Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 52

Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 52
Guðlaug Gunnar Bryndís Rúnar þuli í sjónvarpinu. Ég heyrði fólk segja: „Þetta er svo myndarlegt fólk“ — eins og það væri sérstaklega í frásögur fær- andi. Guðlaug: Ég var spurð að því hvort þulirnir væru ekki kennarar við skól- ann. Gunnar: Það eimir nefnilega enn eftir af þeim misskiiningi að heyrnarleysi fylgi skert greind. Guðlaug: Heyrnleysingjar tjá sig á allt annan hátt en aðrir og þess vegna eru þeir ef til vill hjákátlegir í augum þeirra sem ekki þekkja til. Eralgengt að það komi seint í Ijós að börn heyra illa? Rúnar: Ungbarnaeftirlitið gegnir veigamilu hlutverki í þessu sambandi; athugun á vegum þess beinist meðal annars að heyrninni. Hins vegar kemur væg heyrnarskerðing stundum ekki í Ijós fyrr en barn er 6-8 ára enda er oft erfitt að greina hana. Komi í Ijós að barn heyri illa kemur það hingað. Hvernig athugið þið börnin? Rúnar: Greiningin er fjölþætt og beinist ekki aðeins að heyrninni. Við at- hugum til dæmis málþroska og reynum að glöggva okkur á því hvernig sam- skipti barnsins eru við aðra. Við höfum samstarf við Heyrnar- og talmeinastöð íslands og leitum stundum til lækna og ýmissa sérfræðinga. Þið leggið mikla áherslu á ráðgjöf? Rúnar: Já, við reynum í samvmnu við foreldra að finna þjálfunaraðferðir sem hæfa barninu. Það er einnig mjög brýnt að foreldrar heyrnarskertra barna hittist og ræði saman. Á slíkum fundum segir fólk frá reynslu sinni og ber fram spurn- ingar sem við reynum að svara. Foreldr- ar verða að vita hvaða áhrif heyrnar- skerðingin kann að hafa á máltöku og 52 málþroska barnsins. Einnig veitum við upplýsingar um hjálpartæki sem heyrn- arskertir nota og bendum á að þau hjálpi aðeins en lœkni ekki. Ég get líka nefnt að það hefur reynst vel að nem- endur hér heimsæki foreldra heyrnar- skertra barna, hjálpi þeim til dæmis að læra táknmálið. Það er mikilvægt að ráðgjöfin taki til sem flestra sem um- gangast heyrnarskert börn. Hversu mörg heyrnarskert börn stunda nám í almennum skólum? Rúnar: Þau eru 80-90 talsins á land- inu öllu. Þessi börn hafa misjafnlega mikla heyrn. Sum þeirra geta til dæmis fylgst með án þess að nota heyrnartæki. Guðlaug: Ég vil bæta því við að skól- inn hefur nú umsjón með öllum heyrn- arskertum nemendum sem stunda nám í almennum grunnskólum. Ég tel þá til- högun mjög til bóta. Væri liægt að kenna nemendum hér að einhverju leyti annars staðar? Er rétt að starfrækja skóla á borð við þennan? Guðlaug: Ég er tvímælalaust þeirrar skoðunar. Reyndar væri hægt að kenna heyrnleysingjum í öllum skólum ef við- unandi aðstaða yrði sköpuð til þess. Menn geta svo velt því fyrir sér hvort skynsamlegt sé að stefna að því. Ég get til dæmis nefnt að margir heyrnleysingj- ar í Svíþjóð, sem hafa stundað nám í al- mennum skólum, hafa lýst því yfir að vistin þar hafi alls ekki nýst þeim sem skyldi. Rúnar: Sé um heyrnarskerðingu að ræða verðum við að vega þetta og meta með tilliti til hvers nemanda. Við verð- um að reyna að meta hæfileika og skap- gerð hans og huga að öllum aðstæðum í viðkomandi skóla. Hinir félagslegu þættir, svo sem samskipti við skólafé- laga, skipta miklu máli. Stundum hafa heyrnarskertir hætt námi í almennum skólum áf félagslegum ástæðum en ekki vegna erfiðleika í náminu. Heyrnar- skertir nemendur, sem hafa sambæri- lega heyrn samkvæmt mælingu, geta einnig staðið mjög misvel að vígi; það er mjög misjafnt hversu vel þeim tekst að nýta sér heyrnarleifarnar. Hvað einkennir kennsluna hér öðru fremur? Guðlaug: Meginhlutverk skólans er að kenna nemendum að skilja mál og tala. Það er ekkert áhlaupaverk þegar um er að ræða heyrnarskerta eða heyrn- arlausa nemendur. Fötlun þerira heftir málþroskann verulega. Allt starfið bein- ist meira eða minna að því að kenna börnunum málið á markvissan hátt og reyna gera þeim fært að beita því. Við verðum að kenna þeim að nota tákn- málið og lesa orð af vörum annarra, kenna þeim hefðbundinn lestur og skrift — svo eitthvað sé nefnt. Hvernig er kennslunni háttað í for- skóladeild? Bryndís: Fyrstu tímana kennum við börnunum saman. Samverustundin er dæmi um hópkennslu. Kennd eru 2-3 orð eða hugtök á hverjum degi, bæði orðmynd og tákn, og við notum ýmsar aðferðir til að þjálfa börnin í að beita þeim. í fyrstu eru valin orð sem snerta hið daglega líf barnanna, til dæmis orð varðandi mat, föt, áhöld, húsgögn, leik- föng og dýr. í þessum tímum tölum við einnig saman um það sem er ofarlega í huga, til dæmis um atburði dagsins áð- ur, og beitum ýmist tákn- eða talmáli. Við ætlum okkur líka sérstakan tíma til að segja börnunum sögur og ævintýri, meðal annars vegna þess að foreldrar kunna táknmálið yfirleitt ekki nógu vel til að geta sinnt þessum þætti. Sögurnar stuðla mjög að málþroska þessara barna sem annarra og víkka sjóndeildarhring þeirra. Síðast en ekki síst vil ég nefna að við reynum að auka sjálfstraust
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.