Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 64
JÓNAS JÓNSSON:
Menntamálaráð og menningarsjóður.
i
Þegar nokkuð létti þeirri kreppu, sem
hófst hér á landi sumarið 1920, var hafizt
handa um margháttaðar framfarir, bæði
í verklegum og andlegum efnum. Þá var
á nokkrum árum unnið skipulega að því
að koma á fót sundhöll í Reykjavík og
sundlaugum út um land, ríkisútvarpi,
hygginga- og landnámssjóði, verkamanna-
bústöðum, mörgum héraðsskólum, hús-
mæðraskólum, gagnfræðaskólum, og þjóð-
leikhúsi og landspítala í Reykjavík, svo að
fá dæmi séu nefnd. Þessar framkvæmdir
voru bornar fram og studdar af æsku-
mannahreyfingum, ungmenna- og íþrótta-
félögunum, kaupfélögum, kvenfélögum
og samtökum verkamanna. Hér var um
að ræða alhliða sókn í framfaramálum
og menningarmálum í landinu.
Árið 1928 bar ég fram á Alþingi tvö
frumvörp í aldamótaanda sem hér verður
vikið að. Annað um menntamálaráð, hitt
um menningarsjóð. Frumvörpin voru tvö,
en stefnt að einu takmarki: Eflingu sjálfs-
menntunar og þróun lista og vísinda. Hér
var á ferð einstakt nýmæli. Fjárhagur
landsmanna var þröngur og í mörg horn
að líta, en í frumvörpunum um mcnnta-
málaráð og menningarsjóð var lagður
grundvöllur að nýju þjóðarviðhorfi, og svo
um búið að þar mætti síðan bæta við nýj-
um framkvæmdum. Reynslan hefur sýnt
að hér var rétt stefnt. Liðin eru rneira en
þrjátíu ár frá því að menntamálaráð og
menningarsjóður hófu starf að mörgum
verkefnum. Má Jíta svo á, að tími sé til
kominn að skýra landsmönnum frá, hvað
áunnizt hefur og hvers vænta má á
ókomnum árum af þessari löggjöf í menn-
ingarmálum landsins.
II
Efni laganna um menntamálaráð var
sem hér segir: Eftir alþingiskosningar
skal í sameinuðu Alþingi kjósa með hlut-
bundnum kosningum fimrn manna
nefnd sem starfar allt kjörtímabilið og
kallast menntamálaráð. I Ilutgengur er í
nefndina hver íslenzkur borgari, sem á
kosningarétt til Alþingis og er búsettur
í Reykjavík, eða svo nærri bænum, að
hann eigi auðvclt með að sækja þangað
fundi um verkefni menntamálaráðs.
Ráðið skal árlega úthluta fé, sem Alþingi
veitir til viðurkenningar skálda og lista-
manna. Það kaupir fyrir landsins hönd
listaverk fyrir það fé sem kann að vera
veitt í því skyni á fjárlögum Það hefur
umsjón með listaverkasafni landsins og
undirbýr eftir því sem við má koma bygg-
ingu listasafns í Reykjavík. Það fellir dóm
um teikningar að þjóðkirkjum, bæði ný-
byggingum og breytingum á eldri kirkju-
húsum. Það skal ennfremur úthluta
námsstyrk, sem greiðist úr ríkissjóði til
stúdenta og annarra nemenda erlendis.
Menntamálaráð skal eftir fremsta
megni, með aðstoð sendimanna Islands
erlendis, hafa eftirlit með að styrkþegar
fari vel með fé sitt og tíma og ef sannan-