Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 58

Ný menntamál - 01.06.1983, Qupperneq 58
Vistfræði fyrir byrjendur Útgefandi: Svart á hvítu (1982) Þýðandi: Pétur Reimarsson Ríkir vistkreppa? Stefnir í visthrun? Er tæknin að ganga af náttúrunni dauðri? Hvað getur maðurinn gert til að sporna við helstefnunni? Þessum og mörgum fleiri áríðandi spurningum er miskunn- arlaust svarað í þessari bók. (A f baksíðu) Vistfrœði fyrir byrjendur fjallar um allt milli himins og jarðar; lífið á jörðinni, það sem ógnar tilveru þess og það, sem gœti bjargað því. En þótt ótrúlega víða sé komið við er bókin engin staðreynda- þula. Umfjöllun þessa þýðingarmesta efnis nútímans er að miklum hluta í myndasöguformi. Góð mynd segir meira en langt mál. (Einnig af baksíðu bókarinnar; allt hverju orði sannara!) ■ Það fer ekki á milli mála að eitt mesta vandamál sem mannkynið verður að fást við nú og í nœstu framtíð er að stöðva eyðingu hinnar lífrœnu náttúru og tryggja viðgang og eðlUega nýtingu þeirra auðlinda sem afkoma okkar og framtíð byggist á. Á hverju ári fjölgar íbúum jarðar um 60-70 milljónir og fjölgunin er fyrst og fremst í þróunar- löndunum þar sem nú er skortur á flest- öllum nauðsynjum svo sem mat, hrá- efnum og orku. En þetta vandamál verður ekki leyst nema að þjóðir heims taki á því sameiginlega af fulkominni alvöru. Náttúrugæðum verður að skipta á réttlátan hátt, útrýma fátcekt og fram- leiða mat handa öllum. Því miður höfum við Islendingar lítil afskipti haft af þessu sameiginlega vandamáli mann- kynsins og oft látið sem það komi okkur ekki við. Þessi bók getur vonandi sann- fœrt einhvern lesanda sinn um að'við erum ekki einir í heiminum og við ber- um sameiginlega ábyrgð á framtíð okkar. Haukur Hafstað framkvœmdastj. Landverndar. (Úr eftirmála) Lögmál alþýðunnar um vistfræði. 1. Allt tengist innbyrðis. 2. Efni eyðist ekki, það breytir um form. 3. Náttúran veit betur. 4. Það er ekki hœgt að borðafrítt. (Bls. 17) Það má nota vistfrœðina til góðs eða ills eins og aðrar vísindagreinar. Það veltur allt á því hver situr við stjórnvölinn. í stað þess að vernda náttúruna getur vistfræðin, með því að kortleggja hana, aðstoðað við ,,ofnýtingu á því sem betra væri að dást að, njóta og búa í. “ (Joseph Wood Knotch). (Bls. 126) Iðnvœðingin olli því að áhersla var ekki lengur lögð á að lifa af afurðum auð- lindanna heldur var ráðist á þær sjálfar. Þannig hóf nú mannkynið að ganga á ,,höfuðstól“ jarðarinnar í stað þess að lifa af,, vöxtunum Bókin minnir á kvikmynd hvað upp- byggingu varðar. í henni er urmull af stuttum atriðum sem hvert um sig er harla ófullkomið. Heildarmyndin birtist ekki fyrr en búið er að klippa kvik- (Bls. 30) Það er lífsnauðsyn að skilja eðli náttúr- unnar. Vistfrœðin getursagt til um hvað við getum og hvað ekki, til þess að,, vef- ur lífsins“ haldist heill og hana má nota til að gagnrýna þjóðfélagið á róttækan hátt. En vistfræðin sjálf er bara tæki. Látum mannlegar þarfir og umhyggju fyrir umhverfinu móta framleiðslu og lífshætti! Skynsamleg og skemmtileg störf góð lífskjör og heilbrigt og gott umhverfi fyrir alla! Spörum orku og hráefni! (Bls. 159) myndina, þ.e. raða brotunum saman. Lesandinn ætti ekki að sofna út frá bókinni. Hann hefur kappnóg að gera við að fylla upp í eyðurnar milli atrið- anna (í huganum) og reyna að skilja brandarana. Gamninu í bókinni fylgir mikil alvara, óvenjumikil. Bókin miðast fyrst og fremst við manninn — sögu hans, lífshætti og um- hverfi — en það er nýlunda í bókum á íslensku um vistfræði handa byrjendum. Ég er ekki í vafa um að það hentar borgarbörnum nútímans betur að byrja á því að læra um manninn en lífverur sem flest þeirra þekkja lítið sem ekkert. Vistfræði er ekki bara líffræði; hún tekur einnig til mannlegra sam- skipta og tengsla manna við náttúruna. 58
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ný menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný menntamál
https://timarit.is/publication/2011

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.