Læknaneminn - 01.04.2020, Side 132

Læknaneminn - 01.04.2020, Side 132
R an ns ók na rv er ke fn i þ rið ja á rs n em a 13 2 a hysterectomy. Uterine scar, usually after previous C-section or myomectomy, is considered the most important risk factor for uterine rupture. The aim of our study was to assess maternal and neonatal outcomes of uterine rupture and identify risk factors associated with adverse clinical outcomes. We also aimed to determine characteristics of uterine rupture in patients with a history of myomectomy. Methods: This was a retrospective study of all cases of uterine rupture diagnosed at Brigham and Women‘s Hospital, Massachusetts General Hospital and other Partners Hospitals between 2004 and 2018. Uterine rupture was defined as a complete tear through both myometrium and serosa during pregnancy or delivery. Medical records were reviewed for baseline demographics, labor characteristics and outcomes of uterine rupture. In addition to descriptive statistics, multivariable logistic regression analyses were used to estimate the association between prior uterine surgeries and adverse outcomes. Results: A total of 132 cases of uterine rupture were identified. There were 23 (17.4%) patients with an unscarred uterus while 108 (81.8%) had a scarred uterus. One patient had unknown obstetric history. Prior C-section was the cause of the uterine scar in 106 (80.3%) patients, 4 (3.0%) had a history of both C-section and myomectomy and 2 (1.5%) only had a history of myomectomy. There were 91 (68.9%) patients with one uterine scar, 14 (10.6%) with two and 4 (3.0%) with more than two scars. Most ruptures occurred during labor (111, 84.1%), while 21 (15.9%) presented before onset of labor. Of the 6 cases of uterine rupture after myomectomy, 2 occurred in the same patient with a prior hysteroscopic resection of a pedunculated fibroid, 2 patients had prior laparoscopic myomectomy and 2 had prior abdominal myomectomy. Severe outcomes included 17 (12.8%) hysterectomies, 39 (29.6%) blood transfusions, 8 (6.1%) fetal or neonatal deaths, 18 (13.6%) Apgar scores of lower than 5 at 5 minutes, 14 (10.6%) bladder or ureteral injuries and 5 (3.8%) reoperations. The mean estimated blood loss (EBL) was 1598±1765 mL, and 35 (26.5%) patients had EBL greater than 1500 mL. Rupture of a scarred uterus was associated with decreased risk of transfusion (OR 0.35, 95% CI 0.14-0.89) and hysterectomy (OR 0.20, 95% CI 0.06-0.73) compared with an unscarred uterus. Conclusion: The majority of the patients had a scarred uterus, most commonly after a C-section. Adverse outcomes occurred in 59 (44.7%) cases, but prior uterine surgery was associated with decreased risk of transfusion and hysterectomy. This may indicate a delay in diagnosis of unscarred uterine rupture due to limited suspicion, highlighting the need for early diagnosis and intervention. Notkun ósæðardælu (IABP) við kransæðahjáveituaðgerðir Sunna Lu Xi Gunnarsdóttir1, Martin Ingi Sigurðsson1,2, Tómas Guðbjartsson1,3 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Svæfinga­ og gjörgæsludeild Landspítala og 3Hjarta­ og lungnaskurðdeild Landspítala Inngangur: Ósæðardæla (e. intra-aortic balloon pump) er stundum notuð við hjartabilun í tengslum við kransæðahjáveituaðgerðir, en hún eykur blóðflæði um kransæðar í þanbili (e. diastole) ásamt því að auðvelda hjartanu að tæma sig. Áhrif dælunnar á horfur sjúklinga eru umdeild. Tilgangur þessarar rannsóknar var því að kanna hvernig sjúklingum sem hafa fengið ósæðardælu hefur vegnað, ásamt ábendingum og fjölda ísetninga. