Tímarit Máls og menningar - 01.12.1981, Blaðsíða 153
Glerblómið
Jose Rúbem Fonseca fjallar líka í sögum sínum um ribbalda, en ribbaldar
hans eru ekki ribbaldar og frumstætt fólk auðnanna í fjarlægum héruðum,
heldur búa þeir í auðnum stórborganna og eðli þeirra er aðeins eðli bóndans i
breyttu formi, sökum nýrra aðstæðna. Maðurinn er ætíð hann sjálfur og vilji
hans og þær aðstæður sem hann býr við. Þannig er maðurinn í grófum dráttum.
Fonseca fæddist í fylkinu Minas Geraís og starfar nú, að ég held, sem lögfræð-
ingur í afbrotadeild lögreglunnar i Río. Sögur hans eru oft líkari lögregluskýrsl-
um en smásögum.
Rúbem Fonseca (1925 —)
Gleðilegt nýtt ár
Eg sá í sjónvarpinu að dýrustu verslanirnar voru að selja brjálað rándýr föt
á frúrnar fyrir nýársveisluna. Einnig hafði ég séð að bestu mat- og
drykkjarvöruverslanirnar höfðu tæmst vegna sölu.
Pereba, ég verð að bíða til morguns uns ég fæ brennivín, reytta hænu
og farofa frá makúmberonum.1
Pereba fór inn á bað og baulaði „hvílík pest!“
Eg er vatnslaus, mígðu annars staðar.
Pereba fór fram á gang og meig þar.
Hvar kræktirðu í sjónvarpið? spurði Pereba.
Ekki stal ég heldur keypti „varpið“. Kvittunin er á þvi. Æ, Pereba!
Heldurðu að ég sé sá asni, að ég geymi sönnunargögn í holunni minni?
Eg er að drepast úr sulti, sagði Pereba.
A morgun, þá fyllum við vömbina á skrapi frá babalaonum,2 sagði ég.
Kýlum hana með krafsi.
Reiknaðu ekki með mér, sagði Pereba. Manst eftir Krispín? Hann beit
1 Makúmeberonar eru þeir sem stunda í Brasilíu trúarbrögð ættuÖ frá Afríku. Guðunum eru
bornar gjafir, matur og drykkur, á krossgötur. SíÖan stela fátæklingar matnum og éta. Farofa er
hveitigrautur.
2 Babalos eru prestar þeir sem stunda ífa-trú. Guðinn ífa er eins konar völva eða guð sem sér fyrir
óorðna hluti.
511