Ný menntamál - 01.06.1983, Side 39

Ný menntamál - 01.06.1983, Side 39
Segja má að erfitt sé að draga ályktun af þeim þáttum, sem hér hafa verið raktir, vegna þess að ekki er ljóst að hve miklu leyti það eru sömu nemendurnir sem gefa hin neikvæðu svör. Líklegt verður þó að teljast að sá fimmtungur eða tæplega fimmtungur nemendanna, sem taldi sjaldan eða aldreí gaman í skólanum og taldi skólagönguna ekki verða sér til mikils gagns, sé yfirleitt í þeim stóra hópi sem hefur fremur lítinn eða mjög lítinn áhuga á náminu (um 40%) og er ánægður með kennslufyrirkomulag hjá ,,fáum“ eða ,,engum“ kennaranna (rúmlega 30%). Niðurstöður þeirrar könnunar, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, benda mjög í sömu átt og í „Unglingar í Reykja- vík“: a.m.k. 20-30% þeirra sem svara virðist liða illa í skól- anum og hjá þeim gætir óánægju með hann. Jafnframt er þó vert að hafa í huga að mjög neikvæð viðhorf birtast hjá til- tölulega fáum. Þessar kannanir voru gerðar meðal nemenda í tveimur síðustu bekkjum skyldunáms og í 9. og 10. bekk. En hvaða gildi hafa þær þegar álykta skal um ástandið nú á dög- um? Má ætla að niðurstöður úr sambærilegum könnunum yrðu á annan veg ef þær færu fram í ár? Hafa orðið ein- hverjar þær breytingar á íslenskum skólum síðustu 7-8 ár að búast mætti við að marktækur munur yrði á niðurstöðunum? Það tel ég hæpið. Það er hægt að breyta ytri ramma starfs- ins að nokkru á skömmum tíma, t.d. lögum, reglugerðum, námskrám, námsefni og húsnæði. Innra starf skóla breytist hins vegar hægt. Um það vitna ótal rannsóknir og kannanir hjá öðrum þjóðum. Og það sem athugað hefur verið hérlendis í þessu efni bendir til hins sama. Farvegur nýrra starfshátta dýpkar hægt og seint. Þess vegna heid ég að ekki yrði mikill munur á niðurstöðum kannana á viðhorfum sambærilegra nemendahópa til skólans nú og fyrir 7-8 árum. Ég óttast raun- ar að enn kunni a.m.k. 20-30% nemenda í efstu bekkjum grunnskóla að vera haldin einhvers konar skólaleiða — þannig að þeim líði illa í skólanum af einhverjum ástæðum og hafi lítinn áhuga á flestu sem þar fer fram. Þá er ég ekki að draga ályktanir af tölum eingöngu — heldur líka mörgum samtölum sem ég hef átt við kennara, nemendur og fleiri, sem til þekkja, undanfarin ár. Enda þótt ekki sé ætlunin að fjalla um orsakir þessa hér er rétt að minna á að vitanlega má oft rekja þær út fyrir veggi skólans — til aðstæðna í fjölskyldu nemenda og umhverfi. Heimildir: Þrjár ritgerðir byggðar á rannsókninni „Unglingar í Reykjavík". Andrés Ragnarsson: Tabere i skolen = social skœvhed? - i den islandske folkeskole. (Hovedopgave i pædagogisk psykoiogi). Einar Hjörleifsson: Mobning - blandt 8. klasses elever i Reykjavík. (Hovedopgave i pædagogisk psykologi). Hugo Þórisson: Familie- skole - samfund. En studie i forholdet social baggrund, socialisering og samfund belyst ud fra undersogelsen UIR. (Specialafhandling i psykologi). Könnun á vinnuálagi og námsvenjum í skólum. Gagnfræðaskólar, menntaskólar og sérskólar. Útg. menntamálaráðuneytið — skóla- rannsóknadeild 1979. KENNARAR — DEILDARSTJÓRAR! Höfum umboð fyrir kennslubókafyrirtækin: Longman EnglishTeaching Ser vices I spcachcm dcr wcit hueber ww VSÉf/ Oxford University Press Nýjustu kennslubækur þessara forlaga liggja ávallt frammi í versluninni til skoöunar fyrir ykkur. Pöntum allar fáanlegar bækur, kennsluefni og tímarit. Áratuga örugg þjónusta. Bókaverslun Snæbjarnar Hafnarstræti 4 — Reykjavík — Sími 14281 39

x

Ný menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.