Læknaneminn - 01.04.2020, Page 118

Læknaneminn - 01.04.2020, Page 118
S ke m m ti e fn i o g p is tl a r 11 8 Bjarki Sigurðsson, Kjartan Þórsson og Jónas Bjartur Kjartansson Kandídatar 2019-2020 Eftir tæp 6 ár af löngu og ströngu námi við læknadeild vorum við orðnir þreyttir á sömu rútínunni, sömu 2 fyrir 1 tilboðunum, löngum dögum á Háskólatorgi, stökum vöktum þegar maður ætti að slappa af heima og síðast en ekki síst, matnum á LSH Bistro. Við sáum okkur því leik á borði og ákváðum að nú skyldi hrist upp í tilverunni. Valtímabilið nálgaðist og höfðum við allir fengið það metið þannig að leiðin var greið fyrir allskonar ævintýri. Við ákváðum að nú skyldi haldið utan landsteina, nánar tiltekið, langt í burt. Við byrjuðum að bera saman bækur okkar: Hvaða gildi vildum við að landið helga skyldi bjóða upp á? Margt fór okkar á milli en bar þar helst að nefna ódýran bjór, góðan mat, fallegar hvítar strendur, trópíkalska veðráttu, tungumál sem við allir mælum, sterka menningu og öðruvísi sjúkratilfelli. Danmörk, hugsar víst lesandi góður glottandi, en það er heldur fjarri því einungis einn staður uppfyllti framangreind skilmerki, Jamaíka. Jamaíka er eyríki í Karabíska hafinu, tífalt minna að flatarmáli en tífalt fjölmennara en okkar ylhýra. Jamaíka er mekka reggae tónlistar og frjálsra íþrótta og hefur að geyma einstaka menningu, ódýran bjór og fallegar strendur. Eftir langt og strangt umsóknarferli og skrifræði tókst að landa samning við Háskóla Vestur-Indíu. Leiðin var greið, Jamaíka beið oss. Jónas og Bjarki fengu stöðu á bráðamóttöku Háskólasjúkrahúss Vestur- Indíu (UWI Hospital) og Kjartan á svæfingu og gjörgæslu á hinum alræmda Ríkisspítala Kingston (KPH). Læknisfræðilega er Jamaíka einstakt fyrir þær sakir að þar er sigðkornablóðleysi algengt og hefur Jamaíka verið framarlega í rannsóknum á því sviði. Skotvopnaáverkar eru daglegt brauð og herjaði faraldur beinbrunasóttar (Dengue Fever) á landið og gerir enn. Fyrstu tveimur vikunum var varið á fögru strandhóteli á norðanverðri eyjunni með öl- kollu í annarri og bók í hinni. Eftir um eina viku á þessum fagra stað þar sem grillað var ofan í okkur á ströndinni og veigarnar flæddu, áttuðum við okkur á því að þar ríkti neyðarástand (state of emergency) vegna átaka glæpagengja sem þar réðu ríkjum og var okkur því ráðlagt að halda okkur innan ferðamannastaða. Við eignuðumst þar fjölda vina sem allir áttu það sameiginlegt að vilja selja okkur einhverskonar vímuefni, auk leigu bílstjórans Ken, sem hafði af okkur dagpeningana með háum leigubílataxta og vélabrögðum. Eftir dágóðan tíma af lestri og lærdómi á ströndinni vorum við tilbúnir að halda í leiðangur yfir skógi vaxna fjallgarða Jamaíku á lokaáfangastað okkar, Kingston. Kingston er höfuðborg Jamaíku og er upp- eldisstaður Bob Marley. Kingston er einnig með eina hæstu morðtíðni í heimi og í fjölda ára hefur þar ríkt óöld vegna átaka stríðandi pólitískra fylkinga auk stjórnleysis. Okkur var úthlutað íbúð á háskólagörðum á nokkuð öruggum stað. Blokkareiningin var girt af og vöktuð af okkar eigin öryggisvörðum og var innan víggirts háskólasvæðisins sem enn fremur var vaktað dag og nótt. Fyrsta kvöldið áttuðum við okkur á því að matarhefðir voru einstakar þar í landi. Höfðum við hugsað okkur gott til glóðarinnar og rölt á hinn marg- rómaða matsölustað Little Ceasar’s sem var innan svæðisins. Okkur rak í rogastans þegar við sáum tóman staðinn við hliðina á pakk- fullum Kentucky Fried Chicken með röð út úr dyrum sem helst minnti á opnun Costco á Íslandi. Lífið á háskólagörðunum var ljúft. Á morgnana var það iðandi af uppáklæddum háskóla nemum og fólki að stunda hinar ýmsu frjálsu íþróttir hér og þar, seinni partinn hljómuðu trínidösk stáltrommu tónlist og dancehall reggae víðsvegar og á kvöldin Valtímabil á Jamaíka
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.