Skírnir - 01.01.1906, Blaðsíða 3
Skírnir.
Kristján konungur IX.
3
son sinn Nikulás Rússakeisara II fvrir ættarhöfuð, og að
leita varð á sinni tíð afsals Rússakeisara á erfðarétti til
Holsetalands til handa Kristjám Lukkuborgarprins, er
rikiserfðin gekk til hans.
Vilhjálmur hertogi var fríður maður og hermannlegur,
hið mesta prúðmenni, hygginn maður og réttsýnn, og i
ýmsum greinum frjálslyndari en þá var títt um tignar-
menn, er efst var á baugi »orð að laga í öllu og gerðir, eins
og líki Metterníki«. Kona hans hét Lovísa, landgreifa-
dóttir frá Hessen, en dótturdóttir Friðriks Danakonungs
flmta. Börn þeirra Vilhjálms hertoga og Lovísu voru
9 að tölu og er enn á lífl yngsti sonurinn Hans prins,
áttræður. Af börnunum var Kristján prins 6. í röðinni,
3 bræður eldri. Hertogahjónin voru fremur fátæk, en
börnin fengu hið bezta uppeldi. Vilhjálmur hertogi kemst
svo að orði i bréfl til kunningja síns urn uppeldi barnanna:
»Eg hefi harðan aga á drengjum mínum, til þess að þeim
lærist hlýðni, og ekki gleymi ég heldur hinu, að þeir fái
rétta sjón á því, hvers nýi tíminn krefst af mönnum«.
Heimili þeirra hjóna var eins og við mátti búast þýzkt,
og sjálfsagt ekki önnur tunga töluð en þýzka. En Vil-
hjálmur hertogi var eigi að síður tryggur vin Danakonungs
og unni samþegnum sínum Dönum. Það var og svo
yfirleitt fram yfir aldamótin, að þegnar Danakonunga af
þýzku þjóðerni og mælandi á þýzka tungu báru sarna
ræktarhuga til konungs og ríkis og Danir sjálflr. Það
var fyrst í frelsisstríðinu gegn Napóleon að þýzka þjóðernis-
tilfinningin vaknaði, og sló þá óhug á þýzka þegna Dana-
konungs, að ríkið skyldi vera í bandalagi við kúgarann
og ofbeldismanninn, sem bræðurnir fyrir sunnan landa-
mærin voru að reka af höndum sér. Við júlíbyltinguna
1830 magnaðist svo hin þjóðlega vakning í Hertoga-
dæmunum, og aldan rís gegn dönsku yfirráðunum.
Lovísa móðir Kristjáns konungs níunda lifði bónda
sinn um 36 ár, og andaðist suður á Þýzkalandi hjá dóttur
sinni, og stóðu synir hennar 6 yfir moldum hennar, og
hvíla þau hjón í Slésvíkur dómkirkju.
1