Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Atta mánaða uppgjör Fiskiðjunnar Skagfirðings á Sauðárkróki
125 milljóna
króna hagnaður
í ÁTTA mánaða uppgjöri Fiskiðj-
unnar Skagfirðings kemur fram
að rekstrarhagnaður tímabilsins
nam rúmum 125 milljónum króna
á móti 61 milljón á sama tímabili í
fyrra. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsgjöld var 480 millj-
ónir, eða 29,4% af tekjum. Veltufé
frá rekstri nam 397 milljónum
króna, eða 24,3% af tekjum.
Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK, segist vera
ánægður með niðurstöður upp-
gjörsins. „Bætta afkomu á milli
ára má einkum rekja til góðrar af-
komu landvinnslu FISK á Sauðár-
króki,“ segir hann. Uppistaðan í
þeirri vinnslu er frysting þorskaf-
urða, auk pökkunar á karfaflökum
af frystitogara félagsins.
Jón Eðvald segir að þar komi
einkum til hátt afurðaverð, þar
sem sala byggi á fyrirframgerðum
samningum. Einnig hafi þorsk-
veiði reynst auðveld, þar sem eitt
skipa félagsins hafi séð land-
vinnslunni fyrir hráefni þ.e.
80-100 tonnum af þorski á viku
hverri. „Pá hefur sú aukning í
þorski sem FISK fékk við síðustu
úthlutun öll verið tekin inn í land-
vinnslu fyrirtækisins," segir hann.
Jón segir að samhæfing veiða
og vinnslu hjá FISK hafi tekist
með ágætum. „Allir starfsmenn
fyrirtækisins hafa lagt sig fram
og tekið þátt í breytingum sem oft
hafa verið fyrirvaralitlar, til að
uppfylla óskir einstakra kaupenda
og eða markaðarins hverju sinni.
Allir þessir þættir hafa haft mikil
áhrif á bættan rekstur og ljóst er
að þáttur starfsmanna FISK í
þessari jákvæðu breytingu er
mjög mikill,“ segir Jón Eðvald.
Fiskiðjan Skagfirðingur
Úr milliuppgjöri - ....—-
1. sept. ‘98 - 30. apríl 1999 98-99 97-98
Rekstrarreikningur Míiijónir króna 1.9-30.4 1.9-30.4 Breyt.
Rekstrartekjur 1.634,4 1.395,1 17,2%
Rekstrarg jöld 1.153.8 1.097.1 5.2%
Hagn. án afskr. og fjármagnskostn. 480,5 298,0 61,2%
Afskriftir (205.91 (204.6) 0.6%
Hagnaður án fjármagnskostn. 274,6 93,4 194,0%
Fjármunatekjur og (gjöld) (149,6) (37,3) 301.1%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 125,1 56,1 123,0%
Eignarskattur (1,5) - -
Hagnaður eftir skatta 123,6 56,1 120,3%
Aðrar tekjur 1,5 5,1 -70.6%
Hagnaður (tap) tímabilsins 125,1 61,2 104,4%
Efnahagsreikningur 30.4 '99 30.4 '98 Breyt.
I Eifinir: 1 Milljónir króna
Fastafjármunir 2.365,3 2.676,5 -11,6%
Veltufjármunir 650,7 440,7. 47,7%
Eignir samtals 3.016,0 3.117,2 -3,2%
1 Skuldlr oa elaid té: 1 Milljónir króna
Skammtímaskuldir 438,1 694,3 -36,9%
Langtímaskuldir 1.716,3 1.776,9 -3,4%
Eigið fé 861,6 645,9 33,4%
Skuldir og eigið fé alls 3.016,0 3.117,2 -3,2%
Compaq og
Deutsche
Telekom
starfa saman
ÞÝSKA símafyrirtækið
Deutsche Telekom mun
bráðlega setja upp netversl-
un í samstarfi við Compaq
tölvufyritækið. Þá verður
hægt að kaupa Compaq
tölvuvörur á Netinu í sam-
ræmi við stefnu fyrirtækis-
ins.
I lok þessa árs áætlar
þýska símafélagið að vera
búið að opna 500 verslanir á
mismunandi stöðum þar sem
hægt verður að kaupa tölvur
á Netinu. Félagið er með
þessu að færa sig meira yfir í
upplýsingatæknina og vonast
þar eftir auknum hagnaði
eftir erfiðleika undanfarið.
Compaq hefur ekki stund-
að viðskipti á Netinu hingað
til en fannst kominn tími til
eftir að aðalkeppinauturinn
Dell sýndi verulegan hagnað
af því að stunda netviðskipti.
Sigurður Einarsson, forstjóri verðbréfafyrirtækisins Kaupþings
Ummæli sfjórnarfor-
manns KEA koma á óvart
FLV hef-
ur starf-
semi
FLUTNINGAMIÐSTÖÐ Vest-
urlands, FLV, sem er hluti af
flutningakerf! Landflutninga og
Samskipa hefur tekið til starfa
að Engjaási 2 í Borgarnesi. Af
því tilefni var haldin formleg
opnunarhátíð í húsakynnum
FLV að Engjaási þar sem
Mjólkursamlag Borgfírðinga
var áður til húsa.
