Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 19.12.1991, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991 65 Eitt atriði úr mynd Stjörnubíós. Stjörnubíó sýnir myndina „Bilun í beinni útsendingn“ STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina „Bilun í beinni útsendingu". Með aðal- hlutverk fara Robin Williams og Jeff Bridges. Leikstjóri er Terry Gilliam. Jack Lucas (Bridges) er vinsæll útvarpsmaður sem stjórnar síma- viðtalsþætti í beinni útsendingu. Ekki ræður Jack viðmælendum sínum heilt, heldur gerir óspart grín að þeim. Jack hefur ávallt horft á lífið ofan frá. Hroki hans og sjálfumgleði virðist eðlislæg og hann svífst einskis til að komast hærra í metorðastiganum. Þó kem- ur að því að drambið verður honum að falli og hann neyðist til að horfa á lífið frá öðru sjónarhorni. Hann kynnist Parry (Williams) fyrrum prófessor í miðaldasögu sem nú gengur um götur stórborg- arinnar í furðufötum. Hann hefur skapað sér sinn eigin heim til að einangra sig frá hörmulegum at- burðum í fortíðinni, atburðum sem tengir þessa t.vo einstaklinga órjúf- anlegum böndum. Þótt ótrúlegt megi virðast verða þessir menn vinir. Parry þarfnast ástar, Jack vonar. Hvort tveggja virðist lang- sótt en í sameiningu tekst þeim að sigrast á óttanum, fátæktinni og jafnvel eldrauðum riddara á brennandi fáki. -------♦ ♦ <-------- ■ HVAR ER VALLI? heitir ný bók frá Almenna bókafélaginu hf. Bókin er fyrsta bókin í nýjum flokki bóka eftir Martin Hand- ford. Hvar er Valli? er bók sem ætluð er allri fjölskyldunni og er felumyndabók. Valli er ferðalangur sem ferðast jafnt um tíma og rúm og hann týnist í fólksmergðinni. Og Valli týnir einnig öllum farangrinum. En það er fleira sem lesandinn á að finna. Þórunn Valdimars dóttir verðlaunuð TÍMARITIÐ Bjartur og Frú Emilía - tímarit um bókmenntir og listir, efndi í haust til ör- verkasamkeppni meðal áskrif- enda tímaritsins. Alls bárust 268 örverk, örleikrit og örsögur, frá tæplega 70 höfundum. Dómnefnd keppninnar hefur komist að niðurstöðu og voru úr- slit tilkynnt á samkomu á Hótel Borg nýlega. Fyrstu verðlaun 50.000 krónur, í ávísun, hlaut Þórunn Valdimarsdóttir fyrir ör- _ sögu. Ragna Sigurðardóttir hlaut önnur verðlaun og Ásta Ólafsdótt- ir þau þriðju. Aðrir vinningshafar voru Haraldur Jónsson, Nökkvi Elíasson, Pjetur St. Arason, Harpa Amardóttir, Ingunn Jónsdóttir og Ólina Jóhannsdóttir. Verk þessara höfunda ásamt öðrum útvöldum verkum verða birt í janúarhefti tímaritsins. Þórunn Valdimarsdóttir J§ og gjafavörum. Láttu jólagjöfina frá þér standa til frambúðar. Mikiö úrval fallegra ramma og innrömmunarþjónusta. Katel, Laugavegi 20, sími 18610 Veldu gjöf sem skilar arði fyrir land og þjóð! SKÓGRÆKTARFÉLAG ÍSLANDS GOTT FÓLK / S IA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.