Tímarit Máls og menningar - 01.12.1981, Blaðsíða 8
Tímarit Máls og menningar
Þannig mæltu þeir og muldu og skemmdu verk sitt og sköpun sína.
Að svo búnu sögðu þeir:
Hvernig getum við fullgert og skapað skammarlaust þá sem tigna
okkur og ákalla?
Nú ræddust þeir við á ný og sögðu svo:
Tölum við Ixpíjakok, Ixmúkane, Húnahpú-Vúts, Húnahpú-Utíú.
Freistið gæfunnar! Spreytið ykkur við sköpunina!
Þetta sögðu sín í milli Skaparinn og Mótarinn, þegar þeir ávörpuðu
Ixpíjakok og Ixmúkane.
Að svo mæltu ávörpuðu þeir ömmu dagsins og formóður árroðans,
báðar völvurnar, Ixpíjakok og Ixmúkane; en svo voru þær nefndar af
Skaparanum og Mótaranum.
Og Húrakan, Tepeú og Gúcúmatz sögðu við spákonuna og mótarann,
báðar völvurnar:
Setjumst á rökstóla og reynum að finna aðferð til þess að maðurinn
sem við sköpum fæði okkur og næri, ákalli okkur og minnist vor.
Setjumst nú á rökstóla, amma og afi, amma vor og afi, Ixpíjakok,
Ixmúkane; látið dragast frá dimmuna svo að dagi og við verðum ákall-
aðir, tignaðir, og hinn skapaði maður muni eftir okkur, hinn mótaði
maður og dauðlegi; látið slíkt verða.
Gefið til kynna eðli ykkar, þú Húnahpú-Vúts, Húnahpú-Utíú, tvímóð-
ir, tvisvar faðir, þú Ním-Ak, Nímá-Tzíís, Herra smaragðsins, silfursmið-
ur, myndhöggvari, tálgari, Herra hinna dýrlegu rétta, Herra hins græna
graskers, meistari fernisins, meistari Toltekat, amma sólarinnar, formóðir
árroðans; þessum nöfnum verið þið nefndar fyrir sakir verka ykkar og
barna.
Freistið gæfunnar og kastiö maískorni og tzite. Gerið þetta, og vitað
verður og úr því fæst skorið, hvort við höggvum eða getum skorið í tré
munn og augu mannsins.
Þetta fengu völvurnar að heyra.
Að svo búnu hófst völuspáin, kastað var maiskornum og tzíte sem
teningur væri. Getist! Gripur! sögðu þá við þær karl og kerling. Og
karlinn hafði með sér heppni tzíte, og er kallaður Ixpíjakok. En kerlingin
var völva, hin handlagna Tsírakan Ixmúkane.
366