Morgunblaðið - 20.11.1999, Page 14
14 LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Iðnaðarnefnd kallar eftir skoðunum á Fljótsdalsvirkjun
Fólk hvatt til
að senda tölvupóst
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Markús Orn Antonsson, útvarpsstjóri RUV, tók í notkun nýja lang-
bylgjusendinn á Eiðum.
Nýr langbylgju-
sendir á Eiðum
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
H JÁLMAR Ámason, formaður iðn-
aðamefndar Alþingis, hvetur al-
menning eindregið til að senda
nefndinni skoðanir sínar í tölvupósti
og þá sérstaklega á þingsályktunar-
tillögu iðnaðarráðherra um fram-
hald framkvæmda við Fljótsdals-
virkjun. Þetta kom fram á fundi í
húsakynnum nefndarinnar á
fimmtudag þar sem upplýsingavef-
ur hennar á Netinu var kynntur
fjölmiðlum.
Nefndarmenn iðnaðamefndar
kynntu fjölmiðlum upplýsingavef
nefndarinnar sem settur hefur verið
upp á vef Alþingis. Á vef iðnaðar-
nefndar er hægt að fá upplýsingar
um nefndarmenn, þau mál sem
nefndin hefur haft til umfjöllunar
og svo er hægt að senda tölvupóst
tO nefndarinnar með athugasemd-
Landsþing
Frjálslynda
flokksins
sett í dag
AUKALANDSÞING Frjáls-
lynda flokksins hefst í dag í
Reykjavík. Flokkurinn á um
þessar mundir eins árs afmæli
og verður á fundinum fjallað
um stefnu flokksins í helstu
málaflokkum.
Við upphaf fundar flytja
ávörp Matthías Bjarnason,
fyrrverandi alþingismaður og
sjávarútvegsráðherra, Guð-
mundur G. Þórarinsson, fyrr-
verandi alþingismaður, Jón
Armann Héðinsson, fyrrver-
andi alþingismaður, og Jón
Sigurðsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri. Sverrir Her-
mannsson, formaður flokksins,
ræðir stjómmálaviðhorfið á
fundinum.
Á fundinum verður fjallað
um skipulagsmál flokksins og
Helgi G. Þórðarson, formaður
fjármálaráðs, gerir flokks-
mönnum grein fyrir fjármál-
um hans.
Fundurinn verður settur kl.
10 í dag í Borgartúni 6. Mál-
stofur starfa eftir hádegi, en
fundinum lýkur á morgun með
afgreiðslu ályktana.
116 mánaða
fangelsi
HÆSTIRÉTTUR hefur stað-
fest 16 mánaða fangelsisdóm
yfir 23 ára manni, sem var
tvívegis handtekinn á síðasta
ári með umtalsvert magn
fíkniefna í fórum sínum.
I fyrra skiptið var maður-
inn með 27,74 g af amfetamíni
og 4,54 g af hassi, en í hið síð-
ara með 73 e-töflur, auk tæp-
lega 14 gramma af e-
töflumulningi.
Maðurinn hélt því fram fyr-
ir dómi að í fyrra skiptið hefði
hann verið „burðardýr“ fyrir
rétta eigendur efnanna, en
þyrði ekki að segja til þeirra.
I síðara skiptið neitaði hann
með öllu að eiga fíkniefnin,
sem lögreglumenn sáu hann
kasta út um glugga á bíl þeg-
ar þeir veittu honum eftirför.
Honum var hvorki trúað í
héraði né fyrir Hæstarétti.
um um þingmál sem hún hefur tO
umfjöllunar. Netfangið er idnadar-
nefnd@althingi.is.
Hjálmar segir upplýsingavefinn
og þá möguleika almennings tO að
senda nefndinni tölvupóst vera stórt
skref í lýðræðisátt. Með þessu næð-
ist beint samband við almenning í
landinu og þetta væri mikOvægt
skref tO að auka lýðræðislega virkni
þingnefnda og gefur þingmönnum
meiri og betri möguleika á að fá
fleiri sjónarmið þegar þeir leggja
mat á einstök mál við afgreiðslu
þeirra.
Hjálmar segir að eftir að þing-
menn fengu netföngum úthlutað hjá
Alþingi hafi farið að berast gífur-
lega mikið magn tölvupósts tO ein-
stakra þingmanna en það sé nýtt að
beina tölvupóstinum tO fagnefnda.
GERT er ráð fyrir að tekjur
Hafnarfjarðarbæjar nemi rúmum
3,4 milljörðum króna á næsta ári
og útgjöld 3,9 milljörðum en
reiknað er með að útsvarspró-
senta verði óbreytt. Jafnframt er
áformað að bæjarsjóður Hafnar-
fjarðar verði rekinn með hagnaði
árið 2001.
