Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 23

Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 23
Lítum á nokkur svör kennara við spurn- ingum um agavandamál: Kona: Kennarar fá á sig stimpil vegna agavandamála. Ég hef verið stimpluð. Karl: Álitshnekkir? Jú, það er alveg rétt. Það er ekki útilokað. Karl: Ég hafði áhyggjur af orðstír mín- um fyrsta árið sem ég kenndi hérna. Kona: Hér er ekki litið niður á fólk sem glímir við agavandamál. Kona: Kvarti kennarar inni á kennara- stofu þá hættir hinum kennurunum til að álíta þá ómögulega. Kona: Ég geri ráð fyrir að langflestir séu þannig gerðir að þeir eigi ákaflega erfitt með að viðurkenna að þeir ráði ekki við kennsluna. Kona: Mér þœtti betra að menn ræddu vandamál sín. Kannski reyna þeir að breiða yfir þau svo að allt sýnist slétt og fellt. Við vitum mætavel að hjá sumum er allt upp í loft þótt aldrei sé rætt um það. Kona: Ég hef það mikla reynslu að ég þarf næstum aldrei að leita til annarra. Kona: Ég tel mig ekki eiga við nein vandamál að stríða. Ef þau kæmu upp þá myndi ég ekki tala um þau við neinn kennaranna. Mér hefur reynst best að leysa málin á eigin spýtur á þessum 10 árum í kennslustarfinu. Kona: Ég myndi ekki rœða agavanda- mál við neinn hérna ískólanum. Kona: Kannski þekki ég engan nógu vel, kannski treysti ég engum. Aðrir hafa engar lausnir. Karl: Hjá reyndum kennurum eru engin vandamál. Það eru fremur nemendur sem eiga við persónuleg vandamál að stríða og við ræðum þau. Ég — ekki aðrir — verð að meta það hvenær ég þarfá aðstoð eða hjálp að ha/da. Eins og sjá má eru svör kennaranna öll á einn veg. Þeir vilja ekki trúa starfsfélög- um sínum fyrir vandamálum sem snerta kennsluna. Því hlýtur að fylgja mikil vanlíðan ef kennarar geta ekki leitað til vinnufélaga sinna — einstaklings eða hóps — og trúað þeim fyrir vandamál- um sínum. Geti kennarar ekki rætt vandkvæði sín innan veggja skólans er afar sennilegt að starfsskipanin hindri það á einhvern hátt. Samantekt Ég hef nú lítillega rætt um hvernig hið formlega kerfi getur komið í veg fyrir að kennarar hætti á að létta á hjarta sínu. Jafnframt hef ég bent á að óformlegar reglur og viðhorf ráðist meira eða minna af hinu formlega kerfi. Kerfin verka hvort á annað og mælikvarðar eru svipaðir þótt áhrifa óformlega kerfisins gæti fyrr. Ég tel því nauðsynlegt að breyta aðstæðum í skólum þannig að kennarar geti leyst vandamál sín í sam- einingu. Það er vitaskuld ekki auðvelt verk þar sem í því felst umbylting á hinu formlega skipulagi, einkum vinnuað- stæðum. Breytingar á hinu óformlega kerfi sigla svo óhjákvæmilega í kjölfar- ið, þ.e. ef sú fullyrðing er rétt að það mótist meira eða minna af hinu form- lega kerfi. Lausn ? Reynsla mín við kennslustörf hefur sýnt mér að um leið og samstarf eykst minnkar einangrunin. Tveir eða þrír kennarar, sem vinna fyrir opnum tjöld- um á sama svæði, standa betur að vígi faglega en sá sem vinnur einn. Undan- farin fjögur ár hef ég unnið í skóla þar sem mörgum kennsluaðferðum er beitt og ýmislegt reynt. Þar er hefðbundið eða lokað bekkjarkerfi, kerfi sem er að nokkru leyti opið, opin svæði með blönduðum árgöngum, yngri deildir og eldri deildir. Þessum mismunandi starfsháttum hef ég kynnst af eigin raun. Ég hef unnið einn og í hópi með 2, 3 og 5 kennurum. Satt að segja var ein- lægni fólks og sjálfsgagnrýni mest í 5 manna hópnum en starfið jafnframt erfiðast. í slíkum hópi fer fram sífelid gagnrýni og mat. E.t.v. hef ég lært mest um kennslu í þessu hópstarfi. Þó er auð- veldara að vinna í fámennari hópi því þar er samræming auðveldari. Sveigjan- legt samstarf tveggja kennara er gott, svo langt sem það nær, en jafnast engan veginn á við starf í stærri hópum. Ef hópvinna á að bera tilætlaðan árangur 77/ hvaða starfsfélaga þíns myndir þú leita ef þú œttir við agavandamál að etja? 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.