Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 16

Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 16
Stundaskrá s E 1 1 o 1 w n í/ 4 1 ! 1 i -0*4 'ujT endur sem eflir tengsl og góðan anda og kemur síðan til góða í kennslustund- um. Eg tel að aðaleinkenni þessarar vinnu sé að hún er ótakmörkuð, bæði hvað varðar tíma og inntak. Að vísu stendur í kjarasamningi okkar kennara að vinna við undirbúning kennslu skuli vera 1314 klst til viðbótar við þær 32Zi klst sem bundnar eru í viðveru á viku hverri. Ekki tíðkast það þó, þar sem ég þekki til, að framvísa reikningi fyrir yfirvinnu þótt undirbúningur eða vinna utan við- veru fari fram yfir tilskilinn tíma, þ.e. 13 !4 klst á viku. Kennari býr sig þvi undir kennslu, safnar gögnum og lítur eftir vinnu nem- enda o.s.frv. þegar aðrir eiga frí. Þessi kvöld- og helgavinna hefur í för með sér að kennaranum finnst að vinnudegi sé aldrei lokið. Ýmist er hann með hugann við atburði dagsins í skól- anum eða hann er að skipuleggja næsta dag í huganum. Þannig er vinnudag- urinn tvískiptur: Fyrst kennslan, síðan hvíldartími — sem nýtist þó ekki sem hvíld ef ekki tekst að hrekja starfið úr huganum — og loks kvöldvinnan, und- irbúningurinn. Álag sem fylgir hefðbund- inni stundatöflu Þegar unnið er eftir hefðbundinni stundatöflu er kennslan bundin í stutt, afmörkuð tímabil: 40 eða 80 mínútur með 5-10 mínútna hléum á milli. Á venjulegum vinnudegi kennara eru 6-7 slíkar einingar. Hléin notar kennarinn til að ná til samkennara, sinna nem- endum, nálgast hjálpargögn og tæki, ganga frá í stofunni eða taka til fyrir næsta tíma. Þetta gerist í mikilli tíma- þröng þar sem kennari þarf að vera mættur til að taka á móti nemendum sínum í hvert skipti sem bjallan hringir. Taktur hvers tíma er á ytra borði hinn sami: það þarf að skapa ró í bekknum, gefa fyrirmæli, sjá til þess að nemendur takist á við verkefni og ljúki þeim áður en tíminn er úti, ganga frá í stofunni fyrir næsta tíma o.s.frv. Slíkt kerfi er ákaflega viðkvæmt fyrir truflun og meira eða minna óvæntum viðburðum sem eru þó fylgifiskar skóla- starfsins. Nægir að nefna heimsóknir hjúkrunarkonu og kallkerfið. Flestir kannast við að hafa einhvern tíma sagt: Tíminn fór til ónýtis. Einnig verður að hafa í huga að kenn- arinn er sá eini sem fyrirfram er ráðinn í því að vinna tiltekið verkefni í tíma. Það er svo m.a. hlutverk hans að vekja áhuga nemenda á viðfangsefninu og sannfæra þá um að rétt sé að vinna það í umræddum tíma. Atburður, sem kennarinn telur truflandi, er því nem- endum oft kærkomin tilbreyting. Því oftar sem kennari skiptir um nemendahóp þeim mun meiri orka fer í kapphlaup við tímann og baráttu við hið ytra form (aga, vinnufrið) og því minni orku og tíma hefur harin afgangs til að sinna hinu innra starfi og mynda góð tengsl við nemendur. Misjafnt vinnuálag Kennarar vinna ákaflega mismikið utan kennslustunda. Fer það m.a. eftir því hvernig kennslu þeirra er háttað, hvort þeir kenna mörgum bekkjum eina grein eða fáum bekkjum margar greinar, hvort þeir hafa tvo bekki í umsjón eða einn. Bæði álag og vinna eykst eftir því sem fleiri nemendur eru í hverri bekkj- ardeild. Ennfremur búa skólar við mis- jafnlega mikil vandamál eftir hverfum. Vinnan er einnig mismikil eftir því hvort um er að ræða bóklega kennslu eða verklega. Umsjón með stofu, þar sem fram fer verkleg kennsla, krefst mikillar vinnu. Kennsla, sem byggð er á því að nemendur vinni mikið sjálfstætt og noti mörg hjálpargögn, krefst líka ómældrar vinnu eigi allt að vera í góðu lagi. Ég hef ástæðu til þess að ætla að nýbreytni í kennsluháttum fylgi að jafn- aði meiri vinna en hefðbundinni kennslu. Það vantar þó athugun á slíku og all- an samanburð. Eðlilegt væri að kennarar fengju launagreiðslur í samræmi við þá vinnu sem þeir leggja af mörkum umfram 453/í klst á viku. Svo er þó ekki heldur virðist nánast hefð að kennarar ljúki allri vinnu, sem starfi þeirra fylgir, án þess að leiða hugann að því hvort vinnu- framlag sé í samræmi við það sem um er samið í kjarasamningum. Kennarar líkjast í þessu meira verktökum en laun- þegum. Þeir taka að sér að kenna ákveðna grein eða sjá um tiltekinn hóp nemenda og síðan er ekki rcett meira um tíma eða laun íþvísamhandi. Vegna þess að vinnan er unnin að hluta um kvöld og helgar, og rennur þannig saman við frítímann, er mörgum ekki ljóst hve marga tíma þeir vinna í raun og veru á viku. 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.