Morgunblaðið - 05.06.1999, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 05.06.1999, Qupperneq 70
70 LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Emilíana Torrini gefur út breiðskífu Ég hef alltaf ætlað mér þetta Lítið hefur borið á söngkonunni Emilíönu Torríni undanfarið ár enda hefur hún búið og starfað í Englandi í --------------y--- nokkurn tíma. I febrúar á þessu ári gerði hún samning við útgáfufyrirtæk- ið One little Indian og vinnur nú að plötu sem væntanleg er á markað í október. Eyrún Baldursdóttir talaði við söngkonuna og fékk upplýsingar um strauma og stefnur í tónlistar- sköpun hennar. „FYRIR mér er langþráður draumur að rætast því ég hef alltaf ætlað mér að fara utan og vinna að plötu,“ segir Emilíana og brosir út að eyrum. „Eg veit lítið hvemig þetta fer en samt sem áð- ur er þetta roooooosalega gaman.“ Rafræn popptónlist Emilíana hefur heillað íslendinga með túlkun sinni á lögum sem flest eru ljúfar ballöður. Blaða- manni lék forvitni á að vita hvort tónlistin á plötunni væri frábrugð- in því sem hún áður fengist við „Já, mig langaði að gera eitt- hvað öðruvísi en ég hef áður gert þrátt fyrir að enn séu ballöðurnar ráðandi,“ svarar hún. „Eg er orðin tölvuvæddari og á disknum er að finna tónlist sem kalla mætti raf- ræna popptónlist. Þessi plata er ólík hinum að því leyti að hún er ekki út um allt heldur meira ein lína, hér er lítið verið að stökkva út um allar trissur. Reyndar er ég þannig gerð að vilja alltaf vera að gera allt í heiminum en sumir þeirra tónlist- armanna sem ég hef starfað með hafa séð til þess að aga mig.“ sagði söngkonan sem hefur sér til fulltingis Roland Orzabal úr Te- ars for fears, Eg White, Sigtrygg Baldursson, Alan Griffiths og Mark Abys. Hún segir tónlist- armennina sem að plöt- unni koma hafa ólíkan tónlistarbakgrunn og einmitt það geri útkom- una „skringilega en mjög góða“. Ertu búin að fínna þinn stfí? „Já svona byijunina, ég finn að tónlistin mín er að þróast. Mig langaði alltaf að prófa að spila tölvupopp en það er auðvitað ekki víst að ég muni alltaf gera það. Næsta plata gæti þess vegna orðið allt öðruvísi. Ég er farin að skrifa tónlist sjálf en það er nokkuð sem ég hef alltaf verið voðalega feimin við og ekki þótt mikilvægt. Mér finnst mjög gaman að syngja eigin lög en einnig að túlka það sem aðrir hafa skrifað. Það sem skiptir máli er að nú er ég orðin miklu öruggari með það sem ég hef sjálf gert.“ Semur þú öll lögin á plötunni? „Ég samdi flest lögin ásamt Egg White og Sigtryggi en Rol- and semur einn tvö lög á disknum. Við Roland ætluðum reyndar að skrifa saman en hann er svo fljót- ur að semja að þegar ég var komin með eina nótu var hann næstum búinn með lagið“ segir hún kímin. Platan hefur enn ekki fengið nafn þegar þessi orð eru skrifuð, þegar blaðamaður spurði Emilíönu hverju það gegndi hló hún og benti á að þau væru búin að vera í svakalegu tímahraki og það væri í raun mjög stutt síðan hefði komið í ljós að platan næði að koma út á þessu ári. „Svo byrja ég alltaf á vitlausum enda, við byrjuðum á upptökum en sömdum lögin á meðan.