Skírnir - 01.01.1887, Page 33
ENGLAND.
35
Churchill lávarði — garpinum sem nokkuð var lýst i síðasta
árgangi þessa rits — hafi farizt svo orðin, því þó hann Ijeti
drjúglega framan af um köllun Englands á Balkan sem á öðr-
um stöðum, þar sem styðja skyldi og efia þjóðafrelsi og sjálfsfor-
ræði, þá gekk hann samt aptur úr skaptinu og sagði af sjer
embætti, þegar Salisbury vildi beiðast mikilla framlaga til hers
og flota og kvaðst vilja vera við engu varbúinn. það var lika
Salisbury — forseti stjórnarinnar — sem talaði lengst af stælt-
um móði, og ljet svo orðum farið í blaðinu «Morning Post», um
aðferð Rússa og stjórnarskyldur Englands. Á þetta drepið að
framan i almenna kafianum (28. bls.), en hjer skal enn fremur
minnzt á, að blað hans hafði i október fortakslaust sagt, að
Englandi væri engin nauðsyn á neinu brýnni, enn verja Rúss-
um Miklagarð og halda uppi drottinvaldi soldáns og hans
kalífstign, og hvorutveggja Rússum óháðu. Menn mættu ekki
gleyma, að undir kalífsvaldi eða trúarforustu hans stæðu 80
millíónir enskra þegna á Indlandi, Yrði soldán í Miklagarði
Rússum háður, undirmaður tsarsins, þá mættu Englendingar
búast við líkhringing hins enska ríkis á Indlandi. Eptir svo
fagrar fortölur skyldu menn þó sízt ætla, að niðurlag greinar-
innar mundi brýna fyrir Englendingum að fara sem gætilegast
að i öllum meginlandsmálum Evrópu, spara mátt og megin
Englands til annara meiri og voðalegri hríða '), þvi hjer ættu
aðrir að stemma stiga fyrir Rússum, og þýzkalandi bæri öllum
fremur að banna þeim ófrið við Austurríki. það var þessháttar
tvískinnungur, sem mörgum þótti bera vott um, að stjórn Eng-
lendinga vildi hafa aðra sjer að forhleypi á Balkansskaga. Ann-
ars verður ekki betur sjeð, enn að þeir Salisbury og Iddesleigh* 2)
hafi leitað fyrir sjer i Vin og Rómaborg, og að á báðum stöð-
um hafi líklega verið undir tekið, því um tíma hníttu stjórnar-
*) Blaðið á við það stríð, er til þrauta skal barizt við Rússa um
Indland
2) Iddesleigh lávarður (fyrrum Stafford Northcote) stóð fyrir utanríkis-
málum. Hanu er nú Játinn, og hefir Salisbury við þeim tekið, og
mun frá öndverðu hafa mestu um þau ráðið.
3*