Tímarit Máls og menningar - 01.12.1981, Side 10
Tímarit Máls og menningar
Úr Chílam Balam-bókunum
ÁRIÐ TÚN 2IX
2 Ix, Jagúarárið: tími er þá ógurlegra átaka, tími þegar eldur brennur i
miðju hjarta sléttlendisins, þegar himinn og jörð brenna og ótti og
skelfmg ein verða fæða mannsins; tími þessi er tíð til að beina bænum til
himna. Brauði verður kastað á glæ og gustukin hverfur. Cúy grætur,
Uglan, Ikím fellir tár, Skógaruglan, á skógarstígum sem liggja allt til enda
veraldar, um víðáttur himinsins. Vespurnar verða sem óðar, óðir verða
vesalingarnir í ríki Ah Bolon Jokte, hans níþætta tréfótar, Ah Bolon
Kanaan, sem er níföld auðlegð. í henglum er hið ofna lak og veggirnir
fallnir. Á slíkum tímum verður höggvið ættartré lausaleiksbarna, þegar
upp vex á jörðu og á sléttlendinu birtist Búlúk Chabtan, hinn ellefufaldi
fastari, sonur Ah Uúkebs, sem var sem sjöfalt fjall. Krókódíllinn Aæjín,
hinn óttalegi, bíður með opinn skolt við sjávarstrendur. Kjaft sinn mun
glenna á gátt hinn gríðarlegi Xook, hákarlinn hræðilegi. Á þessum
tímum mun Vespum fjölga á dreggjum vatnsins, á matarleifum. Fram á
þriðja heiming katúns ríkir 5 Ahaú þriðja ársins tún.
Og eftir þessa ógnarspá um hina hræðilegu tíma, ragnarökin, finnst mér rétt
að grípa stuttiega niður i Chílam Balam-bcekumar þar sem sagt er frá komu
Dsúlanna, en svo nefndu mæjar spánverja. Spánverjar eiga sæg af frásögum og
krónikum sem segja frá fundi hins Nýja heims og rekja sigurinn yfir aztckum og
inkum. Hið spænska skrifræði varð til þess að yfir spænsk stjórnvöld flæddi
óhemjumikið af hvers kyns lýsingum á löndum og þjóðum liins nýfundna
heimshluta. Sigurvegurunum var skylt að segja frá öllu, smáu og stóru; en
seinna voru þessar njósnir nefndar heimildir, og frjálslyndir fögnuðu þvi að
spænska einveldið skyldi hafa verið svona duglegt við að skrá flest i fari manna.
Hitt vita færri að innfæddir skráðu líka. Til er sægur af ritum mæja og azteka
um komu Dsúlanna, útlendinganna, spánverjanna.
368