Skírnir - 01.01.1887, Qupperneq 63
FRAKKLAND.
65
stjórnin i París hafi samið skýrslu um íjárhag Egiptalands og
sýnt þar fram á ranghermi Englendinga og margar ávirðingar,
og ætli að senda hana stórveldunum. Samt sem áður eru
mestar líkur til, að hjer dragi til samkomulags, en þá þó helzt,
ef hjá þeirri styrjöld verður komizt, sem að framan er um
talað. Annars er svo tekið á athöfnum Frakka og breytni
gagnvart Englandi í enska tímaritinu «Fortnightly Review», að
þeir spari hvergi að skaprauna Englendingum. Á þá er þar
sökum snúið bæði á Egiptalandi og Madagaskar, en þó senni-
legast sýnt, að þeir hafi orðið grönnum sínum afar nærgöng-
ulir á eyjum þeim í Kyrrahafi, sem Nýju Hebriður heita. þeir
höfðu gengið að þeim samningi 1883 (og áður 1878), að
hvorugir skyldu leggja þær undir sig, en í byrjun júnímánaðar
kom þar frakkneskt herskip, og gengu þaðan menn upp á eina
helztu eyjuna, settu þar upp fánamerlci Frakklands og helg-
uðu því eyjarnar. Fralckar kalla, að eyjarnar heyri eptir haf-
stöðu sinni náttúrlegast til Nýju Kaledóniu, en ekki til Ástralíu.
Aður vildu þeir eignast þær til at flytja þangað útlaga — eins
og til Nýju Kaled. — en nú er talað um, að þær liggi beint
á þeirri siglingaleið milli Ameríku og Astraíiu, sem farin verður
þegar Panamaskurðurinn er búinn, og það hefir lypt verði
þeirra til mestu muna, og ein þeirra því heldur til áfanga-
staðar fallin, er þar er höfn hin bezta. þetta mun haia
freistað Frakka til þess sem hinir kalla sáttmálarof. I ritgjörð-
inni var tekið fram, að Englendingar hafi ve ið hjer fyrir,
boðað hjer kristna trú og sett skóla, en vart fleiri af Frökkum
en einn maður eða tveir. þegar enska stjórnin innti til um
þetta mál í París, var fyrst farið undan í flæmingi, en Eng-,
lendingum varð bráðum ljóst hvað sök horfði, er sum stjórnar-.
blöðin fögnuðu tiltektum skipstjórans og kölluðu lyktir komnar
á það mál, sem Englendingar hefðu lengi vafið fyrir Frökkum,
og það væri vel, er þeim væri sýnt, að fleiri enn þeir
ættu nýlendna að gæta og eptir rjetti og heimildum að ganga
á hafinu. Hvort Englendingum þykir málið svo út kljáð til
fulls, verður reyndin að sýna. — Með Frökkum og frændunum
fyrir sunnan Alpafjöll og Mundíufjöll hefir ekkert gerzt til
5