Helgafell - 01.04.1943, Blaðsíða 58
194
HELGAFELL
Þá hefur Em\ur Guðmundsson verzlunarmaður nú um skeið safnað ís-
lenzkum bókum kappsamlega. Er rímnasafn hans og rímnasafn Jóhanns Jrá
Brautarholti sennilega þriðju og fjórðu beztu rímnasöfnin í Reykjavík. Eiríkur
hefur auk þess sérstaklega safnað riddarasögum og ævi- og útfararminning-
um, enda ættfróður vel. Bókasafn hans er mjög vel umgengið, en ekki
geysistórt. Helgi bókbindari Tryggvason hefur verið einn hinn mesti bóka-
safnari um nokkur ár. Seldi hann margt bóka aftur, en kom sér þó upp all-
góðu bókasafni, einkum blaðasafni. Hygg ég hann hjálpsamastan allra
þeirra, sem söfnuðu bókum handa sjálfum sér. Hélt hann fágætum bókum
til annarra safnara og var laus við það að halda bókum, er hann seldi, fyrir
þeim, er stærri áttu söfnin, en það þótti brenna við annars staðar. Gísli
Jónsson trésmiður var um skeið mikill bókasafnari, en hefur nú selt bækur
sínar. Fékk Gunnar Hall hið ágæta rímnasaífn hans.
í Norðlendingafjórðungi á Davíð shfild jrá FagrasJ^ógi langbezta safn
íslenzkra bóka. Er það eitt hið allra bezta safn af íslenzkum bókum, sem
til er í einstakra manna eign. Hann er einhver sá ötulasti bókasafnari, sem ég
þekki, en hefur þó stillt í hóf um verðlag margra þeirra, enda félitlum mönn-
um ofvaxið að kaupa fjölda bóka slíku okurverði, sem nú er á þeim. Bandið
eitt kostar geysifé. Davíð skáld hefur sjálfur hreinsað bækur sínar og fram-
kvæmt á þeim vandasamar aðgerðir. Hefur hann lagt fram mikla vinnu og
mikið fé í bókasafn sitt. Hann hefur hið mesta yndi af bókum sínum og ást
á þeim, eins og kvæði hans bera með sér, er hann yrkir um þær. Næstur
honum að bókaeign norður þar er Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri. Á hann
mikið og gott bókasafn, en ekki hef ég sjálfur séð það. Þá má geta séra
Helga KonráÓssonar á Sauðárkróki, sem er mikill bókasafnari.
Stærsta einkabókasafn á Austurlandi er vafalaust safn Benedikts heitins
Blöndals, sem ekkja hans, frú Sigrún Blöndal skólastýra á Hallormsstað,
varðveitir.
Á Vesturlandi tel ég mitt bókasafn stærst að íslenzkum bókum og ferða-
sögum um ísland á erlendum málum. Hef ég gefið ritstjórn Helgajells
ádrátt um að geta þess að nokkru í sérstakri grein.
Sighvatur Borgfirðingur gaf eftir sinn dag Vestur-ísafjarðarsýslu allt sitt
bókasafn, sem var allstórt, en margt af því mun hafa verið í lélegu ásig-
komulagi. Er það nú við héraðsskólann á Núpi.
Þorst. Þorsteinsson.