Morgunblaðið - 14.10.2000, Side 24
24 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Margit Elva
Herdís Egilsdóttir ræðir við skdlaböm í Grímsey.
Herdís
Egilsdóttir
heimsótti
Grímseyinga
Grímsey. Morgunblaðið.
BARNABÓKAHÖFUNDURINN,
leikritaskáldið, lagahöfundurinn
og kennari til 40 ára, Herdís Eg-
ilsdóttir, heimsdtti Grímseyinga í
síðustu viku og var með upp-
lestur í Félagsheimilinu Múla fyr-
ir unga sem aldna. Að vanda fjöl-
menntu eyjabúar og höfðu mjög
gaman af.
Einnig dvaldi Herdís með
skólabörnunum í tvo kennsludaga
og miðlaði sinni þekkingu til
þeirra. Hún las fyrir þau, sagði
sögur, sýndi myndband með
leikriti sem hún samdi og leik-
stýrði og föndraði með þeim svo
eitthvað sé nefnt. Það er liður í
skólastarfinu í Grímsey að fá ut-
anaðkomandi aðila til að fræða
börnin og krydda tilveruna svolít-
ið.
Kynningar i BLÓMAVALI Sigtúni, lausard. 14. okt. kl. 14-16 og sunnud. 15. okt. kl. 14-17
Akureyri í tírslitum alþjóðlegrar
samkeppni í umhverfísmálum
Til mikils að
vinna fyrir
sveitarfélagið
AKUREYRI hefur verið tilnefnd
til þátttöku í úrslitum „Nations in
Bloom“ sem er alþjóðleg sam-
keppni í umhverfismálum. Alls
skráðu 45 sveitarfélög sig til þátt-
töku en 35 þeirra, frá 22 löndum,
var boðið að taka þátt í úrslitum,
sem fram fara í Washington í
Bandaríkjunum um mánaðamótin
nóvember-desember nk.
Sveitarfélögunum er skipt í
flokka eftir íbúafjölda og er Akur-
eyri í flokki sveitarfélaga með 10-
50 þúsund íbúa ásamt 9 öðrum
sveitarfélögunum. Það eru heims-
samtök skrúðgarða og útivistar-
svæða sem að samkeppninni standa
í samvinnu við umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna. Guðmundur
Sigvaldason, verkefnisstjóri og
framkvæmdastjóri Staðardagskrár
21 fyrir Akureyri, sagði að rætt
væri um að á þessum vettvangi
væru sveitarfélög víðs vegar að úr
heiminum að keppa um hin svoköll-
uðu „Grænu óskarsverðlaun11.
Hann sagði Akureyri vera að taka
þátt í samkeppninni í fyrsta sinn og
fyrst íslenskra sveitarfélaga.
Náttúruverndarnefnd Akureyrar
fjallaði um þetta mál á síðasta
fundi sínum og þar var samþykkt
að gera tillögu til bæjarráðs um
fyrirkomulag og kostnað bæjarins
af þátttöku í úrslitunum. Bæjarráð
fjallaði um málið á fundi sínum í
gær og samþykkti að leggja 680
þúsund krónur til verkefnisins.
Guðmundur sagði að til mikils
væri að vinna og að árangur í sam-
keppninni vekti athygli á sveitarfé-
laginu á alþjóðlegum vettvangi.
Umfjöllunin metin á um 80
milljónir króna
Samkeppninni hafa verið gerð
mikil og góð skil í fjölmiðlum og
sagði Guðmundur að þau sveitar-
félög sem tekið hafa þátt á síðustu
tveimur árum hafi fengið umfjöllun
sem metin er á upp 77 milljónir
króna fyrir hvert þeirra. Sam-
keppninni er sjónvarpað víða um
heim, síðast til um 400 sjónvarps- |
stöðva að sögn Guðmundar. Innan t
við 100 sveitarfélög hafa náð í úr-
slit þessarar samkeppni.
