Tímarit Máls og menningar - 01.12.1981, Page 96
Tímarit Máls og menningar
Frá ljóðum Vallejo hverfum við til skáldskapar sem fjallar um byltinguna í
Mexíkó, með sögu eftir Rúlfo. Rúlfo er reyndar ekki af kynslóð þeirra sem tóku
þátt í byltingunni árið 1910, en sagan Sle'ttan logar er rituð í anda hinna miklu
byltingarskálda, eins og Azúela, sem skrifaði skáldsöguna Hinir lœgst settn.
Fæstir hinna stóru rithöfunda sem fjölluðu um byltinguna, svo sem Rafael
Múoz, Lúis Gúzman og Azúela, skrifuðu smásögur. Saga Rúlfos verður því að
nægja sem dæmi um mexíkanskan byltingarskáldskap. Mexíkönskum öreiga-
skáldskap verð ég að sleppa, sökum skorts á rúmi, en hann er mikill að vöxtum.
Jitan Rítlfo (1918— ) Mexíkó
Sléttan logar
Þeir tættu sundur tikina
en tíkarsynirnir lifa ...
Alþýðusöngur
Lengi lifi hann Petronílo Flores!
Hrópið bergmálaði milli hlíða gilsins og hentist upp brekkurnar til
okkar. Að svo búnu leystist það upp.
Golan strauk gilið andartak og bar okkur þys stríðra radda, sem vakti
sama nið og þegar fljót í vexti streymir um lausa steina. Strax á eftir fylgdi
annað hróp frá sama stað. Hrópið þaut um egg gilbarmsins, hoppaði milli
hlíða og barst til okkar gjallandi:
Lengi lifi hershöfðinginn okkar, hann Petronílo Flores.
Við litum hver á annan.
Hann Tíksi reis seinlega á fætur, dró hylkið úr skothólfinu á rifflinum
og stakk þvi í skyrtuvasann. Að svo búnu skreiddist hann þangað sem
Fjórmenntngarnir voru og sagði: „Jæja, piltar, fylgið mér og athugum við
hvaða bolakálfa við berjumst." Bræðurnir Bcnavídes fóru í humátt á eftir
honum, hálfbognir. Aðeins hann Tíksi gtkk bísperrtur, ogefri hluta hins
visna búks bar upp fyrir vegghleðsluna.
454