Morgunblaðið - 19.12.1991, Page 27

Morgunblaðið - 19.12.1991, Page 27
* MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 27 FRA EINANGRUN í ALF ARALEIÐ Bókmenntir Erlendur Jónsson Friðrik G. Olgeirsson: Hundrað ár í Horninu. 3. 378 bls. Útg. Ólafs- fjarðarbær. 1991. Mjór fjörður, takmarkað undir- lendi, há fjöll með bröttum hlíðum — það er hið dæmigerða umhverfí ís- lenskra sjávarþorpa. Ekki er það til- viljun. Þar var skjól til lendingar. Og þar sem skjól var til lendingar komu síðar smábryggjur og loks hafnargarðar. Þannig hefur ósjálfráð þróun ráðið staðarvalinu Ólafsfjörður er ekki þorp, að vísu, heldur kaupstaður, bær. Þau réttindi hlaut hann 1945. Og frá þeim tíma er sagan rakin í þessu þriðja bindi. Þá náðu Ólafsfirðingar ekki þúsund- inu, jafnveí þótt sveitin væri talin með. Það var vegna framkvæmda og fjármála í sambandi við þær að sveitarfélagið sótti um kaupstaðar- réttindin. Saga Ólafsfjarðar er mestmegnis stórviðburðalaus, gagnstætt t.d. sögu nágrannabæjarins, Siglufjarð- ar, þar sem meiri háttar sveiflur hafa gengið yfir, rífandi uppg^ngs- tímar en lægðir á milli. Ólafsfjörður hefur ekki hreppt stórvinninga en búið við sígandi lukku. Framan af setti einangrunin svip _á bæjarlífið. Þar af leiðandi urðu Ólafsfírðingar að vera sjálfum sér nógir á mörgum sviðum. Þó menningarsagan sé ekki fyrirferðarmest í bók þessari á hún sína kapítula eigi að síður. Og þeir vitna um nokkuð sem kalla mætti vitleitni, kannski grósku? Sennileg- ast þó eitthvað þar á milli. Mjög er líka fróðlegt að bera stéttaskipting- una, eins og hún var við upphaf kaupstaðarréttinda, saman við nú- verandi skiptingu. Þá unnu langflest- ir við framleiðsluna, fáir hins vegar við þjónustu. Þegar á leið tók mjög að ijölga í síðar nefndu greinunum. Friðrik G. Olgeirsson Mun sú þróun vera svipuð og annars staðar. Enda þótt Ólafsfjörður sé bær stöðugleika hefur hann býsna oft verið í fréttunum. Síðsumars 1988 urðu þar náttúruhamfarir miklar, skriðuföll og flóð meiri en dæmi eru tii. Frá þeim segir hér í sérstökum viðauka, þar sem sögunni var ekki ætlað ná svo langt. Þá hafa sam- göngumálin tíðum beint kastljósinu að Olafsfírði, fyrst vegna Múlavegar, nú síðast vegna ganganna. Vafalaust eiga göngin eftir að marka þáttaskil í sögu bæjarins. En sá kafli er enn varla hafinn og á langt í land að verða saga. Hvort sem það nú er vegna þess að efnið er notalegt eða höfundurinn ritfær vel — nema hvort tveggja sé — er í senn afslappandi og vekjandi að lesa þessa bók. Manni finnst sem óróleiki sá, er tíðum hefur einkennt þetta þjóðfélag, hafi með einhvetjum hætti látið stað þennan ósnortinn, hvernig sem það nú annars mátti verða. Leikur að eldi Bókmenntir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Gillian Cross: Leikur að eldi (þýð. Björg Árnadóttir). Mál og menning, Reykjavík 1991. Nikki á sér enga ósk heitari en að komast í mótorhjólaklíku Tedda, stóra bróður síns, en útlitið fyrir að sú ósk rætist er frekar dökkt. Ekki líður þó á löngu þar til krakkamir í klíkunni sjá sér hag í því að láta Nikka njósna um fjölskyldu skóla- bróður hans sem heitir Jósef Fisher og hann eygir von um að fá að vera meira með mótorhjólagenginu. Hann dregst að Jósef vegna þess að hann veit að þeir eiga sameiginlegt áhuga- mál, nefnilega ævintýraleit og hann fer í magnaða leiki með Jósef og Rut, systur hans. Brátt kemur að því að Nikki er neyddur til að taka ákvörðun um hvort hann stendur með Fisher-fjölskyldunni eða krökk- unum í klíkunni sem ekki eru allir þar sem þeir eru séðir. Leikur að eldi er fyrst og fremst spennusaga sem heldur lesandanum gagnteknum allt til loka. Umfjöllun- arefni höfundarins er um leið siðferð- islegs eðlis og felst í togstreitu Nikka millí Fisher-ljölskyldunnar annars vegar og klíkunnar hins vegar. Hann velkist í vafa um hvort betra sé að gera hreint fyrir sínum dyrum jafn- vel þó slíkt kosti sársauka eða sigla milli skers og báru og segja einung- is hálfan sannleikann. Niðurstaðan er ótvíræð. Það verður að koma hreint fram. Þegar allt kemur til alls er það öllum fyrir bestu. Þrátt fyrir að mikið sé lagt upp úr atburðarásinni fær lesandinn smám saman nokkuð glögga mynd af Nikka og foreldrum hans sem fyrst og fremst virðist vera annt um að halda öllu sléttu og felldu á yfir- borðinu. Pabbi Nikka er upptekinn Gillian Cross af því að halda alls kyns hóf fyrir nágrannana til þess að síýa fram á að allt sé örugglega með felldu og móðir hans neitar blákalt að horfast í augu við að eldri sonur hennar taki þátt í vafasömu athæfi. Fjölskylda Jósefs á í fjárhagsleg- um og tilfinningalegum kröggum sem ekki er haldið frá börnunum og koma fljótlega fram í dagsljósið. Þau reyna að gera sér að góðu að skrimta frá degi til dags við ömurlegar að- stæður sem eru að sundra fjölskyld- unni en siðferði þeirra virðist hamla þeim frá því að gera nokkuð við. Ástandið kemur hvað verst niður á Rut, systur Jósefs, sem er potturinn og pannan í ævintýraleikjum krakk- anna. Hún er fráhrindandi en um leið dularfull og spennandi. Foreldrar systkinanna eru líka ólíkir því sem Nikki á að venjast. Honum finnst þau óþægilega viðkunnanleg og hann er óvanur þeirri ríku áherslu sem þau leggja á siðferði barna sinna. Leikur að eldi er fyrirtaks afþrey- ing fyrir börn og unglinga. Hún flétt- ar á áreynslulausan hátt saman ímyndun og raunveruleika sem slepp- ir manni ekki fyrr en allt er búið. Stíll er einfaldur og textinn þjáll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.