Morgunblaðið - 20.11.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 20.11.1999, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samið um 390.000 tonna þorskkvóta í Barentshafí Hlutur Islendinga verður 7.254 tonn SAMKVÆMT ákvörðun Norð- manna og Rússa um leyfilegan heildarafla á þorski í Barentshafi á næsta ári, 390.000 tonn, verður hlutur okkar Islendinga þar 7.254 tonn eða 1,86%. A þessu ári var hann 8.900 tonn, en þá var heildar- kvóti í Barentshafi 480.000 tonn. Hlutur Norðmanna í loðnuveiðum hér við land minnkar að sama skapi, en þeir halda sömu heimildum og áður í öðrum tegundum. ísland fær þá 3.627 tonn af þorski úr norskri lögsögu, en þeir fá veiði- heimildir hér við land á móti. Við fá- um annað eins úr þeirri rússnesku, en þurfum að greiða markaðsverð fyi’ir 1.360 tonn af því. Kristján Ragnarsson, formaður LIU, segir að veiðin á þessu ári hafi gengið fila, enda hafi dregizt úr Þjóðarpúls Gallups Lítil breyt- ing á fylgi flokkanna EKKI eru miklar breytingar á fylgi stjórnmálaflokkanna frá síðasta mánuði, sem fram kemur í frétta- bréfi Gallups. Heldur fleiri styðja Samfylkinguna, Vinstrihreyfmguna- grænt framboð og Framsóknar- flokkinn núna en fyrir mánuði. Sam- fylkingin fengi rúmlega 19% at- kvæða ef gengið væri til kosninga nú, Framsóknarflokkurinn tæp 18% og Vinstri-grænir 15%. Frjálslyndi flokkurinn fengi innan við 1% at- kvæða. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalai’ frá síðasta mánuði. Hann er með rúm 47% fylgi en var með einu prósentustigi hærra fyrir mánuði. Stuðningur við ríkisstjórnina er mikill, en rúmlega 68% myndu styðja hana samkvæmt könnun Gallups. Fleiri eru óánægðir með störf . stjórnarandstöðunnar en ánægðir. Tæp 40% eru óánægðir en um 27% ánægðir. Geir Haarde vinsæll I könnuninni var spurt um störf ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Mest var ánægja með störf Geirs H. Haarde fjármálaráðherra. Um 70% þeiiua sem svöruðu voru ánægðir með störf hans. Næstur í röðinni kom Davíð Oddsson forsætisráðherra. Um 63% voru ánægðir með störf hans. 50% lýstu ánægju með störf Björns Bjamasonar menntamálaráðherra og sama hlutfall lýsti ánægju með störf Sólveigar Pétursdóttur dómsmála- ráðherra. 47% lýstu ánægju með störf Sturlu Böðvarssonar samgöngu- ráðhen-a. Fæstir voru ánægðir með störf Árna Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra eða tæplega 45%. hömlu að ganga formlega frá veiði- heimildum okkar í Barentshafí. Þá hafi því aldrei verið svarað hve mik- ið skyldi greiða fyrir veiðiheimild- irnar frá Rússum. Fyrir vikið hefði ekkert verið veitt úr rússneska kvótanum. Nú komi þessi ákvörðun miklu fyrr og því séu meiri líkur á því að það takist að nýta þessar heimildir. Litlar líkur á góðri veiði „Líkurnar á góðri veiði eru reyndar ekki miklar vegna slakrar stöðu þorskstofnsins. Eg tel þó að menn muni sameina veiðiheimildir til að nýta þennan norska kvóta, ef eitthvað fiskast,“ segir Kristján. „Ég er hins vegar mest hissa á ákvörðun um svona mikla veiði og að ekkert mark skuli tekið á ráðgjöf Höfn. Morgunblaðið. í TILEFNI af því að Svavar Guðnason listmálari hefði orðið 90 ára hinn 18. nóvember sl. verður í dag opnuð sameiginleg sýning á verkum eftir Svavar í eigu Lista- safns Austur-Skaftafellssýslu og verkum eftir listmálarann Gunnar Öm, sem setur sýninguna saman. Að sögn Gunnars er það nýmæli að setja saman í eina sýningu verk eftir tvo málara af tveimur kynslóð- um, en þessi hugmynd kviknaði hjá Menningarmálanefnd Homafjarð- ar. Hann segii’ að því fylgi afskap- lega góð tilfinning að setja upp Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Það er mælt með 110.000 tonnum og 230.000 sem valkosti eftir því hve hratt eigi að byggja stofninn upp. Nú setja Norðmenn og Rússar stofninn í slíka hættu með 390.000 leyfílegum afla, að hann getur hreinlega hmnið. Sömu sögu er að segja af ýsunni. Mælt var með há- marksveiði upp á 35.000 tonn, en ákveðið er að leyfa veiði á 62.000 tonnum. Þeir fylgdu hins vegar ráð- leggingum í loðnunni. Okkur finnst þetta ekki vera ábyrg fiskveiðistefna og þeim til mestrar áhættu sjálfum. Við þurf- um út af fyrir sig ekki að harma það, nema hvað okkur finnst lítill skilningur á vísindunum á þessum bæ,“ segir