Skírnir - 01.01.1906, Blaðsíða 49
Skírnir.
Ferðaþættir frá Bretlandi.
49
enda hefir hann frá mörgu að segja. Hann er giftur
japanskri konu af tignum ættum; hún var mjög alúðleg i
viðmóti og fríð sýnum, en mjög var hún ólík Evrópu-
konum; hún er smávaxin og snyrtileg, á stærð við 12—
13 ára stúlku, einstaklega hjálmfögur, en augun stór,
nokkuð skáhöll, aflöng og hálflokuð, en svipurinn þó allur
greindarlegur og barnslega góðlegur. Eg hafði áður séð
marga Japana bæði á Englandi og Þýzkalandi og eru þeir
allir mjög viðmótsþýðir, smávaxnir og einstaklega kurteisir,
en japanska konu hafði eg aldrei séð, enda munu fáar
þeirra koma til Evrópu. John Milne hefir japanskan
aðstoðarmann, og tók hann ljósmynd af okkur öllum. Þar
hittum við einnig ungan lækni frá Hjaltlandi, hann
spurði margs frá Islandi og sagði mér ýmislegt um Hjalt-
land; þar hefir margt haldist af norrænum siðum og
máli, og eru lifnaðarhættir manna alllikir því sem er á
íslandi. Eg sagði honum frá ýmsum verklegum framförum,
sem orðið hafa á íslandi á seinni árum, stjórnarfari og
þjóðlífi, og taldi hann okkur Islendinga mikið lengra komna
í mörgum greinum en Hjaltlendinga.
4