Helgafell - 01.04.1943, Blaðsíða 7
HELGA FELL
TÍMARIT
UM BÓKMENNTIR OG ÖNNUR MENNINGARMÁL
II. ÁRGANGUR. APRÍL—JÚNÍ 1943
4.-6. HEFTI
UMHORF OG VIÐHORF
ÚTHLUTUN HÖF- Úthlutun höfunda-
UNDALAUNA 1943 launa af hálfu þeirr-
FRÁ SJÓNARMIÐI ar nefndar Rithöf-
NEFNDARMANNS undafélassins, sem
Barði Guðmundsson,
Kristinn Andrésson og undirritaður áttu í
saeti á s. 1. vetri, hefur að vísu fengið
*njög viðunanlegar undirtektir meðal all-
flestra þeirra landsmanna, sem láta sér
annt um hag og heiður rithöfunda sinna.
Eigi að síður hefur úthluíunin vakið al-
mennt umtal og margháttaða gagnrýni,
einkum vegna brottfarar Gunnars
Uunnarssonar úr Rithöfundafélaginu,
skömmu eftir að niðurstöður voru birtar.
hó að ádeilurnar hafi flestar verið kynjað-
ar úr þeim herbúðum, þar sem minnst hefur
farið fyrir umliyggju og góðviid í garð rit-
höfunda og samtaka þeirra að undanförnu,
Þykir mér hlýða að fara hér nokkrum orð-
Um um úthlutunina frá sjónarmiði nefnd-
armanns, jafnframt því sem vikið verður
að einstökum atriðum gagnrýninnar. Ég
tel mér óhætt að fullyrða, að ég túlki skoð-
an»r nefndarinnar allrar í meginatriðum,
enda voru niðurstöður hennar allar sam-
Þykktar einum rómi, og enginn ágreining-
ur um þau rök, sem til þeirra lágu.
Nefndin leit svo á frá upphafi, að sú
nyja skipan úthlutunaraðilja, sem nú var
viðhöfð í fyrsta sinn, væri aðeins bráða-
irgðaráðstöfun alþingis, enda hafði Banda-
ag ísl. listamanna aldrei óskað slíkrar til-
ógunar. Af þessum ástæðum sá nefndin
s r ekki fært að taka úthlutunina til svo
gagngerðrar endurskoðunar, sem hún mundi
ella hafa kosið, auk þess sem heildar-
fjárveitingin gerði slíkt ekki kleift að þessu
sinniJ Nefndin hlaut því að miða störf sín
við þetta tvennt: að bæta úr augljósustu
misfellunum á aðbúð einstakra rithöfunda
af hálfu ríkisvaldsins undanfarin ár og haga
veitingum sínum svo yfirleitt, að því leyti
sem fært þætti, að þar gætti sjónarmiða
Rithöfundafélagsins, fjárveitingarvaldinu
til leiðbeiningar, þegar á yrði komið ör-
uggara og æsltilegra skipulagi.
Eins og af þessu má ráða, taldi nefndin
sér rétt og skylt að starfa í sem mestu sam-
ræmi við þann vilja, sem fram hafði komið
í þeim tvíþættu, en nátengdu, skiptum Rit-
höfundafélagsins og Bandalagsins af þess-
um málum um langt skeið, — a ð mótmæla
alþekktum kúgunartilraunum og refsiað-
gerðum fjárveitingarvaldsins gagnvart ein-
stökum höfundum o g berjast fyrir endur-
lieimt þess öryggis, hinum verðleikameiri
höfundum til handa, sem slíkir menn höfðu
áður notið samkvæmt 18. grein fjárlag-
anna, unz sú liefð var rofin af alþingi.
1) Sú mótbára, að menntamálaráð hafi
jafnan átt við sams konar örðugleika að
etja að þessu leyti, verður ekki tekin gild,
þar sem fyrrverandi formaður þess hafði
neytt aðstöðu sinnar á þingi síðustu árin
til þess að knýja fram sem lægstar fjár-
veitingar í þessu skyni, án mótmæla þess
meiri hluta í ráðinu, sem tvíkaus hann
oddvita sinn og opinberan talsmann.