Kristján Ragnarsson. myndir með Svavari, enda hefur Gunnar Öm verið einlægur aðdá- andi Svavars um langt skeið. „Svavar var auðvitað þessi litasnill- ingur og ekki var síðri þessi ljóð- ræni strengur í verkum hans,“ segir Gunnar Öm. Sýningin verður haldin í Pakk- húsinu á Höfn, en þar réð ríkjum um skeið Guðni Jónsson, faðir Svavars, þegar húsið var vöm- geymsla kaupfélagsins. Svavar vann einnig sjálfur í húsinu áður en hann kvaddi heimahagana til að helga sig málaralistinni. Svavars Guðnasonar listmálara minnst á Höfn Morgunblaðið/Sigurður Mar Á myndinni sést Gunnar Örn með myndir eftir Svavar, sem bíða þess að fara á vegginn, en í gær var unnið af kappi við að útbúa salinn fyrir sýninguna, sem verður opnuð kl. 14 í dag. Sýning á verkum Svavars í heimabyggð Morgunblaðið/Kristinn Sigurður Guðmundsson landlæknir opnaði heilsuvefinn netdoktor.is með formlegum hætti í gær. Heilsuvefurinn netdoktor.is opnaður í gær Itarlegar upplýs- ingar um heilsufar SIGURÐUR Guðmundsson land- læknir opnaði formlega heilsuvefínn netdoktor.is í gær að viðstöddu fjöl- menni. Hægt er að komast inn á heilsuvefinn í gegnum fréttavef Morgunblaðsins mbl.is. A vefnum era m.a. tengingar við stofnanir og félög í heilbrigðiskerf- inu en vefurinn mun ekki síst nýtast almenningi í leit að margvíslegum upplýsingum um lyf, sjúkdóma, samlíf og kynlíf og margt fleira. A vefnum er komið á framfæri miklu magni upplýsinga á „mannamáli" eins og aðstandendur vefjarins tóku skýrt fram, enda á vefurinn einkum að höfða til almennings. Vefurinn er gerður að danskri fyrirmynd, netdoktor.dk, sem er heilsuvefur, sem hefur verið starf- ræktur í Danmörku í hálft annað ár og vaxið gríðarlega. Má nefna að vikulegar heimsóknir á vefinn era um 100 þúsund og starfsmönnum hans hefur fjölgað úr einum í á fimmta tuginn á þessu ári. Framkvæði að gerð netdoktor.is átti Vefmiðlun ehf. og vann hugbún- aðarfyrirtækið Sólver einnig að gerð hans auk annaira. Björn Tryggvason svæfingalækn- ir og formaður Vefmiðlunar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að netdoktor.is væri m.a. ætlað það hlutverk að hvetja almenning til aukinnar ábyrgðar á eigin heilsu. Hægt að fínna upplýsingar um fyrirbyggjandi þætti „Ég tel að heilsuvefurinn muni sérstaklega gagnast fólki í leit að fræðslu um hugsanlega kvilla, sem hrjáir það eða skyldmenni," sagði Björn. „Einnig er unnt að leita sér upplýsinga á vefnum um margskon- ar fyrirbyggjandi þætti sem varða heilsufar, t.d. hvað unnt sé að gera til að koma í veg fyrir að fá sjúk- dóma og hvenær sé tímabært að leita læknis.“ Á netdoktor.is verður bráðlega hægt að finna upplýsingar um sili- kon-brjóastaðgerðir, sem dr. Rafn Ragnarsson yfirlæknir lýtalækn- ingadeildar Landspítalans hefur tekið saman og er það í fyrsta sinn sem íslensku fræðsluefni af því tagi er komið á framfæri við almenning með skipulögðum hætti. Breytmgum a deiliskipu- lagi Kvosarinnar frestað ÚRSKURÐARNEFND skipulags og byggingamála hefur frestað breytingum á deiliskipulagi sem voru gerðar í sumar til þess að koma í veg fyrir vínveitinga- og skemmtistaðarekstur í Kvosinni. Kristján Jósteinsson, eigandi skemmtistaðarins Club Clinton, kærði breytingamar á sínum tíma til Skipulagsstofnunar, en þær hefðu gert það að verkum að loka þyrfti staðnum. Fyi-r í sumar tilkynnti Borgar- skipulag Reykjavíkur Ki-istjáni Jó- steinssyni eiganda skemmtistaðar- ins Club Clinton þessa ákvörðun. Kristján taldi að aðferð við undir- búning og kynningu þessarar ákvörðunar hafi verið ólögmæt og kærði á þeim forsendum. í niður- stöðu úrskurðarnefndarinnar segir meðal annars, að ekki verði framhjá því litið að nokkrir annmarkar virð- ast hafa verið á undirbúningi hinnar kærðu ákvörðunai’ og framkvæmd grenndarkynningar í málinu og álitaefni hvort að hin kærða ákvörð- un sé reist á lögmætum sjónarmið- um, svo að hvort hún samræmist jafnræðisreglu. Sérblöð í dag www.mbl.is Á LAUGARDÖGUM ¥ FCDI'^ LLaDun Með Morgun- blaðinu f dag er dreift blaði frá Spar- sport, „Það er sport að spara“. Með Morgun- blaðinu í dag er dreift blaði frá Tal, „Vetur!“. Stjörnumenn lögðu Víkinga í Garðabæ / C2 Birgir Leifur dróst aftur úr á Costa del Sol / C3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.