Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1906, Side 83

Skírnir - 01.01.1906, Side 83
Skíruir. Ritdómar. 83 »Eu hvað græSir maSur á öSru eins riti og þessu?«, spurSi kunningi tninn. er hautt hafði lesið það. J’ví á eg bágt nteð að svara. Eg sé ekki betur en aS höf. haft aS ófyrirsyuju niistekist nteð gott efni. Því hér var ágætt efni. ÞaS er vel þess vert að fylgja eina kvöldstund ferli þess tnanns, setn vill taka sjálfan övin lífsins inu í hold sitt og blóð og berjast þar við hann með allri orku viljans og leggja þar við líf sitt. Engutn tnanni fylgir áhorf- andinn með meiri lotningu út fyrir þröskuld þessa lífs en þeim sent einu og óstuddur tekur kross anuara á herðar sínar og ber hann möglunarlaust út í myrkrið. Ett það gerir ekki þessi læknir. Hatin hrasar um fyrstu freistinguua sem verður á vegi hans. Hann er ekki nógtt sterkur til að standa e i n tt, og dregur því saklausa konu með sér og hugsjón sinni í gröfina. Hugsum okkur hann öðt'tt vísi. Með óbilandi þrjózku vilja síns hylur hann ást sína til Yildu. Hún yfirgefur hann, en þá er hann sterkur. Hann ber sinrt kross, fet fyrir fet, þaugað til kraftarnir bila, og þegar hann er fallinn, neytir hann síðustu orku viljatts til að hylja ást sína til Yildu, sem stendur yfir honum deyjandi og endurspeglar síðustu glóð þeirrar ástar, sem hann faldi, af því hanu var hugsjón sittni trúr til dauöans. Eg held að það hafi verið nógu margir haltir og vanaðir fyrir í hintti miklu kvöldmáltíð bókmentanna, þó þessurn lækni hefði, ekki verið boðið líka. G. F. * * * VORBLÓM. Æskuljóð eftir Jónas Guðlaugsson. Rvik. 1905. Varla verður búist við því af 18 ára skáldi, að kvæöi þess ryðji nýja braut eða snerti strengi, sem ekki hafa ómað áður. Fiest skáld, er gefa út kvæði sín mjög ungir, munu iðrast þess eftir á, þegar augu þeirra hafa opnast fyrir d/rustu perlunum og erfið' reynsla hefir kent þeirri hve djúpt þarf að kafa til að ná í þær. Margt mætti benda á í kvæðum þessum, er ekki þolir strangan dóm. Engu að síður bera þau víða vott um ríka skáldæð, þau eru létt-og þytt kveðin og hefir höf. furðanlegt vald yfir málinu. Virðist enginn efi á því, að hér sé efni í gott skáld, er honunt. vex þroski. Ytri frágangur bókaritinar er snotur, en talsvert er af prent- villum, sem þó verða ekki taldar hér, af því Skírnir hefir annan metnað en að tína upp allar prentvillur í bókum sem honum eru settdar. G. F. 6*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.