Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 3

Skírnir - 01.01.1912, Side 3
Listin að lengja lífið. 3 Annað er það, sem linar alla gegn kuldanum, og það er hvað vant er að hafa mikinn hita í herbergjum dag og nótt. Það má heita óholt að hiti i herbergjum fari fram úr 18° Celsíus á daginn, meðan setið er við vinnu. Á nóttunni þarf enga upphitun, þótt mjög sé kalt, því að sængurfötin hlífa manni nægilega og eins og áður er get- ið, á svefnherbergisgluggi að vera opinn í hálfa eða heila gátt eftir veðráttunni. Það yrði of langt mál, að fara hér að tala um, hvern- ig og úr hvaða efnum klæðnaðurinn skuli vera, til að geta heitið hollur. Að eins nægir að benda á, að nær- fatnaður ætti ætíð að vera úr ull. Ullarvefnaðurinn er gljúpari en allur annar, og lykur því milli möskvanna meira loft en annar vefnaður. Loftið er slæmur hitaleið- ari. Þess vegna bezt skjól að þeim fatnaði, sem gljúpast- ur er. Ennfremur leyfir ullin betur öðru svita og annari útgufun frá líkamanum að komast burt. Loks er ullin haldbetri. í kulda og illviðrum er mjög áríðandi að klæða sig vel og skynsamlega, því mörgum hefir klæðleysi komið á kaldan klaka og orðið að heilsuspilli. I Skírni 1909, 4. hefti, hefi eg í grein um »Að verða úti« ritað ýtarlegar um, hvernig skuli klæða sig í stórhríðum, og vísa eg til þess. Þegar um nokkurn verulegan kulda er að ræða, er um að gera, að hervæðast þannig gegn honum, að hann geti hvergi fengið sáran höggstað á manni. Nái kuldinn að leika um einhvern illa varinn blett, þó ekki sé nema annað eyrað, hönd eða fingur, þá er það nóg til þess, að kuldinn gagntaki mann allan og valdi innkulsi. Annað er það, sem er mjög varasamt, og það er að standa í votu. Meðan maður er á gangi og heldur á sér hita með göngunni, gerir vætan ekkert ilt, nema frost sé mikið. En þegar sezt er að, með votar fætur, þá eyðist svo mikill hiti frá fótunum við uppgufun vætunnar, að líkaminn missir of mikinn hita eða verður fyrir ofkælingu, sem kallað er, og er þetta gott dæmi hennar. Ofkæling er vanalega fólgin í þessu, að líkaminn kólnar snögglega, l*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.