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn og náði til 2177 sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð á Landspítala á tímabilinu 2001-2018, en 99 (4,5%) þeirra fengu ósæðardælu og voru þeir bornir saman við 2078 sjúklinga í viðmiðunarhópi. Upplýsingar um sjúklinga fengust úr sjúkraskrám og voru skráðir minniháttar og alvarlegir fylgikvillar ásamt 30 daga dánartíðni. Sérstaklega var leitað að eftirfarandi langtíma fylgikvillum: hjartaáfall, heilablóðfall, þörf á endurhjáveituaðgerð, kransæðavíkkun með eða án stoðnets og dauða (e. major adverse cardiac and cerebrovascular event, MACCE). Langtímalifun og MACCE-frí lifun voru síðan áætlaðar með aðferð Kaplan-Meiers og sjálfstæðir forspárþættir lifunar fundnir með Cox aðhvarfsgreiningu. Miðgildi eftirfylgdar var 95,3 mánuðir og miðaðist við 31. desember 2018. Niðurstöður: Alls fengu um 4,5% sjúklinga ósæðardælu og var tíðnin hæst árin 2004-2006 (6,3%) en lægst 2001-2003 (3,0%). Hlutfall kvenna var hærra í ósæðardæluhópi (30,3% sbr. 17,2%, p=0,001) líkt og gildi EuroSCORE II (8,11 sbr. 2,17, p<0,001), auk þess sem þeir sjúklingar höfðu oftar áhættuþætti kransæðasjúkdóms og aðgerðar- og tangartími þeirra marktækt lengri. Tíðni minniháttar og alvarlegra fylgikvilla reyndist marktækt hærri í ósæðardæluhópi, sem og 30 daga dánartíðni (22,2% sbr. 1,3%, p<0,001). Heildarlifun fimm árum frá aðgerð reyndist marktækt síðri hjá sjúklingum í ósæðardæluhópi (56,4% sbr. 91,5%) líkt og 5-ára MACCE-frí lifun (46,9% sbr. 83,0%). Notkun ósæðardælu reyndist vera sjálfstæður áhættuþáttur fyrir dauða samkvæmt Cox fjölþáttagreiningu (HH=2,53; 95% ÖB: 1,57 – 4,06; p<0,001). Af þeim sem fengu ósæðardælu var 14,1% sem fékk fylgikvilla tengda henni og reyndust þeir helstu vera blæðing frá ísetningarstað, rof á helíumblöðru, blóðþurrð í neðri útlimum og blóðflögufæð. Ályktun: Notkun ósæðardælu eftir kransæðahjáveitu hefur minnkað síðastliðin ár. Eins og búast mátti við var tíðni fylgikvilla og 30 daga dánartíðni hærri hjá sjúklingum sem fengu ósæðardælu og langtíma lifun þeirra var síðri, líkt og sást fyrir MACCE-fría lifun. Kóagúlasa neikvæðir stafýlókokkar í liðum og beinum á Landspítala Teitur Ari Theodórsson Ágrip barst ekki. Erfðir og algengi járnskorts- blóðleysis á Íslandi Thelma Kristinsdóttir1, Magnús Karl Magnússon1,2, Anna Margrét Halldórsdóttir1,3, Sigrún Helga Lund2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Íslensk erfðagreining, 3Blóðbankinn Inngangur: Blóðleysi hrjáir um þriðjung heimsbyggðarinnar og er talið að járnskortur sé orsökin í um helmingi tilvika. Járnskortsblóðleysi er langvinnt og því fylgja gjarnan ósértæk einkenni en það leiðir til vangreiningar á sjúkdómnum. Aukin járnþörf er við vöxt ungra barna og unglinga og í tengslum við tíðablæðingar og meðgöngu kvenna. Þessir hópar eru því líklegri en aðrir til að þróa með sér járnskort. Til eru dæmi um arfgengt járnskortsblóðleysi en erfðir sjúkdómsins hafa þó lítið verið rannsakaðar. Markmið þessarar rannsóknar var að a) skoða algengi greinds járnskortsblóðleysis og föl- og smákornablóðleysis byggt á gagnagrunni Íslenskrar erfðagreiningar á blóðmælingum og að b) athuga hvort erfðabreytileikar tengdir járnsamvægi hefðu áhrif á tilurð járnskortsblóðleysis. Efniviður og aðferðir: Blóðmælingar og erfða- upplýsingar fengust úr gagnagrunni Íslenskrar erfða greiningar. Skilgreindar voru tvær