Nýja öldin - 01.03.1899, Page 69

Nýja öldin - 01.03.1899, Page 69
Víðsjá. 69 erfðaskrá gert. Það lítur helzt út, eins og þessi ein- beitti atorkumaður hafi aldrei getað ráðið við sig, hvern- ig hann ætti að ráðstafa milíónum sínum eftir sinn dag. Aflfrseði-nýjungar síðustu 10 ára. Höfundur einn í La Nature (Maí 1898) segir svo, að hefði maður sofnað eða fallið í dá rétt við lok Parísar-sýningarinnar 1889 og vaknað aftur nú, þá mundi honum þykja margt nýstár- legt, ekki sízt þetta, sem hér skal talið: 1. Tvíhjólinn eða hjólhesturinn, sem hann sœi nú á hverju stræti og upp um sveitir á þjóðbrautum. Hraðfóti (velociped), sem hann hafði áður séð, var bæði fágætur og líit nýtur. — 2. Hestlausi vagninn, sem hreyfist með steinolíu eða rafmagns- nesti.—3. Rafmagns-8porhrautirnar, sem máttu heita lítt þektar á hans tíma, en eru nú í öllum stórbsejum og mörgum smáum, og virðast verða munu að miklu leyti þjóðvegir 20. aldarinnar. — 4. Fjölbifstraumarnir (polyphase currents), sem gera mönnum auðið að flytja náttúrunnar hreyfiöfl (t. d. vatnsafl) um langa vegu og dreifa því svo út til ýmissa nota. — 5. Eimhjól- ið (The íjaval steam turbine), nýtt tæki til að hagnýta eimmagn undir sterkri þrýsting. — 6. Innan-bruna-hreyfir Die- sels, sem er ódýrasta aðferð, sem menn nú þekkja, til að breyta hita i afl. — 7. Calcium carbid, sem asetýlín er framleitt af, en asetýlín verður einn aðal-ljósmatur næstu aldarinnar. •— 8. Hreyfimynda-sjáin (kínematograf), sem nú vekur svo mikla að- dáun manna. — 9. Röntgens-geislarnir (X-geislarnir) með allri þeirra þýðingu fyrir læknisfræðina. — Allar þessar níu uppgöt- vanir eru nú daglega hagnýttar. En svo má bæta við þessum fimm, sem þegar eru fullgervar uppgötvanir, en eru að eins í þann veginn að verða nothæfar í lífinu: — 10. Loft-lögur (loft að legi gert), sem á sér framtíð sem iðnaðar-afl. — 11. Lit- ljósmyndun. Mascart hefir nýlega lagt fyrir franska visindafé- lagið síðustu aðferðir Lumiére-anna. —-12. Símalaus firðritun, upp- götvun, sem mikils er af að vænta. — 13. Kaldaljós, lýsing, sem rafmagnsleiðsla vekur í örþyntum gastegundum. — 14. Tíðbif- straumar (high frequency currents), sem þeir Tesla og D'Arsonval hafa gert svo aðdáanlegar tilraunir með. — Allar þess- ar 14 aflfræðilegu nýjungar má eigna síðustu 9 eða 10 árum, og eru þó ótaldar fjölmargar nýjungar í öðrum greinum á sama tímabili. Hún endar ekki óálitlega 19. öldin! (Eftir „Literary Digest.“)

x

Nýja öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja öldin
https://timarit.is/publication/32

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.