Ólafur Ólafsson forstjóri
Landflutninga - Samskipa bauð
gesti velkomna og sagði það
sérstaklega ánægjulegt fyrir
sig að opna nýja futningamið-
stöð í Borgarnesi þaðan sem
hann ætti góðar minningar frá
uppvaxtarárum sínum.
FLV hyggst bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á heildarlausn
í flutningum á sjó og landi, inn-
anlands sem utan. A flutninga-
leiðum eru notaðir nýlegir
flutningabflar og vagnar með
frysti- og kælibúnaði auk milli-
þils. Tvær brottfarir verða frá
Reykjavík til Borgarness alla
virka daga. Sömuleiðis verða
tvær ferðir frá Reykjavík til
Akraness.
Alls starfa 15 manns hjá FLV
og er Júlíus Jónsson rekstrar-
stjóri flutningamiðstöðvarinn-
ar.
SIGURÐUR Einarsson, forstjóri
Kaupþings, segir ummæli stjórnar-
formanns Kaupfélags Eyfirðinga,
Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar, í
Morgunblaðinu á fimmtudag, þar
sem hann segir tilboð Kaupþings í
Mjólkursamlag Kaupfélags Þingey-
inga ótrúverðugt, koma sér á óvart
og til þess fallin að kasta rýrð á trú-
verðugleika Kaupþings.
„Kaupþing leggur ekki fram til-
boð fyrir hönd viðskiptavinar nema
því aðeins að hann skuldbindi sig til
að standa við tilboðið og hafi að mati
Kaupþings fjárhagslegt bolmagn til
þess. Við bjóðum verulega hærri
fjárhæð í Mjólkursamlagið en samn-
ingurinn við KEA kveður á um
þannig að maður spyr sig hverra er-
inda þeir ganga sem bregðast við
hagstæðu tilboði í félagið með þess-
um hætti. Að halda því fram að ekki
sé full alvara á bak við þetta tilboð
er því úr lausu lofti gripið," segir
Sigurður.
Heimild til ítarlegrar
skoðunar á MSKÞ
Að sögn Sigurðar er tilboð Kaup-
þings til hagsbóta fyrir kröfuhafa og
eigendur Mjólkursamlagsins, sem
eru þingeyskir bændur, en það er
113 milljónum króna hærra en
kauptilboð KEA, sem samþykkt var
á aðalfundi KÞ nýverið.
Kaupþing hefur fengið heimild frá
Kaupfélagi Þingeyinga til þess að
gera ítarlega skoðun á stöðu Mjólk-
ursamlags Kaupfélags Þingeyinga í
samræmi við fyrirvara sem er á 350
milljóna króna tilboði Kaupþings
fyrir hönd viðskiptavinar í samlagið
í næstu viku, að sögn Sigurðar Ein-
arssonar, forstjóra Kaupþings.
Lögmaður KÞ hefur gagnrýnt
fyrirvara Kaupþings á tilboðinu í
fjölmiðlum. Að sögn Sigurðai' er það
viðtekin venja að setja fyrirvara sem
þennan á tilboð í fyrirtæki, hafi
bjóðendur ekki fengið tækifæri til að
skoða reksturinn nægjanlega vel.
Slíkir fyrirvarar séu ekki síst viðeig-
andi við þær aðstæður sem eru í
rekstri KÞ.
„Við verðum að ganga úr skugga
um að ársreikningur Mjólkursam-
lagsins endurspegli raunverulega af-
komu fyrirtækisins. Til að mynda
hvernig uppbótargreiðslum á mjólk
er háttað. Hvort eignarhlutur í
Osta- og smjörsölunni er í eigu KÞ
eða MSKÞ og hvort hann er bund-
inn innlausnarrétti. Hvernig veð-
setningum og ábyrgðarskuldbind-
ingum er háttað. Hvernig mati á
birgðum er háttað. Hvort einhverjir
eftirlaunasamningar eru í gildi og
svona mætti lengi telja. Ef niður-
staða skoðunar okkar á MSKÞ í
næstu viku hefur ekki í för með sér
breytingar á forsendum tilboðsgjafa
verður væntanlega lagt fram
kauptilboð án fyrirvara í MSKÞ,“
segir Sigurður Einarsson.
Ættu að líta í eigin barm
Hann segir að ekki sé hægt að
gefa upp hver tilboðsgjafinn sé en
hann hafi að svo stöddu valið að
koma ekki fram. „Enda er það ekki
nafn hans sem skiptir máli heldur
viðskiptahugmyndin að baki tilboð-
inu. Tilboðsgjafi gerir sér fulla
grein fyrir því að framtíðarvirði
þessa fyrirtækis byggist á góðu
samstarfi við bændur á svæðinu og
hugsanlega fleiri aðila.