“ Smáskífa í lok sumars Emilíana gerði samning við út- gáfufyrirtækið One little Indian hreint hverjir sjá um útgáfu í Am- eriku. Blaðamaður var forvitin um hvenær landsmenn fengju að heyra afraksturinn og Emilíana sagði ekki langa bið á því. „Breið- skífan kemur út 25. október en þrjár smáskífur verða gefnar út á undan, sú fyrsta heitir Dead thingsog kemur út í júni.“ Hefð er fyrir því að gefa smáskífur út til kynningar á breiðskífum og hér heima munum við fá að heyra nýja efnið hennar Emilíönu fyrr en aðrir. Líklegt er að nýtt lag, „Come out“ sem Emilíana syngur, ómi um þessar mundir í eyrum lands- manna. Það er lag af nýútkominni Dip-plötu þeirra Sigtryggs Bald- urssonar og Jóhanns G. Jóhans- sonar sem á að sögn Emilíönu ekki skylt við nýju plötuna henn- ar. lega í bingóhöllinni í London en þar er ég meðlimur og spila oft bingó á föstudögum. Við tókum myndbandið upp í höllinni og er- um að spila þar í alvörunni. Mynd- bandið er eiginlega mjög skemmtilegt en ég var hrædd um að lagið gæti verið misskilið sem alvöruþrungið vegna þess að það er mjög rólegt. Því hefði verið frekar dramatískt að gera sorg- legt myndband. Tökur stóðu yfir í fjóra daga og fóru að hluta til fram á Spáni,“ segir Emilíana og bendir hlæjandi á að það hafi verið ágætt sumarfrí í leiðinni. Hún stefnir að því að gera annað myndband með sama leikstjóra í sumar. Ánægð en hógvær Emilíana segir viðbrögð þeirra sem heyrt hafa tónlistina vera framar vonum „en svo veit maður aldrei hvað verður því það getur allt gerst í þessum bransa og í raun er hann miklu erfiðari en ég hélt.“ Aðspurð um hvaða væntingar hún hefði um við- tökur sagðist hún ekki búast við að platan færi í topp tíu en lagði áherslu á að oft væri framinn fyrr á þessu ári. Það er fyrir- tæki sem stofnað var út frá Sykur- molunum og hefur síðan gert samning við ýmsa þekkta tónlist- armenn eins og Chumbawamba, Skunk Anansie, Shave Man, Snea- ker Pimps, Björk, Ruby Cruser, Alabama 3 og fleiri. Samninguiinn ætti því að geta gefið Emilíönu góða möguleika að koma sér á framfæri. Hún sagðist vera mjög ánægð með samninginn og að hann setji henni hvorki skorður í tónlistarsköpun né öðru. One little Indian gefur plötuna út i Englandi en hefur sérstakan samning við Virgin Records sem sér um útgáfu annarsstaðar í heiminum. Enn er ekki komið á BINGÓ Emilíana hefur gert myndband við lagið „Dead Things" og fékk mikilsvirtan leikstjóra, Sophie Miiller, til liðs við sig. Sophie hef- ur gert mörg þekkt myndbönd eins og við lögin „Song nr. 2“ fyrir Blur, „Venus As a Boy“ fyrir Björk og hún hefur einnig unnið myndbönd fyrir Cardigans, Gar- bage og fleiri þekkta tónlistar- menn. I myndbandinu er Emilíana að spOa bingó og er nokkuð ljóst hvaðan sú hugmynd er sprottin. „Ég kynntist leikstjóranum nefni- spurning um heppni. „Það sem mér finnst, óháð því sem menn trúa í fyr- irtækinu, er að þetta verði ekki brjálæðis- lega stórt. Ég reyni bara að leggja mig fram við að gera góða tónlist og vona að fólk kunni vel að meta hana vegna þess að ég er sjálf rosalega ánægð með þetta. Hér heima mætti þetta ganga vel, það væri leiðinlegt ef maður yrði útskúfaður úr landinu eftir útgáf- una“ segir hún og skeilihlær. Aðspurð um hvort tónleika sé að vænta bráðlega sagði hún margt óvíst í þeim efnum, útgáfu- tónleikar verði hér heima