Morgunblaðið - 14.10.2000, Page 74
74 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Um fjögur þúsund manns fá bloð á ári hverju
- Blóðbankinn þarf 70
blóðgjafa á dag
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hjúkrunarfræðingamir Sigríður Ó. Lámsdóttir (t.v.) og Kristín H.
Káraddttir hafatekið saman bækling ura nauðsyn bldðgjafar og hvernig
hún fer fram. I baksýn sjást bldðgjafar.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Hluti þeirra sem erindi fluttu á ráðstefnunni, þau Einar Oddur Krist-
jánsson alþingismaður, Ólafur Kristjánsson, bæjarstjdri Bolungarvíkur,
Sigurður Gunnarsson landlæknir, Jdsep Blöndal læknir, Kolbrún
Björnsddttir grasalæknir, Anna Björg Araddttir hjúkrunarfræðingur,
Þdrgunnur Hjaltaddttir verkefnisstjdri, Anna Valdimarsddttir sálfræð-
ingur og Helga Svana Ólafsddttir, fyrrverandi kennari í Bolungarvík.
Ráðstefna um
heilsueflingu í
Bolungarvík
Bolungarvík. Morgunblaðið.
KOMINN er út bæklingurinn „Vilt
þú verða bldðgjafi?" sem Bldðbank-
inn í Reykjavík gefur út en þar er að
finna upplýsingar um hvemig bldð-
gjöf fer fram og hvaða þýðingu bldð-
söfnun hefúr. Höfundar em Kristfn
H. Káradóttir og Sigríður Ó. Láms-
ddttir, hjúkmnarfræðingar í Blóð-
bankanum.
„Tilgangur bæklingsins er að
kynna Bldðbankann og vekja athygli
á nauðsyn þess að fá 70 bldðgjafa á
dag til að mæta þörf heilbrigðiskerf-
isins fyrir bldð,“ segir Kristín H.
Káradóttir í samtali við Morgun-
blaðið en hún hefur starfað við
Bldðbankann frá síðastliðnu vori.
„Við þurfum stöðugt að minna á
þessa staðreynd og fá nýja blóðgjafa
og því var ákveðið að taka saman
þennan bækling og kynna starfið,"
segir hún ennfremur en bæklingn-
um er m.a. dreift í framhaldsskdla,
sundstaði og fyrirtæki.
Helstu ástæður fyrir bldðgjöf em
skurðaðgerðir, slys, blæðingar,
krabbameinsmeðferð og blóðskipti
nýbura. Kringum Qögurþúsund
manns þurfa blóðgjöf á ári hveiju.
Litils háttar undirbúningxir
Til að gerast blóðgjafi þarf dálít-
inn undirbúning og við fyi’stu komu
em teknar bldðpmfur vegna blóð-
flokkunar, veimskimunar, jám-
birgðamælingar og fyrir almenna
bldðrannsdkn. Ef allt reynist í lagi er
bldðgjöf heimiluð tveimur vikum
síðar. Karlar mega gefa bldð á
þriggja mánaða fresti en konur á
fjögurra mánaða fresti. Hægt er að
gefa blóð á aldrinum 18 til 60 ára en
virkir bldðgjafar geta þd gefið til 65
ára aldurs.
Sigríður Ó. Lámsdóttir, sem
starfað hefur við Bldðbankann í tæp
þijú ár, segir að safnað sé rúmlega
90% blóðsins hjá Blóðbankanum. Um
10% er safnað lyá Fjdrðungssjúkra-
húsinu á Akureyri sem rekur sjálf-
stæða bldðsöfinunardeild. Bldð-
bankinn sinnir auk höfuðborgar-
svæðisins bldðþörf alls landsins og
sendir því bldð um land allt þegar
þörf krefur.
„Við fdrum blóðsöfnunarferðir í
nágrannabyggðirnar og er ætlunin
að halda í því skyni í næstu viku á
Akranes. Við náum yfirleitt um 100
bldðgjöfum í slíkum ferðum. Þá vor-
um við á Sauðárkróki á þriðjudag og
heimsdttum nemendur í Fjölbrauta-
skdlanum þar sem vilja verða bldð-
gjafar. Þar vora tekin sýni úr 54
nemendum og þeir koma si'ðan hing-
að til okkar eftir hálfan mánuð í
bldðgjöf."
Konur um 18% blóðgjafa
Konur era um 18% bldðgjafa og
segjast þær stöllur gjaman vilja
stækka hóp þeirra. Hefur reyndar
orðið allt að því vakning i'þessum
efnum hjá ungum konum og hefur
fjölgað n\jög konum á aldrinum 20
til 30 ára í hópi bldðgjafa.
Sigríður segir Bldðbankann eiga
gdðan kjarna bldðgjafa sem gefa
reglulega árið um kring. Hafa marg-
ir gefið 50 sinnum og allnokkrir 100
sinnum og er slíkum áfongum jafnan
fagnað hjá Bldðgjafafélagi Islands.
I lokin má minna á að eftir bldð-
gjöf er ráðlagt að menn staldri við
og fái sér hressingu á kaffistofunni.
Opið er í Bldðbankanum frá átta
alla morgna, til 19 á mánudögum og
finimtudögum, 15 þriðjudaga og
miðvikudaga og 12 á föstudögum.
