Skírnir - 01.01.1906, Blaðsíða 34
34
Ferðaþættir frá Bretlandi.
Skirnir.
irnar víða huldar af trjám og öðrum gróðri, en hálsa-
bungurnar út að sjónum eru allar skóglausar, grænir balar
og grundir fram á brúnir; má þar oft sjá marga menn í
hnattleikum (golf), unga og gamla. Grundirnar eru grænar
allan veturinn og eins limgarðarnir, sein alstaðar eru hér
kringum hús og lóðarbletti; snjór sést mjög sjaldan. I bænum
er fjöldi af hótellum og gistihúsum og svo er i öllum bæjum
á eynni, enda er þess þörf, þar sem svo mikill sægur
kemur af aðkomufólki, einkum í júlí og ágúst; þá er hver
kytra útleigð og full af fólki. Eftir efnahag búa menn
sumii' á hótellum, sumir í gistiliúsum (boarding-houses)r
en sumir leigja sér herbergi og hafa mat lijá sjálfum sér.
Þeir sem ríkastir eru leigja stór og skrautleg hús fyrir
sig og fjölskyldur sínar um sumartímann, og eru allmörg
þeirra fagurlega prýdd með fögrum görðum og dýrmætum
húsbúnaði, jafnan til reiðu fyrir þá sem borgað geta.
Annars þótti mér það eftirtektavert, að húsnæði er ódýrara
og húsverð minni víðast hvar á Englandi, þegar undan
tekin er London og miðbik annara stórbæja, heldur en í
Kaupmannahöfn og nágrenni hennar. Ensku húsin eru
rúmbetri, miklu skrautlegri og í alla staði hentugar útbúin
en í smábæjunum kringum Höfn, og eru þó töluvert
ódýrari, svo að munar 4—500 kr. á árlegri húsleigu.
Höfn er á seinni árum orðin dýr bær að lifa í, og þó
kemst hún að sögn ekki í hálfkvisti við Kristianíu með
hinum ógurlegu sköttum sem þar eru. Það er annars
mjög einkennilegt í öllum löndum, að prísarnir stíga eftir
því sem stjórnfrelsið eykst niður á við, og er þetta' þó
eðlilegt. Alþýða, sem völdin hefir fengið, krefst endur-
bóta, þær kosta allar peninga, nýja skatta, tolla og
álögur; verkmenn krefjast meiri launa og fá þau, en við
það verður húsnæðí þeirra og lífsnauðsynjar dýrari. Svika-
mylnan er altaf símalandi, en mannkynið finnur engin
ráð til að stöðva hana.
I Freshwater er ált einstaklega kyrt og rólegt,
engar verksmiðjur eða annað, sem hávaða gerir, náttúran
er 'fögur og blíðleg og þó allmikil tilbreyting. Hinn litii