Skírnir - 01.01.1906, Blaðsíða 29
;Skírnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
29
•engjum, trjáröðum og trjárunnum, svo hvergi sést í stein.
Loítslagið er einstaklega milt og blítt og grundirnar
grænar árið um kring. Snjór sést injög sjaldan á vetrum
og sumarhitinn temprast af sævarloftinu*). Sunnan við
hálsahrygginn er frjósamur hjalli (Undircliff) fram með
ströndu, þar er hlé fyrir norðanvindum og suðrænn gróður,
því vetrarhiti er engu minni en í Nizza á Norður-Italiu.
Myrtur og lárviðir, fíkjutré, sýpressar og fúksíur þrífast
þar á vetrum undir berum himni. Það er einkennilegt
NÁLAKNAR (THE NEEDLES).
að sjá hvernig gróðrinum er skift á eynni. Hæstu hæða-
hryggirnir eru berir að trjám og vaxnir stuttu grasi og
íslenzkum plöntum, sóleyjum, fíflum, súrum, gullintoppum,
græðisúrum, blóðbergi o. fi., en innan um eru skellur af
»gyvel«-runnum með gulum blómum. I dældum og árfar-
*) í bænum Ventnor sunnan á eynni er meðalhiti ársins 11° C, meðal-
hiti vetrar 5l/20, vors 10°, sumars 16l/2°, hausts 12°. Meðalhiti
kaldasta mánaðar (fehrúar) 5°, hins heitasta (águst) 17°.