„HEILSAN er í höndum okkar
sjálfra var yfirskrift ráðstefnu sem
haldin var í Bolungarvík sl. laugar-
dag. Rúmlega 150 manns sóttu ráð-
stefnuna sem var öllum opin og stóð í
eina sex tíma. Ráðstefnan var liður í
verkefninu „Heilsubærinn Bolung-
arvík“ sem kynnt var í febrúar sl. og
er ætlað að vekja almenning til
ábyrgðar á eigin heilsu, einnig að
vekja athygli þeirra sem fara með
fjármuni almennings bæði hjá ríki
og sveitarfélögum á því að forvarnir
og heilsuefling hjá fólkinu sjálfu er
sá þáttur sem mest getur sparað í út-
gjöldum vegna heilbrigðisþjónustu.
A ráðstefnunni vora fluttir stuttir
fyrirlestrar um ólík svið heilsu-
verndar, heilbrigðis og forvarna, en
á milli erinda var boðið uppá veiting-
ar og ráðstefnugestum skemmt með
söng og dansatriðum.
Þeir sem fluttu erindi á ráðstefn-
unni voru Sigurður Guðmundsson
landlæknir sem fjallaði um heilsufar
á nýrri öld, Anna Valdimarsdóttir
sálfræðingur í Reykjavík talaði um
lífshamingjuna og hugarfarið, Einar
Oddur Kristjánsson alþingismaður
ræddi nýjar leiðir til fjármögnunar í
heilbrigðisþjónustu, Anna Björg
Aradóttir hjúkranarfræðingur hjá
landlæknisembættinu flutti erindi
sem hún kallaði „lagt í sameiginleg-
an sjóð“ Jósep Blöndal læknir í
Stykkishólmi kallaði erindi sitt
„Bakið, börnin og byltingin", Hulda
Sigurlín Þórðardóttir hjúkranarfor-
stjóri á heilsustofnun NLFI ræddi
um heilsusamlegan lífsstíl, Kolbrán
Björnsdóttir grasalæknir í Reykja-
vík greindi frá því hvernig nýta
mætti lækningamátt jurta, Stein-
grímur Þorgeirsson sjúkraþjálfari í
Bolungarvík kallaði sitt erindi hreyf-
ing til heilsubóta og Þórann Hjalta-
dóttir verkefnastjóri hjá Urði, Verð-
andi, Skuld fjallaði um líftækni,
krabbamein og erfðir.
Heimamenn ánægðir
Auk þessara fræðinga flutti Þóra
Hansdóttir íbúi í Bolungarvík erindi
sem kallað var rödd fólksins og Ólaf-
ur Kristjánsson bæjarstjóri lýsti
skoðunum bæjaryfirvalda. Þá flutti
einnig Helga Svana Ólafsdóttir
fræðslu frá Bolungarvík. Almenn
ánægja var meðal þeirra fjölmörgu
sem sóttu ráðstefnuna.
Að verkefninu Heilsubærinn Bol-
ungarvík standa Bolungarvíkur-
kaupstaður, skólarnir, stofnanir og
félagasamtök í Bolungarvík.
Fyrir hönd þessara aðila stýrir
verkefninu átakshópur sem skipaður
er þeim Sigránu Gerðu Gísladótttur
hjúkrunarfræðing, Steingrími Þor-
geirssyni sjúkraþjálfara, Petrínu
Sigurðardóttur, Elínbetu Rögn-
valdsdóttur og Flosa Jakobssyni.
Bolvíkingar hafa svo sannarlega
oðið varir við þetta átak frá því að
það hófst í febráar s.l. því reglulega
hefur verið bryddað uppá ýmsum at-
riðum í því skyni að hvetja fólk til
heilsueflingar með það að markmiði
að varðveita góða heilsu.
Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra kynnti sér fyrstuhjálpartjald
björgunarsveitarinnar Suðurness.
Landsbjörg tekur í
notkun nýtt merki
Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands,
afhjúpaði nýtt merki Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Jón Gunnarsson, formað-
ur félagsins, stendur við hlið hans.
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ
Landsbjörg kynnti nýtt
merki félagsins á laugar-
daginn en nú er um ár liðið
frá stofnun félagsins en
það varð til með samein-
ingu Slysavamafélags Is-
lands og Landsbjargar,
landssambands björgunar-
sveita. Jafnframt vora
kynntar nýjar merkingar á
björgunartæki og nýr ein-
kennisklæðnaður félagsins.
Forseti íslands, Ölafur
Ragnar Grímsson, afhjúp-
aði merkið í húsi Flug-
björgunarsveitarinnar á
Hellu og biskup íslands,
herra Kar) Sigurbjörnsson,
blessaði það. Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra flutti
einnig ávarp.
Merkið er hannað af Garðari Pét-
urssyni. Hugmyndin að baki merk-
isins er margþætt. Krossinn er
þungamiðja, en umhverfis krossinn
er hringur sem verndar hann.
Hringnum er skipt í fjóra hluta
sem vísa til höfuðáttanna og skír-
skota þannig til fjallamennsku og
björgunar á landi. Hringnum svipar
einnig til björgunarhrings sem er
tákn sjóbjörgunar. Litimir í merk-
inu tengjast björgunarstörfum en
ákveðið hefur verið að rauður verði
framvegis einkennislitur Slysa-
vamafélagsins Landsbjargar. Nýja
merkið verður á björgunarbílum,
bátum og öðram búnaði félagsins.
Ný heimasíða félagsins var opn-
uð á laugardaginn. Á henni er að
finna upplýsingar um félagið,
björgunarsveitir þess og starfsemi.
Slóðin er: www.landsbjorg.is.
húsifikpi fþrir javmkt'rix
Qyfalfof hihtjðifn fpnrfúfnrkcra
r vlleg Msgögn fyrir fagurkem
waOðif 'ktisaöan fhrir faaurk.
Hornófl Nlee, leÖur, kr. 149.000,- stgr. Sófmtt 5+ u 1, kr. 165.900,- stgr.
□□□□□[!]
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 565 4100