Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 53

Morgunblaðið - 05.06.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 53 4. Loks fór svo að Ásgeir opnaði. Hann sagði: Eg sá mér þann kost vænstan. Eg þóttist sjá í hendi mér að annars hefði Ófeigur tínt járn- plöturnar af bíslaginu til þess að komast inn. Svo hlógum við bræð- ur og hugsuðum hlýtt til Ófeigs og dáðumst að þolgæði hans og hús- bóndahollustu. Arni Amundason var fæddur á þeim sögufræga stað Kambi í Vill- ingaholtshreppi. Hann kvæntist dóttur Ófeigs bónda í Kolsholti, sem frá er sagt í þessari grein. Ingunn hét hún og varð manni sín- um hollur förunautur. Ami stundaði ýmsa vinnu og var hvarvetna rómaður vegna dugnað- ar og iðjusemi. Hann réðst til starfa hjá Reykjavíkurhöfn við sprengingar og grjótvinnu. Asgeir bróðh- minn vann um skeið í flokki með Árna. Oft ræddi hann um Árna og var það allt á einn veg. Kvað hann Árna vera einn hinn mesta víking til verka er hann hefði kynnst. Elja hans og útsjón- arsemi, prúðmennska og háttprýði. Snerpa og úthald. Allt var honum leikur í starfi. Er Árni varð áttræð- ur heiðraði Reykjavíkurhöfn hann með því að færa honum heiðurs- skjöld í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf. Árni réðst í að stækka húseign er hann hafði fest kaup á árið 1934. Þá varð hús hans eitt hið reisuleg- asta við Ljósvallagötu. Þar safnaði hann til sín bömum, tengdabörn- um og barnabörnum. Tengdadóttir hans, Auður Gunnarsdóttir, sagði um hann: „I húsi tengdafoður míns vom margar vistarvemr, bæði bjartar, hlýjar og mikils virði fyrir okkur, sem ung vomm þá.“ Auk erfíðisvinnu hjá Reykjavík- urhöfn tók Ami að sér það við- fangsefni að gæta húsbónda Ófeigs tengdaföður síns. Marteinn Ein- arsson kaupmaður var rómaður at- hafnamaður eins og þeir frændur margir, Bergsættarmenn úr Ölfusi. Vínhneigðir vom þeir, sumir hverj- ir, en áttu það sameiginlegt í ýms- um greinum ættarinnar að þola eigi drykkjuna. Kom það fram með undarlegum uppátækjum. Þegar Balbo flugkappinn ítalski flaug með flota sínum yfir Reykjavíkur- bæ árið 1933 í júlímánuði gekk sú saga að Marteinn kaupmaður hafi þreytt drykkju í stórhýsi sínu að Laugavegi 31. Á húsinu sunnan- verðu em svalir. Þangað gekk Marteinn, skv. þjóðsögunni, og mælti: Það em nú fleiri en Balbo sem geta flogið. Frá þeim degi var Ámi ráðinn til þess að vera Mar- teini til trausts og halds. Var þá stundum lögð nótt við dag og hald- ið til hafnarvinnu eftir svefnlausa nótt. Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri bjó um skeið ásamt eiginkonu sinni, Sigurlaugu Jónasdóttur, í húsinu nr. 1 við Ásvallagötu. Jónas var skömngur mikill, djarfur í ræðu og riti. Hjó til beggja handa, enda vanur vopnaviðskiptum úr pólitískum sviptingum sem ritstjóri Dags, málgagns Framsóknar- flokksins. Jónas var sáttfús. Á ný- ársdag hafði hann það fyrir fasta reglu að ganga á fund andstæðinga sinna, ritstjóra Akureyrarblað- anna. Mæltist til sátta og samlynd- is. Ámaði þeim allra heilla á nýju ári. Svo byrjuðu skammirnar aftur á fyrsta virkum degi. Jónas var stórhuga og kappkost- aði í mörgu að auka veg Ríkisút- varpsins. Þó kom fyrir að hann skorti dómgreind og hugarjafn- vægi og stillingu. Frægt var t.d. er hann lét loka fyrir hljóðnema þá er hann átti í kjaradeilu við Þorstein Ö. Stephensen. Var útsending stöðvuð í hádegisútvarpi þótt land- ið væri hemumið og stríð fyrir ströndum. Ami frá Múla skrifaði forystugrein í Vísi: „Þögn yfir Is- landi“. I starfi Jónasar gætti þess að hann teldi sig stýra stórbýli. Hann væri sjálfur hefðai’bóndi og gæti umbunað hjúum sínum fyrir húsbóndahollustu, en tuktað þá í flokki húskarla, sem höfðu aðrar skoðanir en „fóstran Kamarilla". Sigurlaug kona Jónasar var ljúf- lynd og góðviljuð. Hún hafði á yngri ámm verið hægri hönd séra Matthíasar Jochumssonar á Akur- eyri. Var einlæg vinátta og trúnað- ur milli þeirra, þjóðskáldsins og einkaritara hans. Tvö efnisbörn áttu þau hjón, Björgu, sem er eig- inkona Jóns Sen fiðluleikara og fjöllistamanns. Björg vann sem rit- ari á fréttastofu, prúð, kurteis og góðviljuð. Jónas, síðar kunnur og vinsæll útvarpsmaður, sonur þeirra hjóna var ungur og stæltur sveinn á Ásvallagötu 1. Stýrði hann sveit ungra fullhuga, sem stukku yfir girðingar og réðu sér ekki fyr- ir lífsgleði og æskufjöri. Kolbrún, dóttir Jónasar frá fyrra hjóna- bandi, var fíngerð stúlka og grann- vaxin. Hún varð kona Björns Ólafs- sonar fiðluleikara. Gestkvæmt var hjá þeim hjónum, Jónasi og Sigur- laugu. Halldór Laxness mun hafa þegið þar margan sopann og bit- ann. Sat stundum uppi á eldhúsborði hjá frú Sigurlaugu og dinglaði fót- um meðan hann beið eftir vöfflum eða öðra góðgæti. Þá mun Páll Zophaníasson hafa verið tíður gest- ur og setið löngum við spil. Þá varð til kenning Páls um stjórnarfundi í hlutafélögum. Mun það upphaf einkavæðingar. Páll sagði: Lang- flestir stjórnarfundir í hlutafélög- um era haldnir í hjónarúminu. Þegar Björn Olafsson mennta- málaráðherra bannaði Ríkisút- varpinu að birta auglýsingar um dansleiki ógnaði útvarpsstjóra sá tekjumissir er yrði afleiðing aug- lýsingabanns. Brá hann á það ráð, að auglýst skyldi: Hljómsveit leik- ur. Þá skildu_ allir að nú átti að verða ball og Utvarpið tapaði engu. Af opinberam skýrslum og skjöl- um má verða margs vísari um byggingarsögu og íbúa bæjarins. í manntali Reykjavíkur er þess t.d. getið um Brávallagötu að þar sé „engin íbúð fyrr en seint í vetur“. Síðan er skráð ... Halldór ... I bók Ingu Laxness, sem Silja Aðalsteinsdóttir skráði, segir svo á bls. 119: „. . . Þá þvældumst við milli leiguíbúða um hríð, bjuggum um tíma á Laugavegi og á Brá- vallagötu 14. Þar höfðum við tvö herbergi og eldhús í íbúð sem við deildum með Indriða Waage leik- ara og leikstjóra og Elísabetu konu hans. Þau urðu góðir vinir okkar.“ Svo segir Inga frá því að þar hafi glæðst áhugi sinn á leiklist því oft var æft þar heima. Síðan segir: „í íbúðinni á Brávallagötunni stóð skrifborðið undir stóram glugga í stofunni. Einhvern tíma patar Halldór mikið og segir: „Hvemig á ég að fara að? Sólin skín beint í augun á mér, ég get ekki unnið!“ „Fáðu þér skyggni á ennið,“ sagði ég og átti við skyggni með teygju sem var bragðið aftur fyrir hnakka og blaðamenn notuðu oft. Við þessu átti hann engin orð og ég fór sjálf í bæinn og keypti handa hon- um skyggni.“ Elísabet Waage, ekkja Indriða Waage leikara, man vel þann tíma er Halldór og Inga deildu íbúð með þeim hjónum. Gömul saga sem rifj- aðist upp í huga mínum frá vera minni í Utvegsbanka íslands á þessum áram og Indriði hafði sagt mér varð til þess að ég spurði um sannleiksgildi. Indriði hafði sagt mér frá orðaskiptum Laxnesshjón- anna. Inga fór hörðum orðum um framferði manns síns. Hún hafði fundið kramarhús í vasa hans með neftóbaki og býsnaðist yfir sóða- skap sem því fylgdi. Lagði háreysti frá orðasennu inn til sambýlisfólks- ins. Halldór tók öllu