Andvari - 01.04.1960, Qupperneq 22
20
EINAll II. KVARAN
ANDVARl
XI
En að liverju beindist lífsstefna Einars endanlega, í liverju er hoðskapur
hans aðallega fólginn? í altæku kærleikseðli guðs og fórnarskyldu mannsins,
og hvorttveggja hirtist m. a. í fyrirgefningunni. En að þessari niðurstöðu var
mikill aðdragandi, leit og harátta.
Snemma í sögum Einars kemur fram sá lamandi ótti og það friðleysi
sálarinnar, sem helvítistrúin veldur. En trúin á útskúfunarkenninguna eða
höfnun hennar hlaut að hyggjast á skilningnum á eðli guðs. I Litlu-Hvammi
brýzt l’ram þessi þráláta spurning mannsins, hvernig guð gcti bæði verið algóður
og almáttugur og heimurinn þó svo illur og ranglátur, eða var guð beinlínis
vondur, eða var hann ekki til? Síðan má rekja spurninguna um tilvist, mátt
og einkum gæzku guðs eins og rauðan þráð í næstu sögum Einars. Og það
varð eitt aðalldutverk hans að glíma við þessa ráðgátu — og reyna síðan að
eyða efanum hjá öðrum, er hann taldi sig hafa leyst hana.
Svör manna við þessu hala orðið með flestum lnigsanlcgum liætti. T. a.
m. komst enski heimspekingurinn Stuart Mill að þeirri sérstæðu niðurstöðu,
að guð væri að vísu algóður, en ekki almáttugur, hann gerði eins og bezt hann
gæti. En Einar vill hvorugum eiginleikanum svipta guðshugmynd sína, en
reynir að samræma þá. Skýring hans er nær einhyggjuþrá Einars Benedikts-
sonar, er hann segir (í Svarta skóla):
Djöfuls afl og engils veldi
eru af sömu máttarlind.
I lér — hjá Einari Benediktssyni — eiga hið illa og góða sameiginleg upp-
tök, eru sprottin af einni rót, en síðan hefur leiðir skilið, stofninn klofnað í
tvær gagnstæðar greinar. Einar Hjörleifsson fer samt nokkuð aðra leið og
einkum lengra í einhyggju sinni eða einveldiskenningu, eins og hann sjálfur
kallaði hana. — En svar við spurningunni frá Litla-Hvammi er að finna í lok
Gulls, þar sem hann birtir guðsmynd sína í ævintýri. Það er á þessa leið:
Einu sinni sendi Drottinn engil sinn niður á jörðina til þess að kynna
sér hagi mannanna.
Hvernig lízt þér á? sagði Drottinn, þegar engillinn kom aftur.
Ekki vel, sagði engillinn.
Lízt þér illa á það, sem ég hefi gert? Spurði Drottinn.
Fyrirgefðu mér, mikli faðir, ef ég geri þér rangt til, sagði engillinn.