Morgunblaðið - 20.11.1999, Page 23

Morgunblaðið - 20.11.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 23 [osfellsfc Geldingan< Grafarnolt. Reynisvatn tauðavatn ílýtt knffinfartviii í hfkjavík Reykj avíkurborg Borgaryfirvöld í Reykjavík úthluta á næstunni byggingarlóðum íyrir um 620 íbúðir í Grafarholtshverfi, nýju byggingarsvæði austan Vesturlands- vegar. Lóðunum verður úthlutað í þrennu lagi, þ.e. núna í desember, í janúar/febrúar og í febrúar árið 2000. Lóðirnar verða byggingarhæfar sumarið 2000. í fyrsta áfanga verður úthlutað lóðum fyrir alls 204 íbúðir í fjölbýlishúsum, tvíbýlishúsum, keðjuhúsum, raðhúsum og einbýlishúsum. Auk þess verður úthlutað lóðum fyrir félagslegar íbúðir. Auqlýst cr eftir umsóknum um: Ibyggingarrétt fyrir 21 einbýlishús. Bygg- ingarrétturinn verður eingöngu seldur einstaklingum og fjölskyldum á föstu verði. Dregið verður úr umsóknum sem uppfylla skilyrði skilmála fyrir þessar lóðir og umsækjendur fá að velja lóðir í þeirri röð sem umsóknir þeirra verða dregnar út. Ibyggingarrétt á tveimur lóðum fyrir sérhæft og félagslegt húsnæði, svo sem sambýli, þjónustuíbúðir fyrir aldraða og leigu- húsnæði. Stofnanir, félög og félagasamtök geta sótt um þessar lóðir. Ibyggingarrétt á fimm lóðum fyrir atvinnu- húsnæði. Fjórar af lóðunum eru um 6.000 fermetrar að stærð hver um sig en ein lóðin er um 17.000 fermetrar. Byggingar- rétturinn verður seldur á föstu verði. Auqlýst er eftir tilboðum í: Ibyggingarrétt fyrir 14 tvíbýlishús á samtals fjómm lóðum. Byggingarrétturinn er boðinn út til einstaklinga, byggingameistara og fyrirtækja og verður seldur ásamt samningi um hönnun. Hönnuðir verða valdir með hæfnisvali. Tilboöum og umsóknum í fyrsta áfanga úthlutunar skal skilað á sama stað fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 7. desember 1999. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 16:10 í Skúlatúni 2, 5. hæð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Íbyggingarrétt fyrir fjölbýlishús með allt að 36 íbúðum. Byggingarrétturinn verður seldur ásamt samningi um hönnun. Næstu áfangar verða auglýstir síðar. Ibyggingarrétt á lóðum fyrir fjölbýlis-, rað- og keðjuhús, alls 119 íbúðir. Byggingar- rétturinn verður boðinn út lóð fyrir lóð. Umsóknareyðublöð, útboðsreglur og skilmálar fást á skrifstofu Borgar- verkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 563 2300. Kynninq i Krinqlunni í daq Nýja Grafarholtshverfið verður kynnt í Kringlunni í dag. Þar verður sýnt líkan af væntanlegri byggð í Grafar- holti og afhentur nýútkominn upplýsingabæklingur um hverfið og skipulag þess. X n'" M$$Sk S / hlíöarlönd V % rvögur /\ Lcirtjörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.