Læknaneminn - 01.04.2020, Qupperneq 108
S
ke
m
m
ti
e
fn
i
o
g
p
is
tl
a
r
10
8
Kennsluverðlaun
Handhafar kennsluverðlauna FL 2020
voru þeir Bjarni Agnar Agnarsson og
Jón Gunnlaugur Jónasson prófessorar
í meina fræði. Þeir hljóta verðlaunin fyrir
framúr skarandi kennslu og nýbreytni
í kennsluháttum með innleiðingu staf-
rænna lausna og vendikennslu.
Síðast liðin ár sáu þeir til þess að öll
meinafræði sýni yrðu rafræn og tóku upp
stutt kennslu myndbönd svo nemar geti
rifjað upp sýnin hvar og hvenær sem er.
Lækna nemar eru mjög þakklátir fyrir að
kennsla í Læknadeild sé að færast frekar
inn á 21. öldina og hvetjum við fleiri
kennara til þess að taka þá Bjarna Agnar
og Jón Gunnlaug sér til fyrirmyndar.
Fyrri handhafar
kennsluverðlauna:
2019 Elsa Björk Valsdóttir, skurðlæknisfræði og
færnibúðir
2018 Geir Tryggvason, háls-, nef- og
eyrnasjúkdómafræði
2017 Ingibjörg Hilmarsdóttir, sýklafræði
2016 Sigrún Helga Lund, líftölfræði
2015 Elías Ólafsson, taugalæknisfræði
2014 Sigurður Guðmundsson og Bryndís
Sigurðardóttir, smitsjúkdómafræði
2013 Halldór Jónsson jr,
bæklunarskurðlækningar
2012 Magnús Karl Magnússon, lyfja- og
eiturefnafræði
2011 Tómas Guðbjartsson, skurðlæknisfræði
2010 Karl Andersen, lyflæknisfræði
2009 Gísli H. Sigurðsson, svæfingarlæknisfræði
2008 Eiríkur Steingrímsson, lífefna- og
sameindalíffræði
2007 Finnbogi Jakobsson, taugasjúkdómafræði
2006 Halldór Jónsson jr,
bæklunarskurðlækningar
2005 Ásgeir Haraldsson og Þröstur Laxdal,
barnalæknisfræði
2004 Jóhannes Björnsson, líffærameinafræði
2003 Þóra Steingrímsdóttir, fæðinga- og
kvensjúkdómafræði og Haukur Hjaltason,
taugasjúkdómafræði
2002 Engilbert Sigurðsson, geðlæknisfræði
2001 Ella Kolbrún Kristinsdóttir, líffærafræði
2000 Ásbjörn Jónsson og Pétur Hörður
Hannesson, myndgreining
1999 Hannes Petersen, háls-, nef- og
eyrnasjúkdómafræði
1998 Finnbogi Jakobsson, taugasjúkdómafræði
Kennsluverðlaun 2020
Félag læknanema hefur frá árinu 1995 veitt kennsluverðlaun til einstaklinga sem skarað hafa fram úr í
kennslu læknanema. Hefð er fyrir því að verðlaunin séu veitt á árshátíð læknanema og er þá handhöfum
jafnframt boðið á árshátíðina þar sem þeir taka á móti viðurkenningarskjali og lófataki frá þakklátum
nemendum. Í ár var þó annar háttur á verðlaunaafhendingu þar sem árshátíðin var blásin af vegna
kórónaveiru. Verðlaunin voru því veitt í maí 2020 og tilkynnt á Facebook síðu Félags læknanema.
Að jafnaði eru veitt kennsluverðlaun til þeirra kennara læknadeildar sem hafa sýnt sérstaka nýbreytni
í kennsluháttum og einnig eru veitt verðlaun þeim deildarlækni sem af gjafmildi hefur veitt klínískum
læknanemum mikla og góða leiðsögn. Fleiri verðlaun hafa einnig verið veitt til einstaklinga er koma að
kennslu og lífi læknanema og verða þau rakin hér á eftir.
Jón Gunnlaugur Jónasson og Bjarni Agnar Agnarsson prófessorar í meinafræði og handhafar kennsluverðlauna
2020 ásamt meðlimum í stjórn FL; Kristín Haraldsdóttir, Teitur Ari Theodórsson, Ingi Pétursson, Daníel Pálsson
og Sólveig Bjarnadóttir