svipgerðir, járnskorts blóðleysi og föl- og smákorna blóðleysi, og voru þær byggðar á alþjóðlegum viðmiðum. Við mat á algengi voru notaðar tölur frá Hagstofu Íslands yfir mannfjölda. Tilfella-viðmiða erfðarannsókn var framkvæmd, annars vegar á hópi einstaklinga sem höfðu greinst með járnskortsblóðleysi og hins vegar hópi einstaklinga sem höfðu greinst með föl- og smákornablóðleysi. Könnuð voru tengsl þessara sjúkdóma við 62 erfðabreytileika sem yfirstandandi rannsókn hjá Íslenskri erfðagreiningu hefur tengt við járnsamvægi. Niðurstöður: Af tæplega 4,4 milljónum mælinga voru 8.946 mælingar sem uppfylltu skilyrði járnskortsblóðleysis, 7.449 hjá konum og 1.497 hjá körlum. 90.047 mælingar uppfylltu skilyrði föl- og smákornablóðleysis, 57.332 hjá konum og 32.715 hjá körlum. Algengi greinds járnskortsblóðleysis jókst fyrir bæði kyn á tímabilinu 1995-2016. Aldursdreifing greininga sýndi að flestar konur greindust með járnskortsblóðleysi á aldrinum 15 til 47 ára. Jafnframt komu fram toppar um tveggja ára og 75 ára aldur sem einnig sáust hjá körlum en þar að auki kom fram toppur hjá körlum við 15 ára aldur. Í tilfellaviðmiðarannsókn á 62 erfðabreytileikum reyndust sex erfðabreytileikar hafa marktæk áhrif á tilurð járnskortsblóðleysis (DUOX2, F5, SLC11A2, HBS1L/MYB-milligenasvæði, TMPRSS6 og SLC25A37). Þessir erfðabreytileikar voru staðfestir í föl- og smákornablóðleysi en þar fundust sjö erfðabreytileikar til viðbótar sem höfðu marktæk áhrif. Einn af erfðabreytileikunum fylgdi víkjandi erfðamynstri (SLC11A2). Marktækur munur var á áhrifum milli kynja í einum erfðabreytileika fyrir járnskortsblóðleysi (F5) en tveimur fyrir föl- og smákornablóðleysi (DUOX2 og TMPRSS6). Ályktanir: Algengi greininga og aldursdreifing er í samræmi við það sem vitað er um járnskortsblóðleysi. Í tilfellaviðmiðarannsókn fundust sex nýir erfða- breytileikar sem höfðu marktæk áhrif á tilurð bæði járnskortsblóðleysis og föl- og smákornablóðleysis. Þessum erfðabreytileikum hefur ekki áður verið lýst í tengslum við járnskortsblóðleysi. Validation of a UPLC Method for Measuring Phenylalanine and Tyrosine in Dried Blood Spots Tómas Viðar Sverrisson1, Roy W. A. Peake2,3 1Faculty of Medicine, School of Health Sciences, University of Iceland, 2Department of Laboratory Medicine, Boston Children’s Hospital, 3Harvard Medical School Introduction: Inborn errors of metabolism (IEM) are a collective group of rare genetic disorders that have a high combined incidence and are associated with considerable morbidity. In the United States, many of these conditions are screened for at birth. Phenylketonuria (PKU) is the most common IEM and is characterized by an inability to metabolize the essential amino acid (AA) phenylalanine. PKU patients require lifelong monitoring of blood phenylalanine levels, which is usually performed by chromatographic analysis of plasma from venous blood. However, this represents a moderately invasive approach and often presents logistical challenges for patients living in geographically-isolated areas. Alternatively, a more convenient approach for PKU patients may be offered by collection of capillary whole blood onto filter paper at home, allowing sample transport to the laboratory by regular mail for AA analysis. This study sought to validate a previously published method for quantitative analysis of AAs in dried blood spots (DBS) using ultraperformance liquid chromatography (UPLC).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.