, skíðaferð og fleiri viðburðir. Það er ljóst að læknanemar slá hvergi slöku við og eru einstaklega framtakssamur hópur. Húrra fyrir því, kæru læknanemar og fyrrverandi læknanemar! Mynd 2. Símaskrá Félags læknanema sem kom út undir heitinu Símphysis / Símfýsis. Mynd 3. Læknaneminn frá árunum 1963, 1970. 1974 og 1995.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.