Skírnir - 01.04.1908, Qupperneq 59
Leo Tolstoj.
155
Fyrsta meginreglan er þá þessi: þú skalt ekki
r e i ð a s t.
Skoðið þessa meginreglu frá hverju sjónarmiði sem
vera skal, rannsakið hana á allar lundir, og þér munuð
komast að raun um, að hún er í alla staði góð og gagn-
samleg. Jafnvel líkamleg og stundleg vellíðan er að all-
miklu leyti undir því koinin, að eftir henni sé lifað. Og
þótt þér eigi með öllu fáið sneitt hjá reiðinni, þá forðist
hana af fremsta megni og bælið hana niður; það mun
bera yður margfaldan ávöxt.
í öðru lagi:
»Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt ekki hórdóm
drýgja; en eg segi yður, að hver sem lítur á konu með
girndarhug, hefir þegar drýgt hórdóm með henni í hjarta
sínu«.
önnur meginreglan er þá þessi: Láttu eigi
girndirnar ráða.
Þar sem vér mennirnir erum að ýmsu leyti dýrslegs
eðlis, fáum vér að líkindum aldrei til fulls upprætt girnd-
ir vorar. En það, að vér erum breyskir og ófullkomnir,
sannar eigi, að ráðið sé eigi holt og viturlegt. Hafðu því
sem bezt taumhald á girndum þínum, þótt þú fáir eigi
með öllu útrýmt þeim.
I þriðja lagi:
»Enn hafið þér heyrt, að sagt var við forfeðurna:
þú skalt ekki vinna rangan eið, en þú skalt halda eiða
þína við Drottinn. En eg segi yður, að þér eigið alls
ekki að sverja . . . En ræða yðar skal vera: já, já; nei, nei«.
Tolstoj leggur svofelda merkingu í þessa meginreglu:
Seldu engum í hendur ótakmarkað vald
yfir athöfnum þínum.
Þú hefir skynsemina og samvizkuna til að leiðbeina
þér í lífinu. Ef þú afneitar þeim leiðtogum og vinnur
einhverjum jarðneskum leiðtoga hollustueið, — keisara
eða konungi, forseta eða fyrirliða —, þá getur svo farið,
að þeir bjóði þér einhvern tíma að fremja höfuðglæp, t.
d. að drepa náunga þinn eða ættingja. í ávarpi sínu til