með ró. Sagði: Góða Inga. Þetta var bara fyrir 25 aura. Það tekur ekki að býsnast yf- ir því. Guðbrandur Magnússon for- stjóri Áfengisverslunar ríkisins fluttist með konu sinni i íbúðina þegar Halldór og Inga fóra. Þeir Jónas Þorbergsson og Helgi Hjörvar áttu löngum í deil- um um málefni Ríkisútvarpsins. Á tímabili má segja að ríkt hafi óvild, svo ekki sé sagt - fjandskapur. Þegar Jónas lét af störfum og Vil- hjálmur Þ. Gíslason tók við var haft eftir Helga: „Undarlegt er það- og með ólíkindum, en nú er eins og ég muni ekkert nema það besta í fari þeirra Jóns Eyþórssonar og Jónasar Þorbergssonar, aðrar eins andskotans skepnur og þetta vora.“ Jónas Þorbergsson kunni einnig að koma fyrir sig orði. Þing- eyskur bóndi, sem kom í kynnisför til höfuðstaðarins bað Jónas að fylgja sér um miðbæinn. Á Austur- velli sáu þeir lágvaxinn atgerfis- mann stika stóram í átt til Alþing- is. Er þangað kom svipti hinn fót- hvati göngumaður útihurð Alþingis snúðugt upp á gátt og stikaði inn í löggjafarsamkunduhúsið. Bóndinn spyr undrandi: Hver er þessi lág- vaxni maður sem stikar stórum og hrindir hurð af slíku afli? Þetta er Helgi Hjörvar, svarar Jónas Þor- bergsson. Nei, er hann svona lítill? spyr bóndinn. Hann er miklu minni, svarar Jónas. Hvað sem leið langvinnum og háskalegum deilum þeirra útvarps- manna, Jónasar og Helga, þá er það í frásögur fært og þótti tíðind- um sæta er Jónas Þorbergsson stóð snemma morguns og vætti skeggbursta sinn með raksápu, horfði í spegil sinn, skóf vanga sína og snyrti að honum þótti sem eitt- hvert það verk væri óunnið og þyrfti að ljúka áður en dagur væri að kvöldi kominn. Greip hann yfir- höfn sína og skundaði sem leið lá í Suðurgötu 6. Sá sem þar réð hús- um hafði séð til ferða komumanns og skundaði niður traðimar að leiða gest til stofu. Urðu nú fagnað- arfundir, faðmlög, blessunarorð og fyrirbænir. Og ekki synjað fyrir að vöknað hafi hvarmar er tilfinningar titraðu í brjósti öldunga. Höfundur er þulur. Rafiðnaðarmenn í RSÍ Spennugolf 1999 Spennugolf 1999 verður að þessu sinni haldið á STRANDAVELLI (GHR) á Hellu föstudaginn 11. júní nk. Farið verður frá RSÍ á Háaleitisbraut kl. 12:00 stundvíslega. Að venju verða vegleg verðlaun f boði. Þátttökugjald er kr. 3.000 eins og í fyrra. Innifalið í því er flatargjald, rútuferð, góð golfpeysa og smá veitingar. Tilkynningar um þátttöku skulu berast til Rafíönaðarskólans í síma 568 5010. Þar skal tilkynna forgjöf og einnig hvort viökomandi ætii að koma með rútunni. Munið að skrá ykkur tímanlega. Það auðveldar undirbúningsvinnuna. JÓNSMESSUHÁTÍÐ RAFIÐNAÐARMANNA Árleg fjölskylduhátíð Rafiðnaðarsambandsins í landi símamanna við Apavatn 25.-27. júní. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði. íþróttir, veiði, varðeldur, dansleikir, hoppkastali, rennibraut og margt fleira. Hátíðin er félagsmönnum að kostnaðarlausu RouenBLAoe. Viablade ABECIIegur Svört74mmdekk m £) U Stærðir 37-47 fíOLLGRBLADe. Viablade IX7 ABEC3legur Glær 76 mm dekk Stærðir 37-47 USLO* 6-9°° 64 mm dekk Stærðir 30-35 fíouefíBLAoe. Canvas fíOLLefíBLADe. WBS Polo 2 í einum: Skór + skauti ABEC 1 legur fl Glær 74 mm dekk^tfu €aG Stærðir 41-47 ABEC 3 legur j I Stærðir 40-46 —„ ÆafiPJrtf I 55 mm dekk fT • 7* UTILIF <il| /'• lol I GLÆSIBÆ * Simi 581 2922 • www.utilif.is Opið 10 - 18, laugardaga 10 - 16. Crind Skórtil að„slæda" á handriðum. Stærðir 40-46 V" ír 41 x.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.