Helgafell - 01.04.1943, Blaðsíða 93
229
Magnús Kjartansson:
Á FIMMTUGS AFMÆLI
FÉLAGS ÍSLENZKRA STÚDENTA
Félag vort! sem fóstrað hefur
fjör og líf og æskuglóð,
þú sem mörgum manni gefur
minninganna dýra sjóð,
aftur vek þú oss í geði
árin liðin, kynnin forn:
hálfrar aldar æskugleði
endurlífgi huga vorn.
Ekki dylst, sé aftur litið,
eftir skyggnzt um tímans dóm:
hjá þér margur hefur slitið
hugsananna bernskuskóm;
oft var stælt, en engu lotið,
allt var rætt í þínum hring,
þar sem ýmsir hafa hlotið
hugðarmál og sannfæring.
Ganga, svo að gegnir furðu,
græskukenndar sögurnar
um þá suma er síðar urðu
siðavandir borgarar;
flaug um borð á fundum þínum
félagsgleði heit og ör,
er menn hentu af huga sínum
hversdagsleikans tötraspjör.
Enn er deilt og dómar falla
djarft og skjótt um sérhvert mál,
enn í ungri gleði gjalla
gáskasöngvar yfir skál,
sérhver stúdentskynslóð krefur
kapp og fjör i hlutinn sinn, —
hálfrar aldar ævi hefur
engu breytt um haginn þinn.
Sigfús Blöndal:
BROT ÚR KVÆÐI UM MILTON
Mannkynsins ráð er á reiki,
ryðgaðar kirkjur og þing,
listirnar veiklaðar vafra,
visindin ráfa í kring.
En hátt gegnum klaufakliðinn,
kreddur og orðaglamm
út yfir liðnar aldir
andi þinn kallar; Fram!
Úr „Fróni“, apríl, 1943.