Morgunblaðið - 20.11.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 27
VIÐSKIPTI
BP Amoco200
milljarða
punda virði
London. Reuters.
BREZKI olíurisinn BP Amoco Plc
hefur bætzt í hóp örfárra fyrir-
tækja í heiminum, sem eru talin
meira en 200 milljarða dollara virði.
Upphæðin er rúmlega tvisvar
sinnum hærri en sameiginleg skuld
33 fátækustu þjóða heims, en lægri
en viðskiptahalli Bandaríkjanna á
þessu ári samkvæmt spám.
Ekkert annað brezkt fyrirtæki
hefur náð eins langt og með árangri
sínum treystir BP Amaco stöðu
þungaiðnaðarfyrirtækja gegn há-
tæknifyrirtækjum í röð voldugustu
fyrirtækja heims, þar á meðal
Microsoft Corp, Intel Corp og
Nippon Telegraph & Telephone
Corp. í Japan.
Auk BP Amaco eru einu fyrir-
tækin, sem náð hafa jafnlangt án
þess að vera hátæknifyrirtæki,
verzlanakeðjan Wal-Mart Stores
Inc og General Electric Co.
Aður en BP bættist í hópinn var
NTT í Japan eina fyrirtækið utan
Bandaríkjanna sem tilheyrði vold-
ugustu fyrirtækjunum. Staða
fjarskiptafyrirtækja styrkist bráð-
lega þegar MCI WorldCom eignast
Sprint Corp.
Hlutabréf BP Amoco eru 19.498
milljónir talsins og hvert þeirra um
sig var 636 pensa virði þegar við-
skiptum lauk, en heildarverð þeirra
nam 201,7 milljörðum dollara.
Verð bréfanna komst í 652 pens í
júlí, en það hefur lækkað síðan.
John Browne forstjóri notaði
olíuverðlækkunina í fyrra til að
kaupa bréf á lágmarksverði og
reyndi síðan að draga úr kostnaði.
BP eignaðist Amoco í Bandaríkj-
unum með 55 milljarða dollara
samningi á gamlársdag 1998. Vonir
standa til að eftir nokkrar vikui’
verði gengið frá öðrum 27 milljarða
dollara samningi um kaup á Atlan-
tic Richfíeld Co í Bandaríkjunum,
þegar gengið hefur verið að skil-
yrðum eftirlitsyfirvalda.
♦ ♦♦-------
Statoil og Fortum
breyta áformum
Ósló. Reuters.
STATOIL í Noregi og finnska fyr-
irtækið Fortum hafa hætt við fyrir-
ætlanir um að koma á fót sameigin-
legu fyrirtæki til að reka þjónustu-
og olíumiðstöðvar í Rússlandi,
Eystrasaltslöndunum og Póllandi.
í staðinn hafa fyinrtækin ákveðið
að halda viðræðunum áfram með
það í huga að koma til leiðar sam-
starfi á breiðari grundvelli um
vöruflutninga og olíumiðstöðvar í
löndunum.
Statoil vill styrkja stöðu sína í
löndum þeim sem um ræðir. Fyrir-
tækið vill stækka net þjónustumið-
stöðva, sem það hefur á sínum
snærum í Póllandi, Litháen, Lett-
landi, Eistlandi og Rússlandi.
Statoil á 97 stöðvar í Póllandi, 33
í Eistlandi, 31 í Lettlandi, 28 í Lit-
háen og 3 í Murmansk i Rússlandi.
Opið hús kl. 2-6
laugardag og sunnudag
Læríð að skreyta aðventukransa,
hurðakransa, bínda grenihringi,
gera slaufur, o.fl. o.fl.
Jólaskreytingar
Hjördís Jónsdóttir
Helene Christensen
Grenibindingar
Bjarni Ásgeirsson
Slaufugerð
Berglind Hannesdóttir
U ■
VINNAN GOFGAR MANNINN
EN HONUM
habitat
Opiö um helgar: laugard. 10-18 og sunnud. 13-17.
I >I> SiSSiOÉMhtOOÍBlt
•iLkJjSb iJltKJl .íiJiliái
E8239 ODDI HF.