Morgunblaðið - 19.12.1991, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1991
Minning:
Victor K. Jacobsen
fv. skipsljóri
Fæddur 20. júlí 1918
Dáinn 12. desember 1991
í dag, 19. desember, verður okk-
ar ástkæri föðurafi, Victor Jacob-
sen, jarðsunginn. Erfitt er að sætta
sig við þetta en við vitum að nú
líður honum vel.
Hjá okkur systkinunum rifjast
margt upp um hann afa sem gat
gert svo margt, var fyndinn og allt-
af góður. Við fórum tvisvar sinnum
erlendis með ömmu, afa, mömmu
og pabba. Báðar ferðirnar eru eftir-
minnilegar enda margt skemmtilegt
gert og sagt en þá 'var afi einmitt
hress og kátur.
Afi hafði skemmtilega kímnigáfu
og hafði gaman af því að segja
brandara. Þó svo að hann væri orð-
inn veikur og þreyttur gat hann
alltaf fengið alla í kringum sig til
að hlæja.
Afi hafði þann hæfileika að vera
laginn í höndunum og gat því lagað
allt.
Þegar við vorum lítil og jólin
nálguðust þá var afi oft á kafi í
því að laga jólaseríurnar svo við
gætum nú haft ljós á jólatrénu.
Núna eru jólin að koma, jólaseríurn-
ar eru í lagi en afi er farinn. Það
verður auður stóll heima á aðfanga-
dagskvöld en afi verður hjá okkur
öllum í huganum.
Elsku amma, hans er sárt saknað
en nú líður honum vel og minning-
arnar eru svo margar sem enginn
getur tekið frá okkur.
Hildur, Helena og Þorlákur.
Victor Kristján Jacobsen fyrrver-
andi skipstjóri hjá Reykjavíkurhöfn
lést á heimili sínu hér í borg föstu-
daginn 12. desember.
Victor var fæddur í Vestmanna-
eyjum, 20. júlí 1918, nánar tiltekið
á Eiðinu, en þar bjuggu þá foreldr-
ar hans.
Foreldrar hans voru Kristín
Benedikta Jóhannesdóttir fædd í
Reykjavík 7. mars 1892 og Victor
Jóhann Jacobsen, fæddur í Finn-
landi 15. júní 1878, en flutti hingað
til íslands og settist hér að. Þau
hjón áttu 3 sonu, Victor, Leander
og Jóel, en Kristín átti tvö börn í
fyrra hjónabandi. Allt er þetta fólk
nú látið og Victor sá síðasti af þeim.
Victor fór til sjós þegar hann var
á þrettánda ári, sem hjálparkokkur
á togaranum Max Pemberton og
var ýmist þar á unglingsárunum
eða hjá föður sínum, en hann rak
lifrarbræðslu hér í Reykjavík og var
mikil vinna að sækja hráefnið í
verstöðvarnar suður með sjó. Á
sumrin fóru þeir feðgar norður til
Sigluíjarðar og Ingólfsfjarðar og
stunduðu rekstur þar.
Þegar seinni heimsstyijöldin
hófst 1939 breyttust margir hlutir
hér á landi. Vinna var allt í einu
nóg og alls staðar vantaði fólk, og
gat því fólk valið um störf. Þetta
man nú aðeins eldra fólk. Þá breytti
Victor til og hóf leigubílaakstur, er
hann stundaði öll stríðsárin. Hann
átti mikið af föstum viðskiptavin-
um, sem ekki þarf að undrast, því
hann var sérlega þægilegur maður
í umgengni. Má minnast á að hann
var eiginlega einkabílstjóri Maríu
Maack, hafði kynnst henni þegar
hann var á Max Pemberton því hún
var systir Péturs Maack skipstjóra.
Ekki ætla ég að nefna fleiri hér en
oft ók hann þessum viðskiptavinum
í langferðir út á land, því í þá daga
var lítið um bíla í einkaeign.
Aldrei hefur sjórinn horfið úr
huga Victors, þótt hann stundaði
akstur á stríðsánmum, því 1947
réðst hann ásamt félögum í að festa
kaup á einum af hinum svonefndu
„Svíþjóðarbátum" sem ríkissjóður
stóð fyrir byggingu á. Bát sinn
skírðu þeir félagar Otur og var
hann þar vélstjóri á meðan hann
var í eigu þeirra í nokkur ár, þar
til þeir seldu hann. Eftir það var
hann vélstjóri á ýmsum bátum hjá
öðrum. Árið 1952 réðst hann ásamt
félögum í að kaupa mb. Þóri RE
194, eikarbát sem byggður var fyr-
ir aldamót. Útgerð Þóris varð mjög
farsæl og létu þeir félagar smíða
nýjan Þóri, stálskip í Stálvík, og
fluttu þá útgerðina til Grindavíkur,
en hættu og seldu hana 1979. Vict-
or var þá hættur hjá Þóris útgerð.
Milli þess sem Victor rak eigin út-
gerð var hann oft á sjó með Magn-
úsi Grímssyni, þeim mikla afla-
manni og urðu þeir miklir vinir.
Árið 1962 ræður Victor sig sem
skipstjóra á hafnarbáta Reykjavík-
urhafnar og er starfsmaður Reykja-
víkurhafnar þar til hann verður að
hætta 'Störfum á miðju ári 1984
vegna vanheilsu. Sá sem þetta ritar
var í hálfan annan áratug vaktfé-
lagi hans og kynntumst við mjög
vel, því margt bar á góma eins og
geta má nærri. Hann var maður
sem hægt var að trúa fyrir hlutun-
um og treysta í hvívetna.
