Skírnir - 01.01.1887, Side 127
TYRKJAVELDI.
129
setið i Miklagarði, um hag og málefni þessa lands. Með því
að Rússum er æ kostur að «mæða» Tyrkja með öðru máli,
skuldagjalds- eða stríðskostnaðarkröfum frá 1878, mun helzt
mega gera ráð fyrir, að stjórn soldáns hlýði því helzt, sem til
austræna málsins tekur og til hennar kemur frá Pjetursborg og
París — að minnsta kosti þar til er veðurstöðunni bregður, og
f>jóðverjar taka i annan streng (þ. e. að skilja: með Rússum),
enn þeir hafa gert hingað til.
Frá Egiptalandi. Hjer miðar því öllu seint fram, sem
á að koma högum landsins í reglu og stellingar. Stjórn sold-
áns og stjórn Bretadrottningar hafa hvor um sig haft þar
sjerlega erindreka — þá Mukhtar pasja og Drummond Wolíf
— sem hafa átt að rannsaka allt ástandið, og búa frumvörp
til um fyrirkomulag hers, fjárhags og landstjórnar. En þeim
hefir orðið flest að áskilnaði, og stundum var sem hvor vildi
á annan leika. Mukhtar hugsaði mest um, að flýta fyrir burt-
för enska hersins af Egiptalandi, og skipa þar innlendan her
með tyrkneskum fyrirliðum, en Wolff vildi, að þeir yrðu flestir
enskir, og annað eptir þessu. A dvöl Englendinga á Egipta-
landi lítur soldán sjálfur nokkuð líkt og Frakkar. Eins og
þeir kýs hann þá á burt sem fyrst má verða. Englendingar
segja sem fyr, að þá fari þar allt á sömu ringulreið og áður.
«En svo fer einmitt nú» segja Frakkar og fleiri, sem tala um
báginda ástand fólksins og óþolandi álögur. I sumar leið
bárust hjeðan sögur af ránum og stigamannaflokkum hjer og
hvar, en sagt, að slikt kæmi af nauð landsbúa og úrræðaleysi.
Auðvitað, að þeir kenna Englendingum um allar áþyngdir og
vanhagi. Vjer tökum vatnsveitingarnar nýju til dæmis, sem
Uefndar voru í fyrra i «Skirni». Fyrir þeim stóð og mælti fram
Rieð vatnsveitingameistari enskur, Scott að nafni, sem kom
bangað frá Indlandi. Til þeirra skyldi stórmikið fje fram lagt
ir ríkissjóði. Meistarinn komst i fjármálastjórnina, og á að
hafa haft ógrynni fjár upp úr fyrirtækinu, en hinir einberan
skaða — vatnsþurð í sikjum og kornbrest — sem af því áttu
&óðs að njóta. — Komist eitthvað i kring á þessu ári til
9