I greinargerð með frumvarpi að
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafn-
arfjarðar, sem tekin var tO fyrri
umræðu í bæjarstjórn á þriðju-
dag, kemur fram að við gerð
hennar hafi í hvívetna verið fylgt
þeirri stefnu sem mörkuð var með
samþykkt rammaáætlunar fyrir
árin 1999-2003 sl. sumar. Bæjar-
sjóður muni greiða niður skuldir
um 200 milljónir króna á næsta
ári og stefnt sé að því að frá og
með árinu 2001 verði bæjarsjóður
rekinn með tekjuafgangi sem
nýttur verði til að greiða enn
frekar niður skuldir bæjarsjóðs.
I heildaryfirliti bæjarsjóðs fyrir
árið 2000 kemur fram að sameig-
inlegar tekjur hans eru áætlaðar
um 3.426 milljónir króna. Við það
er miðað að álagningarreglur út-
JAKVÆÐ áhrif virkjunar í Fljóts-
dal og álvers á Austurlandi á at-
vinnu- og efnahagslíf í fjórðungnum
eru mun meiri en þau neikvæðu
áhrif sem atvinnulífið þar verður
fyrir, að mati Jóns Einars Mart-
einssonar stjómarformanns At-
vinnuþróunarfélags Austurlands.
Morgunblaðið innti Jón Einar
álits um skýrslu Landsvirkjunar um
umhverfisáhrif Fljótsdalsvirkjunar.
Hann kvaðst vera fremur sammála
því sem kæmi fram í skýrslunni,
hvað varðar byggðaþróun og rösk-
un af völdum virkjunarinnar og ál-
versins á atvinnulíf á Austuriandi.
Hjálmar segir að ekki verði litið á
þau bréf sem berast í tölvupósti
sem formleg gögn nema einhver
nefndarmanna óski eftir því. Að-
spurður um meðferð þeirra bréfa
sem nefndinni berast í tölvupósti
segir Hjálmar það ráðast af ein-
stökum þingmönnum innan nefnd-
arinnar og kveðst eiga von á að
nefndarmenn muni fara mjög mark-
visst í gegnum þann tölvupóst sem
berst. Allur póstur sem berst mun
verða varðveittur í sjö ár.
Hægt er að fara inn á upplýsinga-
vef nefndarinnar á vef Alþingis:
www.althingi.is.
Samkvæmt upplýsingum Hafdís-
ar Ólafsdóttur, lögfræðings og að-
stoðarforstöðumanns nefndasviðs
Alþingis, eru allt að 8.000 heim-
sóknir inn á vef Alþingis á dag.
svars og fasteignagjalda verði
óbreyttar frá árinu 1999.
Heildarútgjöld bæjarsjóðs eru
áætluð 3.927 milljónir króna á ár-
inu 2000. Rekstrarútgjöld nema
alls 2.798 milljónum eða 81,7% af
heildartekjum. Af þeirri fjárhæð
fara 1.509 milljónir króna til
fræðslu- og skólamála, eða sem
svarar til 54% af nettórekstrarút-
gjöldum bæjarsjóðs. Vaxtagjöld að
frádregnum vaxtatekjum nema alls
292 milljónum króna. Til fjárfest-
inga er samtals áætlað að varið
verði 837 milljónum króna. Meðal
helstu framkvæmda má telja skóla-
mál 318 milljónir og íþróttamiðstöð
á Ásvöllum 295 milljónir.
I greinargerðinni kemur enn-
fremur fram að gert sé ráð fyrir að
afkoma bæjarsjóðs á árinu 1999
verði örlítið betri en áætlað var.
Útlit sé fyrir að skatttekjur verði
um 110 milljónum króna meiri en
áætlað var. Rekstrargjöld mála-
flokka verði á hinn bóginn allt að
100 milljónum króna umfram fjár-
hagsáætlun sem skýrist að stærst-
um hluta af auknum útgjöldum
grunnskóla og leikskóla.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að það eru ákveðnir neikvæðir
þættir sem munu hljótast af þessum
framkvæmdum ef af þeim verður.
Stórfyrirtæki sem standa í fram-
kvæmdunum geta dregið til sín
vinnuafl frá öðrum stöðum og minni
fyrirtæki geta átt erfitt með að fá til
sín vinnuafl. Stór fyrirtæki gætu því
rutt úr vegi smærri fyrirtækjum
sem eiga nú þegar undir högg að
sækja. Þetta eru þó allt saman
þættir sem við teljum okkur geta
haft stjórn á og unnið á með mót-
vægisaðgerðum. Hjá þróunarstofu
Atvinnuþróunarfélagsins er mikil
NÝR Iangbylgjusendir Ríkisút-
varpsins á Eiðum var formlega
tekinn í notkun á fimmtudag.