Þann 2. mars 1950 giftist hann
Hildi Isafold Steingrímsdóttur frá
Sveinsstöðum í Kaplaskjóli. Nú er
það Nesvegur 43 og hafa þau síðan
búið þar alla tíð. Þau eiga 2 syni,
Steingrím, sem býr á Selfossi, og
Hilmar Kristján, sem býr hér í
Reykjavík. Fyrir hjónaband átti
Victor soninn Victor Jóhann, sem
býr hér í borg. Allt eru þetta fjöl-
skyldumenn, og áttu barnabörnin
góðan og skilningsríkan afa þar
sem Victor var, því hann hafði mjög
gott lag og yndi af börnum.
Eins og áður segir hætti Victor
starfi vegna vanheilsu, en hann stóð
meðan stætt var og hafði verið
gerð hjartaaðgerð á honum í Lond-
on ári áður en hann hætti að vinna.
Eftir það var hann oft á sjúkrahús-
um, og sífellt fór heilsunni hrak-
andi uns hann fékk hvíldina.
Við-Þóra, kona mín, og sam-
starfsmenn hjá Reykjavíkurhöfn
sendum Hildi, sonunum og fjöl-
skyldum þeirra innilegustu samúð-
arkveðjur.
Sigurður Þorgrímsson
Ávallt er dauðinn á ferð og erum
við ekki alltaf undirbúin andláti vina
eða ættingja. Nú er hann afi minn
horfinn á braut, ekki mjög gamall,
rúmlega sjötugur. Afi var stórkost-
legur í veikindum sínum, alltaf kát-
ur og glaður. I mínum augum var
hann besti sjómaðurinn því ein-
kennisbúningurinn var skreyttur
gylltum tölum. Ferðalög voru líf og
yndi afa og ferðaðist hann með fjöl-
skyldu sína bæði innanlands og er-
lendis. Minnist ég slíkra ferða með
þakklætishug.
Bílarnir hans afa voru alltaf góð-
ir og fínir og SAAB var í uppá-
haldi hjá honum eins og mér. Minn-
ist ég afa alltaf glettins og bros-
andi og vandamálin uxu ekki hjá
honum.
Margar góðar minningar ylja mér
nú um hjartarætur og er ég þakk-
látur fyrir að fá að hafa v< ið afa
samferða.
Victor Steingrímsson
Sérfræiingar
í blómaskreytingum
vid öll tækifæri
ITl blómaverkstæði
IIINNAfe.
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
HALLDÓR GUNNAR RAGNARSSON,
Fannafold 52,
Reykjavík,
lést af slysförum 18. desember. Útförin auglýst síðar.
Ragnar Þorsteinsson,
Þóra Vignisdóttir,
Þorsteinn T. Ragnarsson,
Valgeir Örn Ragnarsson.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR GUÐBJÖRG KRISTMUNDSDÓTTIR,
Hörðalandi 24,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. desember
kl. 13.30.
Gunnar Finnbogason,
Pálmi Gunnarsson, Álfheiður Gísladóttir,
Finnbogi Reynir Gunnarsson, Þórdís Egilsdóttir,
Kristín G. Gunnarsdóttir, Skúli K. Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
SIGURGEIR ÖGMUNDSSON
rafeindameistari
Stakkholti 3,
Reykjavik,
andaðist að kvöldi 16. desember.
Ólafur Sigurgeirsson,
Guðrún Sigurgeirsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR BJARMAN,
Dalhúsum 81,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 20. desember
kl. 13.30.
Teitur Gunnarsson,
Björn Teitsson, Ásthildur Teitsdóttir,
BaldurTeitsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA BJARNADÓTTIR
fyrrverandi kennari og prófastsfrú
í Reykholti,
verður jarðsungin frá Reykholtskirkju laugardaginn 21. desember
kl. 14.00.
Kveðjuathöfn verður í Dómkirkjunni föstudaginn 20. desember
kl. 10.30.
Bjarni Einarsson, Gfslfna Friðbjörnsdóttir,
Steinunn Einarsdóttir, Heimir Þorleifsson,
Guðmundur Einarsson, Dóra Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
BJÖRGVIN KETILL BJÖRGVINSSON,
Austurtúni 15,
Bessastaðahreppi,
verður jarðsunginn laugardaginn 21. desember kl. 13.30 frá
Bessastaðakirkju.
Hafdís Einarsdóttir,
Harpa Rós Björgvinsdóttir,
Einar Kári Björgvinsson,
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HELGA THEODÓRSDÓTTIR,
Þykkvabæ 17,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í dag, fimmtudaginn 19. des-
ember, kl. 15.00.
Theodór S. Marinósson,
Kristrún Marinósdóttir,
Ásta Maria Marinósdóttir,
Anna Lóa Marinósdóttir,
Gunnbjörn Marinósson,
Magdalena S. Elíasdóttir,
Ingi Garðar Sigurðsson,
Bjarni Ágústsson,
Pálmi Sigurðsson,
Sigrún Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
sLJÓSKER Á LEtflU
Granil s/P
HELLUHRAUNI 14-220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 652707
OPIÐ 9-18. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-15.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR B. JENSSON,
Vesturási 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 20. desember
kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans,
er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið.
Kolbrún Svavarsdóttir,
Aldís Gunnarsdóttir, Sigurður Þorsteinsson,
Gunnar Þór Gunnarsson, Ingibjörg Björnsdóttir,
Rut Gunnarsdóttir,
Dagný Erla Gunnarsdóttir, Auðunn Ragnarsson
og barnabörn.