Helgafell - 01.04.1943, Blaðsíða 57
BÓKASÖFNUN OG BÓKAMENN
193
III.
Þá kem ég að bókasöfnurum, sem enn eru á lífi. Mestur þeirra var
Kristján Kristjánsson, fyrrum skipstjóri. Hann byrjaði bókasöfnun rétt fyrir
aldamótin og safnaði af miklu kappi um þrjá tugi ára, en seldi þá bókasafn
sitt til Bandaríkjanna. Var safn hans hiS ágaetasta, einkum aS blöSum,
tímaritum og ljóSmælum. Hygg ég, aS safn hans, er hann seldi þaS, hafi
verið betra en safn Benedikts var þá í nefndum bókmenntagreinum. Voru
þeir Benedikt um langt skeið mestir bókasafnarar hérlendis og það svo af
bar. Var það því mannlegt, þótt nokkur ríkismannarígur væri þar á milli,
því að keppni var á báða bóga og stundum árekstrar, einkum á uppboðum,
þegar einn missti, en annar hlaut. Var það álit sumra, að aðrar bænir væru
þeim tamari, en að hvor óskaði öðrum aflasældar á bókaveiSum. Hefur slíkt
ef til vill brunniS víðar við. Bókasafn Kristjáns var hiS merkilegasta og mikill
skaði, að það skyldi flytjast úr landi.
íslenzk bókasöfn, þau sem nú eru í eigu einstakra manna, skal ég fara
fljótt yfir. Þekki ég þau ekki öll, svo að ég geti um þau dæmt og máske
gleymi ég einhverjum ágætum bókasafnara, sem þegar hefur eignazt prýði-
legt bókasafn. Skal þess þegar getið, að mér hefur veriS sagt frá mönnum,
sem muni eiga mjög mikið góðra bóka, en ég get þeirra ekki hér, af því ég
kann engin skil á bókum þeirra.
Þekktir bókamenn hér í Reykjavík eru þessir: Bogi Ólajsson mennta-
skólakennari, sem mun eiga eitthvert allra stærsta bókasafn hérlendra manna,
en ekki lítill hluti þess er á útlendum málum og um útlend efni. Bogi mun eiga
bezt safn íslenzkra leikrita og frumsaminna skáldsagna á íslenzku, og er safn
hans að öðru leyti geysimikið og eintök bóka hans ágæt.
Sigurður prófessor Nordal á afarmikið bókasafn og mun það vera bezta
hérlenda einstaklingssafn af útgáfum fornrita vorra og annarra stórra og
smárra rita um norræna sögu og málfræSi. Riddarasögusafn hans er eitt hið
bezta.
Þorsteinn Schetíing Thorsteinson lyfsali mun eiga bezt safn ferðabóka
um ísland og gamalla landsuppdrátta af íslandi, en auk þess á hann ágætt
safn íslenzkra bóka og bóka um íslenzk efni.
Beztu rímnasöfnin hér í bæ eiga þeir Ólafur prófessor Lárusson, sem var
um skeið mikill bókasafnari, og Gunnar Hall skrifstofumaður. Hefur sá síð-
arnefndi safnað íslenzkum bókum af miklu kappi nú um nokkur ár. Á hann
mikið og gott bókasafn, t. d. allar bækur útgefnar af Bókmennta- og ÞjóS-
vinafélögunum, flest ágæ.t eintök með kápum. Þá má geta Magnúsar Kjaran
stórkaupmanns, sem á mjög gott og vel hirt bókasafn.
Jón Ásbjörnsson hæstaréttarmálaflutningsmaður á eitt hið bezta eða
næst bezta safn af útgáfum fornsagna vorra (íslendingasögum) og ýmsar
fleiri fágætar bækur.
HELGAFELL 1943
13