Þar með er öðrum og síðari
áfanga við endurnýjun lang-
bylgjusenda RÚV Iokið. Fyrri
áfanginn var 300 kW sendir á
Gufuskálum sem var gangsettur
1997.
Notkun þessara senda felur í
sér notkun á nýrri tækni en eng-
ir lampar eru notaðir eins og áð-
ur tíðkaðist í langbylgjusendum.
Gert er ráð fyrir að þessi nýja
tækni muni draga úr bilanatiðni
og leiða til minni viðhaldskostn-
aðar. Ennfremur munu hljóm-
gæði einnig aukast en þau ráðast
af hæð loftnetsmastra. Hið nýja
loftnetsmastur á Eiðum er 220 m
á hæð.
Það var Markús Orn Antons-
son útvarpsstjóri sem gangsetti
langbylgjusendinn. Hann minnti
á öryggishlutverk sendisins og
sagði útvarpssendingar frá báð-
um þessum sendum heyrast um
reynsla og þekking á atvinnumálum
í fjórðungnum sem gæti nýst á þeim
vettvangi. Jákvæðu áhrifin eru það
mikil að við teljum framkvæmdim-
ar tvímælalaust þess virði,“ segir
Jón Einar.
Tækifæri til að nútímavæða
atvinnulífið
Jón Einar bendir á að verði
Fljótsdalsvirkjun reist muni fram-
kvæmdirnar væntanlega koma á
nútímavæðingu atvinnulífs í lands-
fjórðungnum. „Rekstraraðili virkj-
unarinnar er stórfyrirtæki með
nútímahugsun og það mun hafa
allt land. Stöðin á Eiðum sendir
með 100 kW afli á tíðninni 207
kHz og þjónar austanverðu land-
inu með fullum styrk frá Húsa-
vík í norðri og suður um jökla til
Suðursveitar. Hann sagði lang-
bylgjuna þjóna landsmönnum
sem varaleið við FM-kerfið, fylla
í göt FM-kerfisins og draga um
Qöll og fírnindi og langt út fyrir
fiskimiðin, allt til strandar Nor-
egs og Nýfundnalands.
Hann hvatti fólk til þess að
vera á varðbergi þegar kaupa á
útvarpstæki, að tækið sé með
langbylgju. Hann sagði of al-
gengt að flutt séu til landsins
tæki án langbylgju. Mikilvægt sé
að hafa Iangbylgju sérstaklega á
tímum stórslysa og náttúruham-
fara.
Markús sagði Ríkisútvarpið nú
ráða yfir útbreiddu og öflugu
dreifikerfi um allt land með
rúmlega 300 sendistöðvum fyrir
sjónvarp og báðar rásir Utvarps-
ins.
áhrif á fyrirtæki í umhverfinu.
Virkjunarframkvæmdir og síðar
stóriðja í framhaldi af því munu
kalla á nútímavæðingu atvinnulífs-
ins, þær munu skjóta stoðum undir
fjölmörg ný fyrirtæki á nýjum
sviðum.
Atvinnulífið á suðvesturhorninu
er töluvert á undan okkur í þróun-
inni en með þessu móti getum við
náð að vinna okkur upp og nálgast
það stig sem atvinnulíf á suðvest- f
urhorninu er. Mér sýnist sem það |
sem kemur fram í skýrslunni sé í 1
takt við okkar væntingar," segir
Jón Einar.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar fyrir árið 2000
Stefnt að lækk-
un skulda
Strikinu veitt fullt
vínveitingaleyfí
BÆJARSTJÓRN Reykjanes-
bæjar hefur samþykkt að veita
skemmtistaðnum Strikinu í
Keflavík áfengisveitingaleyfi
með veitingatíma að ákvörðun
veitingamanns aðfaranótt laug-
ardaga, sunnudaga og annarra
frídaga en aðfaranótt virkra
daga til kl. 1.
Áður hafði bæjarstjórn
Reykjanesbæjar ákveðið að
veita skemmtistaðnum vínveit-
ingaleyfi til bráðabirgða með
heimilaðan afgreiðslutíma
áfengis frá kl. 22-01 alla daga
vikunnar. Á skemmtistaðnum
fer fram nektardans. Úrskurð-
arnefnd um áfengismál felldi úr
gildi ákvörðun bæjarstjómar-
innar 15. nóvember sl.
Stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Austurlands
Framkvæmdirnar hafa
jákvæð áhrif á atvinnulíf