Skírnir - 01.01.1887, Side 64
66
FRAKKLAND.
nýlundu, en fáleikar heldur sem fyr með þeim og Itölum, þó
allt fari skaplega. þeir hafa til þessa verið við stjórnina á
ítaliu, sem ætla henni það giptudrjúgast, að halda sjer í
bandalagi við þýzkaland og Austurríki, en þeir menn stýra
þar líka drjúgum flokkum, t. d. Crispi (að því menn segja),
sem vilja láta hinar rómönsku þjóðir gera sitt lag og haldast
i hendur. Meira alúðarmót er á nábúðinni við Spánverja, og
Frakkar eru í hvert skipti þeim innan handar, þegar þeir
menn frá Spáni, sem ala aldur sinn á Frakklandi og ekki eiga
landvært heima, vilja stofna til óspekta eða uppreisna. Allt
um það hafa Frakkar látið þá frændur sina sem aðra vita, að
þeir mundu engum láta hlýða að seilast til ráða í Marokkó,
því yfir þetta ríki, sem nú stæði svo á fallanda fæti, hlytu
þeir að skjóta skildi, þegar við þyrfti, þar sem það væri
grendarland Alzírs, og þaðan væru viðskiptaleiðir lagðar til
auðugra landa fyrir sunnan (t. d. Tombúktú). þetta er þó
ekki svo at skilja, að stjórnin i París hafi skrifað ráðherra
utanríkismálanna í Madrid brjef um þetta efni, en það er allt
sagt í ritlingi, sem nefnist «TJn empire qui broule (Ríki, sem
hnignar)» eptir mann i erindasveit Fraklca í Madrid, og er
þangað kvaddur eptir langa vist í Marokkó og öðrum Afríku-
löndum. Hann á að vera þar til taks, þegar til sundurleitni
dregur um málin í Norðurafríku.
Enn er eitt veldi og höfðingi þess, sem Frakkland hefir
lengi verið í tengslum við, þó nú vilji stundum snurða á renna.
það er páfinn og hans ríki. I orði kveðnu eru böndin hin sömu
milli kirkjunnar á Frakklandi og páfastólsins, en af þvi þau voru í
raun rjettri meðal tveggja ríkja «af þessum heimi», þá var
hjer opt um veraldarvöldin togazt, og til lykta drógust þau til
muna úr greipum páfans. Seinasti sáttmálinn er frá timum
Napóleons fyrsta, og hann skipti svo heimildum meðal beggja
sem enn er haldið. Síðan þjóðveldið komst á — en einkar-
lega á seinni árum — hafa hinir yztn vinstra megin á þinginu
opt ýfzt við klerkdóminn, viljað draga meira og meira úr tekj-
um biskupanna'), aftaka erindarekstur af Frakklands hálfu hjá
*) Úr framlögum til kirkjunnar og hennar hirða hafa 7 millíónir verið
dregnar á síðustu 5 árum.