Við hjá Kaupþingi sjáum ekki
annað en að tilboðið sé til hagsbóta
fyrir þingeyska bændur. Mér finnst
að menn ættu að líta í eigin barm og
skoða hvernig staðið var að sölu
MSKÞ til KEA áður en þeir gagn-
rýna tilboð umbjóðanda okkar. Það
er óvanalegt að selja eignir út úr
fyrirtækjum rétt áður en óskað er
eftir greiðslustöðvun. Venjan er að
skipa aðstoðarmann sem hefur m.a.
það hlutverk að tryggja að eignir fé-
lagsins séu seldar á réttu verði og
skili sér til félagsins og þar með lán-
ardrottna. í þessu tilviki eru eign-
imar seldar út rétt áður en
greiðslustöðvun er sett á. Því spyr
maður sjálfan sig hvort það sé eðli-
legur framgangsmáti,“ segir Sig-
urður.
Sigurður segir að svo virðist sem
verið sé að reyna að draga athyglina
frá kjarna málsins með þeirri um-
ræðu sem fram hafi farið um þetta
mál. „Menn tala fyrst og fremst um
formið á tilboðinu. Hver það er sem
gerir tilboðið og bréfsefnið sem það
er sent á. Hvað varðar bréfsefnið þá
var fyrst beðið um að við sendum
tilboðið í tölvupósti. Þegar við af-
hentum tilboðið spurðum við sér-
staklega að þvi hvort óskað væri
eftir að það væri á bréfsefni Kaup-
þings og var okkur tjáð að það
skipti ekki máli. Slík útfærsluatriði
skipta hins vegar ekki máli. Aðalat-
riði málsins er að hér er komið fram
tilboð sem er til hagsbóta fyrir
þingeyska bændur og lánardrottna
félagsins," segir Sigurður Einars-
son.
Morgunblaðið/Theodór
FRÁ vinstri, Júlíus Jónsson rekstrarstjóri og Ólafur Ólafsson forstjóri
Landflutninga-Samskipa við hina nýju flutningamiðstöð FLV að
Engjaási í Borgarnesi.
Öfug áhrif auglýsinga
BANDARÍSKA skóframleiðslufyrir-
tækið Just for Feet segir farir sínar
ekki sléttar í viðskiptum við auglýs-
ingastofur, eins og kemur fram í fjöl-
miðlaumfjöllun á vefsíðunni
www.salon.com. Just for Feet réð
Saatchi og Saatchi auglýsingastof-
una í New York ríki til að hanna
sjónvarpsauglýsingu sem var svo
sýnd á besta tíma í auglýsingahléi á
Super Bowl fótboltaleiknum.
Just for Feet hafði aldrei auglýst á
svo góðum tíma en auglýsingin náði
til 127 milljóna heimila og Harold
Ruttenberg forstjóri hugðist nýta
tækifærið vel. Hann vildi kynna stór-
um áhorfendahópi ímynd fyrirtækis-
ins vel, hversu gott fyrirtækið væri
og vinalegt andrúmsloft ríkti þar.
Kostnaðurinn við auglýsingaher-
ferðina nam 7 milljónum dollara, þar
af runnu 3 milljónir til auglýsinga-
stofunnar eða sem samsvarar um
250 milljónum íslenskra króna.
Ruttenberg taldi peningunum vel
varið og sá fram á bjarta tíð með
fjölda viðskiptavina. En eftir að aug-
lýsingin var sýnd hefur allt snúið til
verri vegar.
Auglýsingin fyrir Just for Feet
skóna hefst á mynd af hvítum mönn-
um í hermannajeppa. Þeir elta ber-
fættan Kenyamann og keyra í veg
fyrir hann til að bjóða honum vatns-
sopa. Hann þiggur vatnið en fellur í
ómegin af lyfi sem hermennimir
hafa laumað í vatnið. Á meðan
Kenyamaðurinn er meðvitundarlaus,
þröngva hvítu mennii-nir Nike skóm
á fætur hans. Þegar maðurinn vakn-
ar og sér skóna, verður hann skelf-
ingu lostinn og æpir upp yfir sig.
Loks skríður hann á fætur og hleyp-
ur í burtu en reynir stöðugt að ná
skónum af sér.
Þessa auglýsingu hafa margir
kallað fulla af kynþáttamismunun og
auk þess lýsa nýlendu- og heims-
valdastefnu. Einnig að auglýsingin
geri eiturlyfjum hátt undir höfði, en
þetta eru atriði sem Just for Feet
fyrirtækið vill ekki láta kenna sig
við, að sögn Ruttenbergs forstjóra.
Fyrirtækið vill standa fyrir kyn-
þáttajafnrétti og fordæmir fíkniefna-
notkun.
Just for Feet fyrirtækið stefndi
því Saatchi og Saatchi auglýsinga-
stofunni í mars sl. og krefst 10 millj-
óna dollara skaðabóta. Ruttenberg
telur nægar röksemdir fyrir hendi
og segir auglýsinguna það slæma að
málshöfðun sé réttlætanleg.