Markmið samkeppninnar er að
hvetja til aukinnar meðvitundar al-
mennings um gildi framúrskarandi
starfs sveitarfélaga að umhverfis-
málum í því skyni að bæta lífsgæði
allra og hvetja aðra til að ná
lengra. Arangur í samkeppninni
byggist á fegrun umhverfisins,
verndun minja, umhverfisvænum |
aðferðum og verkefnum, þátttöku
almennings og skipulagningu til
framtíðar.
Sveitarfélögin sem þátt taka í úr-
slitunum verða með kynningar sín-
ar 1.-3. desember og skal hún
byggjast á þeirri greinargerð sem
send var með skráningunni í sam-
keppnina. Úrslitin verða kynnt við
sérstaka athöfn 4. desember.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón-
usta á morgun, sunnudag, kl. 11.
Séra Svavar A. Jónsson. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra eru sér-
staklega boðuð til messunnar.
Fundur með þeim í kirkjunni eftir
messu. Sunnudagaskóli kl. 11 á
morgun, fyrst í kirkjunni, en síðan
í Safnaðarheimilinu. Fundur í
æskulýðsfélaginu kl. 17 í kapellu.
Biblíulestur í fundarsal kl. 20.30
á mánudagskvöld. Morgunsöngur í
kirkjunni kl. 9 á þriðjudagsmorg-
un. Mömmumorgun kl. 10 til 12 á
miðvikudag, 18. október. Kynning
á föndurvörum frá Horninu. Allir
verðandi og núverandi foreldrar
velkomnir. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12 á fimmtudag, 19. Októ-
ber og hefst hún með orgelleik.
Bænaefnum má koma til prest-
anna. Eftir stundina er unnt að
kaupa léttan hádegisverð í Safnað-
arheimilinu.
BÆGISÁRKIRKJA: Guðsþjón-
usta verður í Bægisárkirkju
sunnudaginn 15. október kl. 14.
Sérhönnuð
snapsaglös
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14
Organisti Birgir Helgason. Prestur j
sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Mætum öll og njótum samveru í r
kirkjunni okkar.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
vera og guðsþjónusta á morgun,
sunnudag. Sameiginlegt upphaf,
foreldrar hvattir til að mæta með
börnunum. Kyrrðar- og tilbeiðslu-
stund í kirkjunni kl. 18.10 á þriðju-
dag. Hádegissamvera frá 12 til 13
á miðvikudag, helgistund, fyrir- ;
bænir og sakramenti, léttur hádeg-
isverður í safnaðarsal á vægu
verði. Opið hús fyrir mæður og ’
börn frá 10 til 12 á fimmtudag,
heitt á könnunni og svali fyrir
börnin.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11 á sunnudag,
15. Október. Börnin sýna leikþátt
°g syngja. Ath. engin samkoma
verður kl. 20. Heimilasamband kl.
15 á mánudag. Súpa, brauð og bibl-
íufræðsla á miðvikudag. Örkin
hans Nóa, fyrir börn í fyrsta til
fjórða bekk kl. 17.30 á mánudag.
Únglingaklúbbur fyrir sjöunda
bekk og eldri á þriðjudag. Manna-
korn, fyrir fimmta til sjötta bekk á
fimmtudag kl. 17.30, unglingasam-
I
koma á fimmtudagskvöld.
HVITASUNNUKIRKJAN:
Bænastund kl. 20 í kvöld, laugar-
dag. Sunnudagaskóli fjölskyldunn-
ar kl. 11.30 á morgun. Jóhann ,
Pálsson kennir úr Orði Guðs. Létt-
ur málsverður að samkomu lok-
inni. Almenn vakningai’samkoma §
verður kl. 16.30 á sunnudag.
Predikari verður Dögg Harðar-
dóttir. Á sama tíma verður sam-
koma fyrir krakka 7 til 12 ára og
einnig barnapössun fyrir börn eins
til 6 ára. Fyrirbænaþjónusta.
LAU G AL ANDSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Munkaþverár-
kirkju kl. 11 á morgun, sunnudag.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa
kl. 18 í dag, laugardag, og kl. 11 á
morgun, sunnudag, í Péturskirkju
við Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.