en ekki sé búið að ákveða hvenær. Hún segist verða nokkuð á Islandi á næstunni. „Ég kem til að vera við- stödd útgáfu tónleika Dip og fer einnig í Eyjar í sumar með nokkra enska vini mína. Maður er orðinn svo mikOl fóðurlandssinni og vill kynna landið sitt,“ sagði söngkonan unga sem líklega á eft- ir að vera stórtækari landkynning en hún vill láta í veðri vaka. Stutt Reytaarfa eða njóta ásta? NÝLEG könnun sýnir að talsverður fjöldi fólks kýs fremur að reyta arfa í garðinum en að njóta ásta með maka sínum. Könnunin var framkvæmd á vegum Garðyrlqustöðvarinnar Home & Garden Television í Bandaríkjunum og sýnir að 52% karlmanna í úrtakinu kusu frekar að veltast um í blómabeð- um en í rúminu með eiginkonunni, en 47% kusu frekar í-úmið. Konumar kusu einnig garðinn fram yfir hjóna- sængina og voru 47% þeirra hrifnari af garðinum en eiginmanninum, en 31% sagðist frekar vilja karlinn en garðinn. ✓ Astardrykkur Svía SÆNSKUR gosdrykkjaframleiðandi hvetur nú Svía til að þamba nýjan drykk sinn, Niagara, sem sagður er hafa geysigóð áhrif á kyngetu manna. Framleiðandinn lýsir hinum bláleita Niagara sem eina ástar- drykknum á Norðurlöndum. „Ljósbláar sænskar myndir sjö- unda og áttunda áratugarins gerðu Svía þekkta fyrir frjálsræði þeirra í kynferðismálum," segir Stefan Nero, framleiðandi Niagara. „Núna er rétti tíminn til að halda þeirri ímynd aftur á lofti og Niagara er lausnin." Það er eflaust, engin tUviIj- un að Niagara er blátt að lit og rím- ar við getuleysislyfið Viagra. Ríkasta Qölskyldan EITT minnsta land í Evrópu, Li- echtenstein, hýsir ríkustu konung- bomu fjölskyldu álfunnar, en eignir hennar eru metnar á meira en 350 milljarða íslenskra króna, samkvæmt nýlegri könnun sem birt var í EuroBusiness-tímaritinu. Ef ríkidæmi konungsfj ölskyldna Evrópu er kannað kemur í Ijós að tíu ríkustu fjölskyldumar eiga í eignum ríflega 1.750 milljarða króna. I þeirri tölu er ekki gert ráð fyrir eignum í eigu ríkisins sem fjölskyldimnar hafa þó einkanot af, en þær eignir myndu nema um 4.000 milljörðum króna. I öðm sæti á listanum var Lúxem- borgarafjölskyldan í Lúxemborg og breska konungsfjölskyldan skipaði þriðja sætið. Blessað á barnum HÓPUR kristinna hefur tekið yflr rekstur sögulegrar krár í bresku borginni Bradford í þeim tilgangi að fá fleiri til liðs við hópinn. Hug- myndin er að yfír bjórglasi og spjalli um íþróttir muni margir taka trúna. Kráin Cock and Bottle er 170 ára gömul og starfsfólkið mun allt vinna í sjálfboðavinnu við að færa væntan- legum félögum bjór og með því. „Sumir eru hræddir um að kráin verði eins og kirkja, en því fer fjami. Hér geta menn spjallað um boltann og fengið sér bjór,“ segir séra Robin Gamle. „Kráin okkar verður staður þar sem allir eru vel- komnir.“ Síðasti Ona indíáninn allur SÍÐASTI Ona indíáninn frá Argent- ínu er nú allur og með dauða hans er níu þúsund ára sögu þjóðflokksins lok- ið. Virginia Choinquitel fékk hjartaslag á miðvikudaginn í Rio Grande, en hún var 56 ára að aldri. Mannfræðingurinn Miguel Angel Pal- ermo kvað upp á sínum tíma að síðasti karl Ona indíánaþjóðflokksins hefði látist árið 1995, en Choinquitel var síð- asta konan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.